Fréttablaðið - 06.09.2014, Page 96
6. september 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 48
TÓNLIST ★★ ★★★
Upphafstónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands á
starfsárinu
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS FLUTTI
VERK EFTIR LUDWIG VAN BEETHOVEN
OG RICHARD STRAUSS Í ELDBORG Í
HÖRPU FIMMTUDAGINN 4. SEPTEM-
BER. EINSÖNGVARI: GOLDA SCHULTZ.
STJÓRNANDI: ANDREW LITTON.
Þá er vetrardagskrá Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands hafin. Upp-
hafstónleikarnir voru síðasta
fimmtudag og ollu nokkrum von-
brigðum. Ég get ekki sagt annað.
Þó ekki strax. Fyrsta verkið
á efniskránni, Till Eulenspiegel
eða Um Ugluspegil, kom ágæt-
lega út. Verkið er eftir Richard
Strauss og fjallar um þjóðsagna-
persónu sem er mikill grallari.
Eftir því er tónlistin ærslafengin
og hinn bandaríski hljómsveitar-
stjóri Andrew Litton gerði henni
prýðisgóð skil. Túlkunin var
full af ákefð, spilamennskan var
hamslaus sem fór tónsmíðinni
afar vel. Hljómsveitin spilaði af
öryggi, helst mátti finna að dá-
lítið hráum strengjahljómi. En
tré- og málmblásarar voru með
allt sitt á hreinu.
Því miður lá leiðin niður á
við eftir það. Hin suður-afríska
Golda Schultz söng næst sex lög
eftir Strauss við ljóð eftir Clem-
enz Brentano. Schultz söng að
vísu ákaflega fallega. Röddin var
þétt, tær og glæsileg, söngstíllinn
var glaðlegur og tilfinningaríkur.
En undirspil hljómsveitarinnar
var óttalega andlaust. Stjórnand-
anum tókst aldrei að galdra fram
réttu blæbrigðin til að umvefja
sönginn. Þvert á móti dró hljóm-
sveitarleikurinn sönginn niður.
Fyrir bragðið var enginn skáld-
skapur í tónlistinni, ekkert
ímyndunarafl, enginn sjarmi.
Ekki tók betra við eftir hlé. Þá
var sjöunda sinfónía Beethovens á
dagskránni. Jú, sumt var reyndar
ekki illa gert. Fyrsti kaflinn var
almennt nokkuð vel heppnaður.
Tréblásararnir léku af krafti,
brassið líka og yfirleitt var hljóm-
sveitin samtaka. Túlkunin var
hressileg eins og hún átti að vera.
En restin var ekki góð. Annar
kaflinn, sem er sennilega fræg-
asti þáttur sinfóníunnar, var hinn
undarlegasti. Hann var óþarflega
hraður, það var eins og stjórn-
andinn væri að flýta sér. Hvar
var tignin, dýptin og dulúðin sem
hefur gert kaflann svo vinsælan?
Það sem hér heyrðist var bara
gutl sem skorti allan innblástur.
Verri var þriðji kaflinn. Hann
á vissulega að vera mjög líflegur,
en á tónleikunum var hann svo
hraður að það var á mörkunum
að hljómsveitin réði við hann.
Milliparturinn, sem er venju-
lega rólegur og skapar þannig
dramatíska andstæðu, var núna
svo hraður að hann var allt að því
fáránlegur. Útkoman var hrein-
lega kjánaleg.
Síðasti kaflinn var sömu-
leiðis ekki viðunandi. Hrað-
inn var á mörkum mannlegrar
getu, túlkunin var ofstopafull,
það var engin stígandi í henni,
engin spenna. Hljómsveitar-
stjórinn var eins og liðþjálfi að
stýra hernaðaraðgerð. Þetta var
ekki Beethoven eins og hann á að
hljóma, engan veginn. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Tónleikarnir byrjuðu
þokkalega, en restin var leiðinleg.
Óþarfa æsingur en litlaust undirspil
GOLDA SCHULTZ „Schultz söng … ákaflega fallega. Röddin var þétt, tær og glæsi-
leg, söngstíllinn var glaðlegur og tilfinningaríkur.“
Nýtt málverk eftir Eggert Péturs-
son, Fjalldrapi, verður afhjúpað í
Hannesarholti klukkan 14 í dag.
Í kjölfarið kynnir Hannesarholt
menningardagskrá haustsins
með stuttri samverustund í tón-
leikasal hússins, Hljóðbergi,
þar sem Kristjana Stefáns-
dóttir og Víkingur Heiðar
Ólafsson gefa forsmekkinn
að dagskrá vetrarins.
Reglulegir þættir á
haustdagskránni eru
ljóðatónleikar, djass-
spuni, heimspeki-
spjall, bókakvöld og
gönguferðir með leið-
sögn, auk fjölbreyttra
tónlistarviðburða af
ýmsu tagi. Málverk
Eggerts Péturssonar,
Fjalldrapi, er komið til
að vera og mun taka á
móti gestum í Hljóð-
bergi um ókomna tíð.
Haustdagskrá Hannesarholts kynnt í dag:
Afhjúpa Fjalldrapa Eggerts
– TILVALIÐ FYRIR
SKRIFSTOFUR EÐA
HEILSUTENGDA
ÞJÓNUSTU Á GÓÐUM
STAÐ Í REYKJAVÍK
Áhugasamir vinsamlega
senda fyrirspurnir
á furugerdi3@gmail.com
eða í síma 6938310
Upphaflega var tannlæknastofa í
rýmini. Í húsinu núna er hárgreiðslu-
og sjúkranuddstofa.
ÓKEYPIS AÐGANGUR
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
ÞRIÐJUDAGINN 9. SEPTEMBER KL.12:15
JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
BASSI
JÓHANNA HÉÐINSDÓTTIR
MEZZOSÓPRAN
ANTONÍA HEVESI
PÍANÓ
HÚN ELSKAÐI
MIG ALDREI
DON
CARLO
eftir
Giuseppe Verdi
Frumsýning
18. október
kl. 20
Miðasala í Hörpu og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
„Þetta er heillandi verk og við erum stolt af að
setja það upp með stórliði óperusöngvara,“
segir Garðar Cortes sem stjórnar óperunni
La traviata í tónleikaformi í Hörpu í kvöld
klukkan 20 og á morgun klukkan 17.
Flytjendur eru Óperukórinn í Reykja-
vík ásamt einsöngvurum og sinfón-
íuhljómsveit. Í aðalhlutverkum eru
Þóra Einarsdóttir sem Kamelíufrú-
in Víoletta, Garðar Thór Cortes sem
Alfredo, ástmaður hennar, Bergþór
Pálsson sem Giorgio Germont, faðir
Alfredo, og Viðar Gunnarson sem Gren-
ville, læknir Violettu.
-gun
La traviata í Hörpunni
Óperan La traviata eft ir Giuseppe Verdi verður fl utt í
konsertformi í Hörpu í kvöld og annað kvöld.
MENNING