Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 84
6. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 36
Brandarar
Myndin
Hvað ertu gömul, Lukka Mörk?
„Ég er 10 ára.“
Hvenær fékkstu áhuga á kletta-
klifri? „Ég held ég hafi alltaf haft
áhuga á klettaklifri en ég byrjaði
að æfa í fyrra.“
Hvernig kom það til? „Pabbi og
mamma eru í hjálparsveit og fóru
að fara með mig í klifur og mér
fannst það gaman.“
Notar þú mikið vegginn í her-
berginu þínu? „Já ég nota hann
mikið. Oft þegar ég kem heim úr
skólanum.“
Æfir þú þig líka annars staðar?
„Já ég æfi í Klifurhúsinu og í vetur
verða æfingar tvisvar í viku.“
Hefurðu verið í alvöru klettum?
„Já, hér og þar þegar við erum
á ferðalagi, til dæmis á Hnappa-
völlum í Öræfum og í Búhömr-
um í Esju. Svo klifruðum við á
nokkrum stöðum í Ölpunum í
sumar, í Chamonix og Arco.“
Eru fleiri á þínum aldri sem þú
veist um sem stunda klifur? „Já,
frænka mín æfir hjá fimleika-
félaginu Björk. Svo eru líka fleiri
á mínum aldri sem æfa í Klifur-
húsinu.“
Hvað er svona heillandi við
klifur? „Bara allt. Átökin og áskor-
unin að komast upp. Svo þegar
maður er úti er það útiveran,
náttúran og klettarnir.“
Áttu fleiri áhugamál? „Já, ég á
fleiri áhugamál eins og til dæmis
skátastarf, fjallgöngur, útilegur,
lestur og sund með vinkonum
mínum og leika mér á stökkpöll-
unum.“
Í hvaða skóla ertu? „Ég er í Kárs-
nesskóla og byrjaði í eldri Kársnes
í haust.“
Æfi klifur þegar ég
kem heim úr skólanum
Lukka Mörk Sigurðardóttir er svo heppin að eiga klifurvegg í herberginu sínu
enda er klettaklifur í uppáhaldi hjá henni ásamt fj allgöngum, útilegum og fl eiru.
KLIFUR-
KÖTTUR
Átökin og
áskorunin
að komast
upp er það
sem Lukku
finnst
heillandi.
KÚNSTIR Það þarf sterka putta og tær í klifur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eigandi páfagauksins var að
reyna að kenna honum að
kynna sig.
Eigandinn: Ég heiti Palli.
Páfagaukurinn: Ég heiti Palli.
Eigandinn: Ég get flogið.
Páfagaukurinn: Það væri gaman
að sjá það.
Sjúklingurinn: Læknir, læknir, ég
sé tvöfalt.
Læknirinn: Róaðu þig aðeins og
sestu í sófann þarna.
Sjúklingurinn: Eee, hvorn þeirra?
Siggi: Af hverju eru fílar í
rauðum skóm?
Gunni: Til að geta falið sig í rifs-
berjarunnanum.
Siggi: En af hverju eru fílar í
bláum skóm?
Gunni: Af því að rauðu skórnir
voru skítugir.
Maður kom inn í sjoppu með
páfagauk á öxlinni.
Afgreiðsludaman: Hvar fékkstu
þennan?
Páfagaukurinn: Í dýrabúðinni.
BENJAMÍN í 4. bekk
Seljaskóla sendi
okkur þessa sumar-
legu mynd.
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
112
„Er það ekki enn ein stafasúpan,“ dæsti Róbert. „Ég skil bara ekki hvað er
svona merkilegt við það að rugla stöfum fram og til baka.“ „Jú, það eru svo
skemmtilegar þrautir,“ sagði Konráð glaður. „Því þegar maður er að lesa eru
öllum orðunum raðað upp í beinar línur og þessvegna er svo gaman að brjóta
orðin upp og raða þeim einhvernvegin öðruvísi, raða þeim í þrautir.“
„Stafaþraut, jáhá,“ rumdi í Kötu. „Og hvernig er þessi stafasúpu þraut?
„Jú það á að raða þessum sjö stöfum þannig að þeir myndi eitt orð.“
Getur þú hjálpað þeim að leysa þessa þraut? Klipptu út stafina eða skrifaðu
þá á blað og reyndu að raða þeim upp þannig að þeir myndi eitt orð.