Fréttablaðið - 06.09.2014, Síða 102
6. september 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 54
BAKÞANKAR
Birtu
Björnsdóttur
Hummus
200 g kjúklingabaunir
2 msk. tahini
3 hvítlauksgeirar
2 msk. ólífuolía
½ tsk. sítrónusafi
salt
1 tsk. matarsódi
Hafið kjúklingabaunirnar í bleyti
í átta klukkutíma við stofuhita.
Setjið þær síðan í pott og hyljið
þær með köldu vatni. Bætið mat-
arsóda við og sjóðið í næstum því
tvo klukkutíma. Skolið baunirnar
í þrjátíu sekúndur til að losna við
matarsódabragðið.
Setjið þær í blandara eða mat-
vinnsluvél ásamt öllu hinu og
blandið þangað til hummusið er
tilbúið. - lkg
Fengið af
milkandtoastandhoney.cuarc.ro
Einfalt og bragðgott hummus
Hentar vel með pítubrauði eða alls kyns gómsætu grænmeti.
LJÚFFENGT Hummusið svíkur engan.
Á dögunum fékk æskulýðsprestur í Selfosskirkju þá fínu hugmynd að
fá kynfræðing til að ræða við verðandi
fermingar börn. Hluti af fræðslunni var
að sýna myndir af íslenskum tippum og
píkum og tilgangurinn væntanlega meðal
annars að sýna fram á að kynfæri eru
jafn ólík og þau eru mörg. Það hlýtur
að vera eftirsóknarvert veganesti fyrir
óharðnaða unglinga að kynfæri séu ólík,
allir geti verið ánægðir með sitt og óþarfi
að keppa við ein hverjar staðlaðar ímyndir
um hvernig píkur og tippi eigi að líta út.
EKKI þótti öllum þetta jafn góð hugmynd,
svo vægt sé til orða tekið. Svo slæmt þótti
nokkrum sómakærum einstaklingum fram-
takið að þeir lögðu fram kæru til lögregl-
unnar.
NÚ veit ég ekki hvernig þetta eflaust
annars ágæta fólk ímyndar sér að
kynfræðsla fari fram en erfitt er
að gera sér í hugarlund hvernig
hægt er að fræða ef ekki má
ræða, segja frá og sýna.
SVO virðist sem kynfræðslu hafi
allavega farið fram síðan sú sem þetta
ritar var í gagnfræðaskóla. Af tíu ára skóla-
göngu bekkjarins var einn klukkutími í átt-
unda bekk helgaður kynfræðslu. Þá voru
strákarnir sendir heim og við stelp urnar
horfðum á sænska heimildarmynd um
blæðingar, mynd sem framleidd var á að
giska tuttugu árum áður. Í kjölfarið fylgdi
svo örsnöggur og fremur vandræðalegur
fyrirlestur um hvað við gætum gert til að
koma í veg fyrir að verða barnshafandi.
Það var jú alfarið á okkar ábyrgð.
FLESTIR hljóta nú að vera sammála um að
meiri umræða en minni á eðlilegum nótum
um kynlíf sé af hinu góða og tæplega tilefni
til að leita þurfi til lögreglunnar.
SJÁLFSKIPAÐIR siðapostular af þessu tagi
eru af sama meiði og ónefndur tón listar-
maður hér í borg sem einnig sá sig knú-
inn til að leita til lögreglunnar til að forða
okkur hinum frá því að sjá tvo karlmenn
kyssast á götum úti.
ÞAÐ vill nefnilega oft vera svo að þeir sem
trana sér fram sem sérstakir hagsmuna-
gæslumenn blessaðra barnanna reyni að
spila út því trompi til þess að ekki glitti í
þeirra eigin fordóma og innri flækjur.
Kynfærin í kirkjunni
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
MIÐASALA Á
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
HITFIX
KS - CHICAGO SUN
DENOFGEEK.COM
RICHARD ROEPER-CHICAGO SUN TIMES
SPARBÍÓ
ÁLFABAKKA EGILSHÖLL
PARÍS NORÐURSINS 8, 10:10
LIFE OF CRIME 5:30, 8
TMNT 3D 3:25, 5
TMNT 2D 2
LET’S BE COPS 10:10
LUCY 8
THE EXPENDABLES 3 10
TEMJA DREKANN SINN 2D 2, 5
DINO TIME 2D 1:30ÍSL TALÍSL TAL
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
Miðasala á:
„ LAUFLÉTT SKEMMTUN Í 100 MÍNÚTUR.“
-V.J.V., SVARTHOFDI.IS
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15
PARÍS NORÐURSINS LÚXUS KL. 5.45 - 8 - 10.15
TMNT 2D KL. 1 - 3.20 - 5.40
TMNT 3D KL. 1 - 3.20 - 8
TMNT 3D LÚXUS KL. 1 - 3.20
THE GIVER KL. 5.45 - 10.15
LET́S BE COPS KL. 1 - 3. 20 - 5.40 - 8 -10.20
EXPENDABLES KL. 8 - 10.40
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 1 - 3.15
PARÍS NORÐURSINS KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15
THE GIVER KL. 8 - 10.15
ARE YOU HERE KL. 10.40
LET́S BE COPS KL. 3.30 - 5.45 - 8
NIKULÁS Í FRÍI KL. 3.20 - 5.45
DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D KL. 10.15
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI KL. 5.20
VONARSTRÆTI KL. 8
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI.
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI
METSÖLUBÓK!
Allir borga barnaverð