Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 64
| ATVINNA |
Löggildingarnámskeið
fyrir mannvirkjahönnuði
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar
Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti
sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010,
verður haldið í nóvember 2014, ef næg þátttaka fæst.
Námskeiðið mun hefjast mánudaginn 3. nóvember 2014.
kl. 09:00 – 17.00 og standa dagana 3 - 7. nóvember og lýkur
með prófi laugardaginn 15. nóvember.
Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem
sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs.
Upplýsingar og umsóknareyðublað fást hjá
IÐUNNI- fræðslusetri, Vatnagörðum 20, Reykjavík
eða vefsetrinu www.idan.is.
Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR útfylltum ásamt;
1) afriti af prófskírteini umsækjanda.
2) vottorði frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
um réttindi til starfsheitis.
3) vottorði/um um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr.
laga um mannvirki, eigi síðar en mánudaginn
20. október 2014.
Nánari upplýsingar í síma 590 6434.
Vaxtarsamningur Norðurlands vestra óskar
eftir umsóknum um styrki.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00,
föstudaginn 26. september 2014.
Sækja skal um með rafrænum hætti á eyðublöðum sem
fást á vefsíðunni: http://www.ssnv.is
Á vefsíðunni liggja frammi úthlutunarreglur
og nánari upplýsingar.
Einnig er velkomið að hafa samband með vefpósti á
netfangið: solveig@ssnv.is eða hringja í Sólveigu Olgu
í síma 455 6015.
Áherslur Vaxtarsamnings Norðurlands vestra 2014 lúta
einkum að uppbyggingu samstarfs og framgangi rann-
sókna og vöruþróunar á eftirfarandi sviðum:
• Ferðaþjónustu og menningartengdum verkefnum.
• Auðlindalíftækni og uppbyggingu þekkingarsetra.
• Matvælum
• Sameiginlegum verkefnum sem unnin eru með öðrum
vaxtarsamningum í landinu og/eða verkefnum innan
þeirra.
Að auki er horft sérstaklega til verkefna sem:
• Vel eru til þess fallin að stuðla að fjölbreyttari atvinnu-
tækifærum fyrir konur og ungt fólk á svæðinu.
• Stuðla að nýtingu auðlinda svæðisins til atvinnusköp-
unar á Norðurlandi vestra.
• Stuðla að virðisaukningu á sviði matvælaframleiðslu.
Verkefnin sem styrkt verða þurfa að fela í sér eflingu
starfsemi viðkomandi aðila og vera til þess fallin að fjölga
störfum á Norðurlandi vestra og/eða auka þekkingu innan
svæðisins.
Verkefnin skulu unnin í samstarfi þriggja eða fleiri aðila.
Skilgreina skal hlutverk og framlag hvers samstarfsaðila.
Markmið, framtíðarsýn, framvinda og árangursmat
verkefnanna skal vera vel skilgreint.
Reikningshald vegna verkefnisins þarf að vera aðskilið
öðrum rekstri umsækjenda.
Stuðningur við verkefnið getur verið allt að 50% af áætl-
uðum heildarkostnaði þess.
Gerður er sérstakur verksamningur um framkvæmd
verkefna sem hljóta stuðning, þar er nánar kveðið á um
framvindu, greiðslur og tímasetningar.
Ekki er heimilt að veita styrki til fjárfestinga í fyrirtækjum
eða til reksturs fyrirtækja eða opinberra stofnana, auk
þess sem stofnkostnaður er ekki styrkhæfur.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel úthlutunar-
reglur og önnur gögn varðandi samninginn.
Starfsmaður óskast
í hlutastarf á lager Aðfanga
AÐFÖNG óska eftir starfsmanni við vinnu á lager
í hlutstarf.
Um er að ræða helgarvinnu
Viðkomandi þarf að vera stundvís, samviskusamur
og duglegur.
Sækja skal um starfið á www.adfong.is
Framkvæmdasjóðurinn styrkir verkefni sem
uppfylla amk. eitt af eftirfarandi skilyrðum:
1. Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og
verndunar mannvirkja og náttúru á ferða-
mannastöðum í eigu opinberra aðila eða á
náttúruverndarsvæðum.
2. Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi
ferðamanna og verndun náttúru á ferða-
mannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem
einkaaðila.
3. Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu
sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á
ferðamannastöðum eða á náttúruverndarsvæðum.
Áherslur og ábendingar til umsækjenda:
1. Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu
á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar
ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
2. Framlög eru háð því skilyrði að um sé að ræða
ferðamannastaði sem eru opnir almenningi.
3. Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri
upphæð en 50% af kostnaði.
4. Við yfirferð umsókna er tekið mið af gæðum
og trúverðugleika umsókna, mikilvægi verkefnis
m.t.t. markmiða Framkvæmdasjóðsins og Ferða-
málaáætlunar 2011-2020, sjálfbærnisjónarmiða,
nýnæmis ofl
5. Áherslur Framkvæmdasjóðsins er varða skipulag
og hönnun, útlit og gæði mannvirkja og merkinga
koma m.a. fram í ritinu “Menningarstefnu í
mannvirkjagerð”, leiðbeiningarritinu „Góðir staðir“
og „Handbók um merkingar á ferðamannastöðum
og friðlöndum“. Sjá nánar á umsóknasíðu.
Allar umsóknir skulu innihalda:
a. Verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni með
rökstuddum og skýrum hætti.
b. Kostnaðar- og verkáætlun.
c. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða
til annarra framkvæmda þá verður deiliskipulag,
fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir.
d. Ef sótt er um styrk til skipulags- og hönnunar-
vinnu eða undirbúningsrannsókna þá verður að
fylgja skriflegt samþykki sveitarstjórnar og/eða
skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags.
e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða
umsjónaraðila.
Hverjir geta sótt um:
Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja
um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum.
Hvar ber að sækja um:
Umsókn skal skila á vef Ferðamálastofu
www.ferdamalastofa.is á sérstakri umsóknasíðu. Þar
eru jafnframt leiðbeiningar um hvernig skal sækja um.
Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til kl. 16, 14. október 2014.
Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.
Námskeið fyrir umsækjendur:
Jafnframt vekur sjóðurinn athygli umsækjenda
á námskeiðum sem haldin verða til að leiðbeina
umsækjendum gegnum umsóknarferlið.
Námskeið verða haldin á eftirtöldum stöðum:
Akureyri 24. september kl. 9-11
Reykjavík 30. september kl. 13-15
Nánari upplýsingar og skráning á
www.ferdamalastofa.is
Nánari upplýsingar veitir Björn Jóhannsson
umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5513
eða með vefpósti. bjorn@ferdamalastofa.is.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki
til uppbyggingar á ferðamannastöðum árið 2015.
ICELANDIC
TOURIST
STOFA
BOARD
Geirsgata 9 | 101 Reykjavík | Iceland | Sími/Tel +354 535 5500 | Fax +354 535 5501
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Iceland | Sími/Tel +354 535-5510 | Fax +354 535 5501
FRAMKVÆMDASJÓÐUR
FERÐAMANNASTAÐA AUGLÝSIR
EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI
H
ön
n
u
n
:
P
O
R
T
h
ön
n
u
n
Styrkur Tónlistarsjóðs Rótarý
Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi auglýsir eftir
styrkumsóknum. Sjóðurinn veitir ungu fólki,
sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði
viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms.
Styrkurinn verður veittur í janúar 2015
og er að upphæð kr. 800.000.
Umsóknarfrestur er til 8. október n.k.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarý á
Íslandi, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík.
rotary@rotary.is.
Sjá nánar á www.rotary.is
6. september 2014 LAUGARDAGUR22