Fréttablaðið - 06.09.2014, Síða 79
KYNNING − AUGLÝSING Námskeið6. SEPTEMBER 2014 LAUGARDAGUR 7
Hringsjá er náms- og starfsendur-hæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir
hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra
áfalla.
Þar er boðið upp á einstaklings miðað
nám í heimilislegu og notalegu um-
hverfi með góðri stoðþjónustu. Áhersla
er lögð á að hver og einn fái tækifæri til
að blómstra og fái aðstoð við hæfi. Mark-
miðið er að gera nemendur færa um að
takast á við nám í almennum framhalds-
skólum og/eða fjölbreytt störf á vinnu-
markaði. Samkvæmt árangursmælingu
sem gerð var árið 2012 eru 79 prósent út-
skrifaðra nemenda í námi eða starfi að
hluta til eða fullu.
Fann sig í Hringsjá
Kristján Jónsson útskrifaðist úr þriggja
anna vetrarnámi Hringsjár síðast liðið
vor. Hann mælir með náminu fyrir alla
og sérstaklega þá sem finnst erfitt að
byrja í skóla. „Ég byrjaði á að fara á tölvu-
námskeið hjá Hringsjá og svo fór ég á
námskeið í minnistækni, aðallega mér
til gamans. Eftir það fór ég svo í sjálfan
skólann hjá þeim. Það blundaði alltaf í
mér einhver skólaótti, ég átti í basli með
brennivín í langan tíma og fannst ég ekki
eiga neitt erindi í skóla. Þarna fann ég mig
hins vegar algjörlega og sá að ég get vel
lært,“ segir Kristján ánægður.
Ekki gefist upp á neinum
Hann segir að í Hringsjá þurfi fólk að
hafa fyrir hlutunum en námið sé ein-
staklingsmiðað og reynt að finna þær
námsaðferðir sem henta hverjum og
einum. „Það er svo frábær nálgun á nám
í Hringsjá. Ef maður skilur ekki það sem
verið er að kenna með einhverri ákveð-
inni aðferð er bara önnur aðferð fundin,
og svo önnur ef hún hentar ekki. Það er
ekki gefist upp á manni þar.“
Gamall draumur rættist
Á meðan Kristján stundaði nám hjá
Hringsjá tók hann líka tvær annir í kvöld-
skóla Tækniskólans og tók sveinspróf í
málaraiðn. „Eftir eina önn í Hringsjá var
ég farinn að fatta að ég gæti lært þannig
að ég ákvað að láta þrjátíu ára gamlan
draum rætast, fara í málaranám og klára
sveinsprófið. Í dag vinn ég hjá Máln-
ingar þjónustu, frábæru fyrirtæki, og það
á ég allt Hringsjá að þakka,“ segir Krist-
ján og brosir. „Þar upplifði ég mig sem
hluta af stórri fjölskyldu þar sem allir eru
á sínum forsendum og fá að vera í friði
með þær og tekst að láta sér líða vel. Ég
lagði mig fram í skólanum, lærði heima
og skilaði verkefnum og uppskar eftir því.
Nú á ég eftir að taka fjögur fög til að ná
fullum meistararéttindum í málaraiðn
og er jafnvel að hugsa um að fara í frek-
ara nám eftir að ég klára það. Í Hringsjá
fékk ég viðurkenningu og fór að trúa á
sjálfan mig.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.hringsja.isþ
Öðlaðist trú á sjálfan sig í Hringsjá
HRINGSJÁ er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða
annarra áfalla. Kristján Jónsson nemandi kallar staðinn „litla demantinn“ og mælir með honum fyrir alla, sérstaklega þá sem eru
hræddir við að fara í skóla. Hann kláraði sjálfur þriggja anna nám í skólanum og hefur gengið allt í haginn eftir það.
Kristján Jónsson starfar sem málari
í dag en hann byrjaði á að fara í
þriggja anna nám hjá Hringsjá, fór
svo í Tækniskólann og tók sveinspróf.
Frekari upplýsingar og skráning hjá Hringsjá í síma 510 9380 eða á hringsja.is
ÚFF -
Úr frestun í
framkvæmd
Farið yfir ástæður frestunar,
einkenni og afleiðingar. Fyrir
þá sem vilja hætta að fresta og
fara að ná árangri í lífinu.
Fjölskyldan
og ég
Með aukinni þekkingu tileinka
þáttakendur sér leiðir til að
verða betri fjölskyldumeðlimir,
makar og uppalendur.
Minnistækni Kennd er tækni til þess að efla
og bæta minnið. Hentar þeim
sem eiga við gleymsku eða
skert minni að stríða.
TÁT -
Tök á
tilverunni
Bjargráð og færni í að takast
betur á við daglegt líf og
hindranir sem upp koma.
Í fókus - Að ná
fram því besta
með ADHD
Eykur skilning á ADHD
(athyglisbresti/ofvirkni) og
hvernig hægt er að ná betri
tökum á ADHD
Sjálfstyrking Styrkir nemendur í að tjá sig,
sýna öðrum örugga framkomu
og almennt að vera til!
Tölvugrunnur Tölvunotkun fyrir byrjendur.
Unnið á eigin hraða með
aðstoð.
M
Y
N
D
/G
VA