Fréttablaðið - 06.09.2014, Síða 82
6. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN BÆKUR | 34
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Elíasarmál er fjórða bókin sem Þorsteinn
Antonsson tekur saman upp úr handritum
Elíasar Mar. Í þessari bók birtist sá hluti
fyrstu skáldsögu Elíasar sem hann lauk
við að skrifa en vinnuheiti sögunnar var
Börnin á mölinni.
Auk þess eru í Elíasarmálum ýmsar
greinar eftir skáldið og síðustu ljóðin sem
hann orti. Sagnasmiðjan gefur bókina út.
Fjórða bókin úr
handritum Elíasar Mar
Bragi Ólafsson rithöfundur og banda-
ríski höfundurinn Karen Finneyfrock
verða á Reykjavik Writing Jam í Seattle
í október. Þau hafa skipst
á persónulýsingum og
skrifað smásögur um
þessar hugarsmíðar
hvort annars. Þetta er
fyrsta samstarfsverk-
efni Bókmenntaborg-
arinnar Reykjavíkur
við systurborg
Reykjavíkur,
Seattle.
Bragi og Karen á
Writing Jam í Seattle Á bókmenntahátíðinni Bloody Scotland í
Stirling seinna í mánuðinum verður í fyrsta
sinn í veraldarsögunni háður knattspyrnu-
leikur milli Skotlands og Englands þar sem
liðin eru mönnuð glæpasagnahöfundum.
Svo skemmtilega vill til að glæpasagna-
höfundurinn Ragnar Jónasson, sem er
félagi í félagi breskra glæpasagnahöfunda,
Crime Writers’ Association, hefur verið
valinn í lið Englands. Í skoska liðinu eru
þekktir höfundar á borð við Ian Rankin og
Mark Billingham er fyrirliði enska liðsins.
Nú hefur komið í ljós að Skotar eru með
skeinuhætt leynivopn, fyrrverandi atvinnu-
mann í Skotlandi og fyrrverandi norskan
landsliðsmann, Arild Stavrum. Allnokkur
urgur er í enska liðinu vegna Stavrums sem
þeir virðast óttast töluvert.
Því er við að bæta að nú er uppselt á
atburð Ragnars og Yrsu Sigurðardóttur á
Bloody Scotland og er það einn af þremur
atburðum sem þegar er uppselt á á há-
tíðinni allri.
Glæpasagnahöfundar keppa í fótboltaAGLI
FRESTAÐ
– AFTUR
Ævisaga stór-
söngvarans Egils
Ólafssonar sem
Páll Valsson
færði í letur mun
ekki koma út í
haust eins og
áætlað var. Er
það í annað sinn
sem útgáfunni er
frestað.
Það styttist í jólin og jóla-bókaflóðið alræmda um það bil að skella á. Eftir fantagott útgáfu-ár í fyrra, þar sem hvert stórvirkið rak annað, er
útgefendum nokkur vandi á hönd-
um en á útgáfulistum forlaganna
fyrir komandi vertíð er þó ýmis-
legt bitastætt sem bókaunnendur
geta farið að hlakka til að lesa.
Bækur eftir konur eru áberandi og
ýmsar af okkar bestu skáldkonum
senda frá sér bók í haust.
Stórkanónur í öllum flokkum
Vinsælasta ljóðskáld þjóð arinnar,
Gerður Kristný, sendir frá sér
ljóðabókina Drápu sem mun vera
ljóðabálkur um glæpi og önnur
af okkar bestu ljóðskáldkonum,
Kristín Eiríksdóttir, sendir frá
sér ljóðabók sem nefnist Kok.
Skáldsögur eru annars mest áber-
andi á útgáfulistunum eins og árs-
tíðin býður og stórkanónur eins
og Steinunn Sigurðardóttir, Guð-
rún Eva Mínervudóttir og Oddný
Eir Ævarsdóttir eru allar með
skáldsögur í haust. Saga Stein-
unnar nefnist Gæðakonur, Guð-
rún Eva sendir frá sér Englaryk
og Oddný Eir skrifar um Ástar-
meistarann. Jónína Leósdóttir á
líka skáldsögu á listanum og nefn-
ist hún Bara ef … Nýr höfundur,
Soffía Bjarnadóttir, kveður sér
hljóðs með skáldsögunni Segul-
skekkju og Ingibjörg Reynis dóttir,
sem heillaði þjóðina með sögu
sinni um Gísla á Uppsölum fyrir
tveimur árum, sendir nú frá sér
skáldsögu sem nefnist Rogastanz.
Glæpadrottningin Yrsa Sigurðar-
dóttir er að sjálfsögðu með nýja
glæpasögu en sú hefur ekki enn
hlotið nafn. Ein allra áhugaverð-
asta bókin úr smiðju kvennanna er
svo sjálfsævisaga Jóhönnu Krist-
jónsdóttur, Svarthvítir dagar, sem
segir frá fyrstu tuttugu árunum í
lífi hennar.
Dauðar, kvíði og öræfi
Karlmennirnir láta að sjálfsögðu
ekki sitt eftir liggja og jólaboðinn
sjálfur, Arnaldur Indriðason, verð-
ur auðvitað gefinn út 1. nóvember
eins og hefð er fyrir. Stefán Máni
er með nýja glæpasögu, Litlu
dauðarnir, og sömuleiðis Ragnar
Jónasson en bók hans nefnist Nátt-
blinda. Jón Óttar Ólafsson sem
kvaddi sér hljóðs með Hlustað í
fyrra verður með nýja bók um
glæp en endanlegur titill liggur
ekki fyrir.
Steinar Bragi er einn þeirra höf-
unda sem lesendur bíða eftir nýju
verki frá og þeirri bið lýkur í októ-
ber þegar skáldsagan Kata lítur
dagsins ljós. Ófeigur Sigurðsson er
líka höfundur sem margir vænta
mikils af og hann sendir frá sér
skáldsöguna Öræfi. Ný liðarnir í
karlahópnum eru Orri Harðar-
son, sem sendir frá sér sína fyrstu
skáldsögu, Stundarfró, og Sverrir
Norland með skáldsöguna Kvíða-
snillingar.
Börnin fá þá eitthvað fallegt
Fjölmargar nýjar íslenskar barna-
bækur líta dagsins ljós fyrir jólin.
Þórarinn Leifsson sendir frá
sér söguna Maðurinn sem hat-
aði börn, Sigrún Eldjárn og Þór-
arinn Eldjárn skrifa Fuglaþrugl
og nafnahrafl, Gunnar Helgason
heldur áfram með fótboltasöguna
sína og nefnist nýja bókin Gula
spjaldið í Gautaborg. Ævar vís-
indamaður, Ævar Þór Benedikts-
son, er með söguna Þín eigin þjóð-
saga og Bryndís Björgvinsdóttir,
höfundur Flugunnar sem stöðv-
aði stríðið, sendir frá sér bókina
Hafnfirðingabrandarinn. Aðrar
barnabækur eftir konur eru
Leitin að geislasteininum eftir
Iðunni Steinsdóttur, Nikký og
bölvun bergmálsins eftir Brynju
Sif Skúladóttur, Nála – riddara-
saga eftir Evu Þengilsdóttur og
Tröllastrákurinn eignast vini eftir
Sirrý. Sjónvarpsmaðurinn Egill
Eðvarðsson sendir frá sér vísna-
bók fyrir börnin og ber hún titilinn
Ekki á vísan að róa.
Þýddar bækur með
íslenskum tengingum
Þýddar skáldsögur eru fastur liður
í flóðinu og meðal spennandi þýð-
inga sem koma út á næstu vikum
er saga Hönnuh Kent um síðustu
daga Agnesar Magnúsdóttur,
Burial Rites, sem í þýðingu Jóns
St. Kristjánssonar hefur hlotið
nafnið Náðarstund. Önnur þýdd
bók með íslenska tengingu er saga
Sally Magnusson, dóttur Magnus-
ar Magnussonar, Where memories
go, sem fjallar um baráttu móður
hennar við Alzheimer, en sú nefn-
ist Handan minninga í þýðingu
Ragnheiðar Margrétar Guðmunds-
dóttur. Langþráð þýðing Sigurðar
Karlssonar á sögu Sofie Oksanen,
Þegar dúfurnar hurfu, kemur út
hjá Forlaginu og sömuleiðis þýðing
Friðriks Rafnssonar á metsölubók
Romain Puértolas, Ævintýraferð
fakírsins sem festist inni í IKEA
skáp. Bréfabók er skáldsaga eftir
einn virtasta höfund Rússa á okkar
dögum, Míkaíl Shískín, sem kemur
út í Neonklúbbi Bjarts í þýðingu
Áslaugar Agnarsdóttur í október.
Alls ekki tæmandi
Hér hefur verið stiklað á mjög
stóru yfir útgáfulista forlaganna
og langt frá því að þetta sé tæm-
andi listi yfir bækur haustsins.
Forleggjarar vilja gjarnan halda
stórum tíðindum leyndum í lengstu
lög og eins víst að stórtíðinda sé
enn að vænta af bókamarkaðn-
um. Ljóst er þó af þessari upp-
talningu að bókaunnendur þurfa
ekki að kvíða skammdeginu í ár og
geta farið að láta sig hlakka til að
smjatta á góðgætinu sem boðið er
upp á langt fram eftir vetri.
Skáldverk kvenna í öndvegi
Jólin eru handan við hornið og ekki seinna vænna að kíkja á bókakonfektið sem boðið verður upp á í útgáfu haustsins.
GERÐUR KRISTNÝ
KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR
GUÐRÚN EVA
MÍNERVUDÓTTIR
ODDNÝ EIR ÆVARSDÓTTIR
JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR
JÓNÍNA LEÓSDÓTTIR
INGIBJÖRG
REYNISDÓTTIR
FÆRT TIL
BÓKAR
!