Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 90

Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 90
6. september 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 42TÍMAMÓT Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ATLI HAUKSSON löggiltur endurskoðandi, Hraunbæ 62, Reykjavík, varð bráðkvaddur mánudaginn 1. september. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þorbjörg Atlad. Sigríðardóttir Alfreð Atlason Fabiana Martins Silva Steinunn Huld Atladóttir barnabörn og barnabarnabarn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og systir, KONNÝ GARIBALDADÓTTIR Njálsgötu 15, Reykjavík, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, þriðjudaginn 26. ágúst sl. Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 9. september, klukkan 13.00. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grundar fyrir einstaka umhyggju og umönnun. Eiríkur Friðbjarnarson Einar Garibaldi Eiríksson Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir Áslaug Garibaldadóttir, Einar og Þorbjörn Garibaldasynir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN JÓNSSON Furugerði 1, áður Súgandafirði, lést þann 23. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Fyrir hönd aðstandenda, Elísabet Þórðardóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR Fróðengi 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Vilhjálmur Valdimarsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HRAFNHILDUR JÓNA GÍSLADÓTTIR Ástúni 8, Kópavogi, lést föstudaginn 29. ágúst sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristján Sigurgeirsson Anna María Sigurðardóttir Anna Brynja Sigurgeirsdóttir Magnús Sjöholm Andrea Kristín Kristjánsdóttir Agla María Kristjánsdóttir Lísa Katla Stellansdóttir Sara Björk Stellansdóttir Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG EINARSDÓTTIR PÉTURSSON sem andaðist miðvikudaginn 27. ágúst á Hrafnistu í Reykjavík verður jarðsungin miðvikudaginn 10. september frá Fossvogskirkju kl. 15.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar L1 á Hrafnistu í Reykjavík fyrir frábæra umönnun síðustu árin. Steinunn Jóhanna Ásgeirsdóttir Ásgeir S. Hallgrímsson Einar M. Ásgeirsson Pétursson Elizabeth Vahey María Ásgeirsdóttir Pjetur Georg Pétursson Svanlaug Arnardóttir barnabörn og barnabarnabörn. „Þetta er í fyrsta skipti sem efnt er til endurfunda Bandaríkjamanna og Íslendinga sem unnu á Keflavíkur- flugvelli meðan herinn var þar, á árunum 1952 til 2006,“ segir María Ben Erlingsdóttir, framkvæmda- stjóri Keflanding, um samkomu í Offiseraklúbbnum á flugvallarsvæð- inu síðdegis í dag. Þangað hafa um 120 manns boðað komu sína, þar af 25 Bandaríkjamenn. María segir rútufyrirtækið Guðmund Tyrfings- son, sem á Keflanding, skipuleggj- anda samkomunnar. „Endurfundir NASKEF (Naval Air Station Kefla- vik) er einn af viðburðum Ljósa- nætur í Reykjanesbæ, enda munu samkomugestir verða fluttir í rútum niður að höfn í lok dags til að fylgj- ast með glæsilegri flugeldasýningu við höfnina.“ Allt hefur þetta átt nokkurn aðdrag- anda, að sögn Maríu. „Við feng- um military.com, sem er 25 milljón manna vefur, í lið með okkur og það voru tugþúsundir sem lásu orðsend- ingar okkar. Sú fyrsta birtist í maí á þessu ári en við hefðum þurft að vera fyrr á ferðinni,“ segir hún. „Þrátt fyrir það erum við að fá hingað 25 manns að utan og ágæta þátttöku í heildina.“ María segir Offiseraklúbbinn líta út nánast eins og hann var í tíð Kanans á vellinum. „Þetta var mjög vinsæll staður og það verður kósý stemning þar í kvöld,“ segir hún. Meðal atriða á dagskránni verða ávörp bæjarstjóra Reykjanesbæjar og bandaríska sendiherrans á Íslandi. „En þetta eru endurfundir og við viljum að fólk blandi fyrst og fremst geði hvert við annað,“ segir María. „Svo verður rosa flott kvöldverðar- hlaðborð, forréttur og eftirréttur og áður en fólk fer verður dregið í happ- drætti með 30 flottum vinningum frá fyrirtækjum hér á Suðurnesjum.“ Erlingur Bjarnason, faðir Maríu, er einn þeirra sem hlakka til kvölds- ins. Hann var framkvæmdastjóri birgðadeildar varnarliðsins í 26 ár og segir hafa verið bæði sjokk og sökn- uð í hans huga þegar herinn fór með stuttum fyrirvara. „Ég átti góð ár á vellinum og eignaðist marga góða vini sem ég held sambandi við en held að þeir bandarísku séu ekki með í hópnum sem hingað er kominn,“ segir hann. gun@frettabladid.is Kósý stemning í kvöld í Offi seraklúbbnum Endurfundir bandarískra hermanna sem dvöldu í Kefl avík á sínum tíma og íslenskra starfsmanna varnarliðsins eru meðal atriða Ljósanætur í Reykjanesbæ. ÖRFÁIR ÚR HÓPNUM Marteinn Valdimarsson, hjónin Elín og Tom Griffin sem kynntust á Keflavíkurflugvelli, Kevyn Silverman, Erlingur Bjarna- son, María Ben Erlingsdóttir og Gunnar Þórmarsson mætt í Offiseraklúbbinn. MYND/OLGABJÖRT@VF.IS Opinber útför Díönu prinsessu af Wales fór fram þennan dag árið 1997. Hún hófst klukkan 9.08 að staðartíma í Lundúnum, þegar kirkjuklukkur gáfu til kynna brottför líkfylgdar hennar frá Kensington-höll. Hvar- vetna var flaggað í hálfa stöng. Líkkistan lá á opnum byssuhestvagni sem ók meðfram Hyde Park til St. James-hallar. Ungir synir Díönu gengu á eftir hestvagninum. Díana var jarðsungin frá West minster Abbey og lögð til hvílu í Althorp-kirkjugarð- inum. Yfir 2.000 manns mættu í athöfnina í kirkjunni sem var sjónvarpað um allan heim og fékk eitt mesta áhorf í sögu sjón- varpsútsendinga. Alls horfðu 38,8 milljónir Breta á útförina í sjónvarpi og yfir tveir milljarðar manna á heimsvísu. ÞETTA GERÐIST: 6. SEPTEMBER 1997 Díana prinsessa borin til grafar Ég átti góð ár á vellinum og eignaðist marga góða vini sem ég held sambandi við. Erlingur Bjarnason.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.