Fréttablaðið - 06.09.2014, Side 101
Donalds Trump, Celebrity Apprentice,
árið 2009 þar sem hún fór með sigur af
hólmi.
Joan kom líka víða við í leiklistinni og
fékk meðal annars tilnefningu til Tony-
verðlaunanna fyrir hlutverk sitt í Sally
Marr árið 1994. Þá gaf hún einnig út grín-
plötur og bækur.
Mikið gekk á í einkalífi Joan. Hún var
tvígift, fyrst James Sanger og síðar Edgar
Rosenberg. Hjónaband hennar og James
var ógilt stuttu eftir brúðkaupið en hún
var gift Edgari frá árinu 1965 og þangað
til hann framdi sjálfsmorð árið 1987. Þau
eignuðust eina dóttur, Melissa Rivers, sem
kom í heiminn 20. janúar árið 1968. Þær
mæðgur voru mjög nánar og setti Joan
hana ávallt í fyrsta sæti og einnig son
hennar, Cooper, sem fæddist árið 2000.
Melissa sendi frá sér hjartnæma til-
kynningu á fimmtudagskvöldið eftir að
móðir hennar kvaddi þennan heim.
„Stærsta gleði móður minnar í lífinu
var að láta fólk hlæja. Ég veit að hennar
hinsta ósk væri að við myndum hlæja
bráðum þó að það sé mjög erfitt núna.“
liljakatrin@frettabladid.is
SORGLEG SAGA Með eiginmanni sínum,
Edgar Rosenberg. NORDICPHOTOS/GETTY
MJÖG
NÁNAR
Mæðgurnar
Melissa og
Joan voru
alla tíð afar
nánar.
Jarðarför Joan fer fram á morgun í
Emanu-El, bænahúsi gyðinga, í New York
en spéfuglinn lýsti því í bókinni I Hate
Everyone … Starting With Me, sem kom út
árið 2012, hvernig hún vildi að jarðarförin
færi fram.
„Þegar ég dey (og já, Melissa, sá dagur
mun koma; og já, Melissa, þú erfir allt) vil
ég að jarðarförin verði risastór skemmtana-
viðburður með ljósum, myndavélum og
hasar,“ skrifaði Joan. Hún var meira að segja
búin að plana skemmtiatriði og í hverju hún
ætlaði að vera.
„Ég vil mat eins og á tökustað, ég vil
paparassa og ég vil blaðafulltrúa sem valda
usla. Ég vil að þetta sé Hollywood alla leið.
Ég vil ekki að einhver rabbíni röfli og röfli;
ég vil að Meryl Streep gráti á fimm mismun-
andi tungumálum. Ég vil ekki lofræðu; ég
vil að Bobby Vinton taki höfuð mitt upp og
syngi Mr. Lonely. Ég vil líta stórkostlega út,
betur en ég gerði þegar ég lifði. Ég vil vera
grafin í kjól frá Valentino og ég vil að Harry
Winston hanni merki á tána mína. Og ég vil
vindvél þannig að hárið mitt fyllist lofti í
kistunni eins og hárið hennar Beyoncé.“
„ÉG VIL AÐ MERYL STREEP GRÁTI
Á FIMM MISMUNANDI TUNGUMÁLUM“
„Ömmubörn geta verið fjandi
óþolandi– hve oft getur maður
sagt: Beljan segir mö og svínið
hrín? Þetta er eins og að tala við
súpermódel.“
„Einhver þarf að tala við hann
og segja: Þú ert ekki stór, svartur
glæpamaður. Þú ert alveg eins
og skórnir þínir: venjulegur og
algjörlega hvítur.“
- um poppprinsinn Justin Bieber
„Þetta barn er svo ljótt … ég hef
aldrei séð sex mánaða gamalt
barn sem þarf svona mikið á vaxi
að halda.“
- um stjörnubarnið North West
„Besta getnaðarvörnin mín er að
hafa ljósin kveikt.“
„Elizabeth Taylor var svo feit
að þegar hún fór til London
í rauðum kjól reyndu þrjátíu
farþegar að komast um borð.“
Fleygar setningar
Joan Rivers
var yfir sig hneyksluð og sagði: „Nei. 739!“
Á sínum langa ferli grínaðist hún oft með
þessar fegrunaraðgerðir. Hér eru nokkrar eftir-
minnilegar setningar:
„Ég vildi að ég ætti tvíbura svo ég gæti séð
hvernig ég liti út án lýtaaðgerða.“
„Eiginmaður minn drap sig. Það var mér
að kenna. Við vorum að njóta ásta og ég tók
pokann af hausnum á mér.“
„Mottó mitt er: Það er betra að sjá nýtt
andlit stíga út úr gömlum bíl en gamalt andlit
að stíga út úr nýjum bíl.“
Ingólfshvoli | 816 Ölfus | fakasel.is | fakasel@fakasel.is | sími 483 5050
Hlökkum til að sjá þig.
YNDISLEGUR DAGUR FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
Í FÁKASELI
6. SEPTEMBER
KL. 12–16
• Keppni í skeifukasti:
Fákaselsmeistari í skeifukasti
• Andlitsmálning
• Stígvélakast og ýmsar þrautir
• Íslensk framleiðsla
til sölu á staðnum
• Dásamlegur bröns í
yndislegu umhverf i
Ef ég væri ekki í
skemmtanabransanum væri
ég klárlega mannfræðingur.
Joan Rivers
6. september 2014 LAUGARDAGUR