Fréttablaðið - 06.09.2014, Blaðsíða 98
6. september 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 50
HVAÐ? HVENÆR?
HVAR?
Leiklist
20.00 Kameljón er einleikur með Álfrúnu
Helgu Örnólfsdóttur, í leikstjórn Friðgeirs
Einarssonar. Verkið var áður sýnt árið 2012
við góðar undirtektir en snýr nú aftur og
verður sett upp í Tjarnarbíói í september.
Fyrsta sýning er í dag.
Opnanir
14.00 Í dag klukkan 14.00 verður nýtt
málverk eftir Eggert Pétursson, Fjalldrapi,
afhjúpað í Hannesarholti. Í kjölfarið kynnir
Hannesarholt menningardagskrá haustsins
með stuttri samverustund í tónleikasal
hússins, Hljóðbergi, þar sem Kristjana
Stefánsdóttir og Víkingur Heiðar Ólafsson
gefa forsmekkinn af dagskrá vetrarins.
Ópera
20.00 Óperan La Traviata verður sýnd í
Norðurljósasal í Hörpu í kvöld klukkan
20.00.
Sýningar
14.00 Í dag klukkan 14.00 opnar Guðbjörg
Ringsted sýningu á málverkum í Menn-
ingarhúsinu Bergi á Dalvík.
15.00 Metaðsókn hefur verið á sýningu
Ragnars Axelssonar, Spegill lífsins, á Ljós-
myndasafni Reykjavíkur í sumar og er nú
að renna upp síðasta sýningarhelgi. Í til-
efni af því mun Ragnar vera með leiðsögn
um sýninguna á ensku í dag klukkan
15.00.
Málþing
10.00 Matarheill heldur málþing í
Norræna húsinu í dag klukkan 10 til 14.
Dansleikir
23.00 Síðan Skein Sól, betur þekkt sem
SSSÓL, kemur fram á balli á SPOT í Kópa-
vogi í kvöld.
23.59 Það er hefð að slútta Ljósanótt með
risadansleik í Stapanum í Keflavík ár hvert.
Í ár koma fram Sálin, Skítamórall og Jón
Jónsson
23.59 80’s & Disco Reunion-ball hjá
árgangi 73 í Sjallanum Akureyri í kvöld.
Allir árgangar velkomnir á miðnætti þegar
húsið opnar fyrir aðra gesti. Aldurstakmark
er 30 ára.
Tónlist
16.00 Í dag fara fram tónleikar í Rokksafni
Íslands í Keflavík þar sem tónlistarmenn-
irnir Pétur Ben og Júníus Meyvant koma
fram.
16.00 Einn af alvinsælustu dagskrárliðum
Ljósahátíðar í Reykjanesbæ eru hátíðar-
tónleikarnir Með blik í auga. Bjarni Ara,
Matti Matt, Regína Ósk og Sverrir Berg-
mann flytja lögin ásamt stórhljómsveit.
Tónleikarnir fara fram í Andrews-leikhúsi
og hefjast klukkan 16 og 20.
20.00 Jónína Aradóttir heldur tónleika
sem fram fara í Salnum í Kópavogi í kvöld
klukkan 20.00. Jónína Aradóttir er ein af
LAUGARDAGUR
okkar upprennandi lagahöfundum. Hún er
sveitastelpa, uppalin á Hofi í Öræfasveit
og sækir hún oft þangað innblástur fyrir
tónlist sína. Hún semur texta og tónlist
sjálf en segja má að stíll hennar flokkist
undir fólk, popp, rokk með vott af blús, allt
frá fallegum ljúfum tónum yfir í léttleika
og grín.
20.00 Hljómsveitin Mannakorn fagnar
40 ára starfsafmæli sínu í ár. Því er blásið
til sannkallaðrar veislu tóna og texta í
Háskólabíói í kvöld.
20.00 Einn af alvinsælustu dagskrárliðum
Ljósahátíðar í Reykjanesbæ eru hátíðar-
tónleikarnir Með blik í auga. Bjarni Ara,
Matti Matt, Regína Ósk og Sverrir Berg-
mann flytja lögin ásamt stórhljómsveit.
Tónleikarnir fara fram í Andrews-leikhúsi
og hefjast klukkan 16 og 20.
21.30 Sigga, Beta & Elín Eyþórsdætur
koma fram á tónleikum, á Kaffi Rósenberg
í kvöld klukkan 21.30.
23.00 Magnús R. Einarsson og félagar
halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8 í kvöld klukkan 23.00.
Aðgangur er ókeypis.
23.00 Í tilefni nýs lags og myndbands
mun indverska prinsessan okkar,
LEONCIE, halda tónleika á HENDRIX í
kvöld, auk þess sem Dj BALDUR mun sjá
um að halda okkur í stuði alla nóttina.
LEONCIE mun frumflytja nýja lagið sitt
live, sýna nýja myndbandið sitt ásamt
því að spila fyrir okkur sína helstu slag-
ara. Húsið opnar kl 23.00.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá
inni á visir.is.
Smutty Smiff stendur fyrir góð-
gerðartónleikum á sunnudag og
hefur fengið til liðs við sig nokkra
af vinsælustu tónlistarmönnum
landsins. Um er að ræða styrktar-
tónleika fyrir Frosta Jay Free man.
Frosti er aðeins sjö ára gamall en
greindist með afar sjaldgæfan
erfðasjúkdóm sem kallast Ataxia
telangiectasia en Frosti er þriðji
Íslendingurinn sem greinist með
sjúkdóminn, sem leggst meðal ann-
ars á taugakerfi og ónæmiskerfi
líkamans. Ekki er til lækning við
sjúkdómnum, né hægt að hindra
framgang hans og því beinist með-
ferð fyrst og fremst að því að auka
lífsgæði Frosta. Fram koma Bubbi
Morthens, Daníel Ágúst, Dimma,
Helgi Björns, Pollapönk og margir
fleiri listamenn.
Fyrir utan tónleikaveislu verða
afar sjaldgæfar ljósmyndir boðnar
upp en um er ræða ljósmyndir sem
hinn heimsfrægi Bob Gruen hefur
tekið af listamönnum á borð við
John Lennon, Led Zeppelin, Bob
Dylan, Elton John og fleiri.
Tónleikarnir hefjast klukkan
17.00 og fara fram í Háskólabíó.
50% afsláttur er fyrir 15 ára og
yngri ef keyptir eru miðar í mót-
töku Miði.is í Skaftahlíð 24 eða við
innganginn í Háskólabíói. - glp
Rokkað til góðs
SMUTTY SMIFF Stendur fyrir styrktar-
tónleikum fyrir hinn sjö ára Frosta.
DÝRÐLEGUR LEIKHÚSVETUR
Á KOSTAKJÖRUM
Arion banki býður viðskiptavinum í Vildarþjónustu Leikhúskort Þjóðleikhússins
á sérstökum vildarkjörum. Veldu þér þrjár sýningar af spennandi efnisskrá
Þjóðleikhússins og settu þær á Leikhúskortið þitt.
Verð til viðskiptavina Arion banka 9.500 kr. Fullt verð 11.500 kr.
Skilyrði er að greitt sé með greiðslukorti frá Arion banka í miðasölu
Þjóðleikhússins eða í síma 551 1200. Tilboðið gildir til 8. september.
Einnig býðst viðskiptavinum 25% afsláttur á hina rómuðu barnasýningu
Litli prinsinn, en sýningar hefjast að nýju í Kúlunni 7. september.
Þú finnur allar upplýsingar um leikárið á leikhusid.is