Fréttablaðið - 06.09.2014, Qupperneq 104
6. september 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 56SPORT
HANDBOLTI „Þetta er búinn að vera
flottur tími síðan ég kom. Þetta
er stórt og mikið félag. Allt mjög
fagmannlegt og ég hef ekki yfir
neinu að kvarta,“ sagði landsliðs-
fyrirliðinn og einn besti vinstri
hornamaður heims, Guðjón Valur
Sigurðsson.
Hann yfirgaf herbúðir þýska
meistaraliðsins Kiel í sumar enda
stóð honum til boða að ganga í
raðir spænska stórliðsins Barce-
lona. Guðjón fór á kostum með lið-
inu í leiknum um Ofurbikarinn þar
sem hann skoraði átta mörk. Hann
endurtók svo leikinn í fyrsta leik
Barcelona í deildinni.
„Það var rosalegur hiti í Höll-
inni í þessum Ofurbikarleik og
aðeins vandræði á okkar leik.
Þegar maður er farinn að svitna í
gegnum hendurnar þá er erfitt að
halda á boltanum og spila hand-
bolta. Við höfðum þetta þó að
lokum og það var gaman að spila
með þessum köllum,“ segir Guð-
jón en á meðal annarra stjarna
í liðinu má nefna menn eins og
Nikola Karabatic, Kiril Lazarov
og Siarhei Rutenka.
„Kiel var skemmtilegt félag og
gaman að hafa spilað með því frá-
bæra liði. Það var gaman að kveðja
það með ævintýralegum sigri í
deildinni. Að koma svo í þetta
lið sem er engu síðra er magnað.
Ég er mjög glaður með þetta allt
saman.“
Gaman að læra spænska stílinn
Guðjón hefur verið undir stjórn
margra frábærra þjálfara en hann
er í fyrsta skipti núna hjá spænsk-
um þjálfara sem er Xavi Pascual.
„Við æfum mikið og á mjög háu
tempói. Þetta eru öðruvísi æfing-
ar en hjá Alla í Kiel en alls ekkert
auðveldari. Þetta er önnur aðferð
að sama marki. Ég hef verið með
Rússa, Króata, Svía, Þjóðverja og
Íslending sem þjálfara og nú Spán-
verja. Það er gaman að komast í
enn einn stílinn. Maður er alltaf að
læra eitthvað nýtt og gaman að sjá
hvernig Spánverjinn hugsar.“
„Mér hefur gengið mjög vel að
aðlagast og allir mjög almenni-
legir og liðlegir við mig. Ég er auð-
vitað mállaus í augnablikinu enda
ekki búinn að læra málið. Ég þoli
ekki að vera ósjálfbjarga. Það fer í
taugarnar á mér að vera upp á aðra
kominn. Ég hef aldrei kunnað við
það. Ég hef ekki alveg náð að læra
nógu mikið í málinu enda mikið að
gera en það fer að róast fljótlega
og þá kemst ég á fullt.“
Lengi í sigti Barcelona
Hornamaðurinn frábæri viður-
kennir að það hafi lengi blundað í
sér að spila handbolta á Spáni.
„Fyrsta atvinnumannstilboðið
sem ég fékk kom frá Spáni en það
var árið áður en ég fór til Tusem
Essen. KA-menn voru ekki viljugir
til þess að hleypa mér út þá. Mig
hefur alltaf langað til Spánar og
ég hef fengið nokkur tilboð í gegn-
um tíðina. Essen vildi ekki hleypa
mér til Spánar árið 2003 og 2010
var ég með spennandi tilboð líka
frá Spáni. Ég var því glaður þegar
þetta gekk upp enda alltaf langað
að búa á Spáni, læra tungumálið og
spila í deildinni. Þetta er líka ein-
stakur klúbbur á allan hátt,“ segir
Guðjón og viðurkennir að Barce-
lona hafi áður verið á eftir honum
en vill þó ekki gefa upp hvenær
það hafi verið.
Guðjón Valur segir að tilfinn-
ingin að klæðast Barcelona-
búningnum og spila með liðinu
hafi verið góð þó svo að hann hafi
ekkert verið að velta sér sérstak-
lega upp úr því.
„Yfirleitt klárar maður upp-
hitun, fer svo í búning, gefur
nokkrar fimmur og fer svo út á
völl. Ég var lítið að kíkja á mig í
speglinum eða spá í að ég væri að
spila með Barcelona. Það má ekki
missa sig yfir því. Þetta er enn
þá handbolti og það þarf að vinna
fyrir sínum árangri.“
Barcelona-liðið var með ótrú-
lega yfirburði á Spáni í fyrra
þar sem það vann alla sína leiki.
Það tapaði síðan í vítakastkeppni
í undan úrslitum Meistaradeild-
arinnar. Það eru eðlilega gerðar
miklar kröfur til liðsins en það
truflar Guðjón Val ekki neitt.
„Það er ekkert öðruvísi hér en
hjá Kiel að það á að vinna alla leiki.
Þeir vildu fá mann sem gæti borið
treyjuna, hefði reynslu og væri
góður undir álagi. Það er ágætt
að þeir hafa trú á manni en ég hef
alltaf viljað standa mig í vinnunni,
sama hvernig pressa er á mér. Ég
legg mikinn metnað í það sem ég
geri og er mjög stoltur af því sem
ég geri. Ég vil ná árangri sama
hvort það er utanaðkomandi pressa
eða ekki.“ henry@frettabladid.is
Mjög stoltur af því sem ég geri
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var fl jótur að stimpla sig inn hjá spænska handboltastórveldinu Barcelona í Katalóníu.
Hann skoraði átta mörk í leiknum um Ofurbikarinn á Spáni og segir tilfi nninguna að klæðast þessari frægu treyju vera mjög góða.
Á FLUGI Guðjón Valur Sigurðsson skorar hér eitt af átta mörkum sínum gegn Granollers í spænska Ofurbikarnum. MYND/BARCELONA
FÓTBOLTI Aron Einar Gunnarsson,
landsliðsfyrirliði í fótbolta, verður
klár í slaginn með íslenska liðinu
á þriðjudaginn þegar það mætir
Tyrklandi í undankeppni EM
2016 á Laugardalsvelli. Leikur-
inn markar upphaf nýrrar undan-
keppni hjá strákunum okkar, en
eins og allir vita voru þeir nálægt
því að vinna sér sæti á HM.
„Það eru virkilega sterk lið í
riðlinum (Tyrkland, Tékkland,
Holland, Lettland og Kasakstan)
og hann verður erfiður. En maður
kemst ekki á EM auðveldlega, sér-
staklega ekki Ísland. Við höfum
sett okkur það markmið að kom-
ast á stórmót. Það er bara einfalt.
Hvort sem það gerist eða ekki
verður að koma í ljós en eina sem
við ætlum okkur að gera er að
bæta okkur og komast á stórmót,“
sagði Aron Einar á blaðamanna-
fundi í gær.
„Það er mikilvægt að byrja
vel eins og við gerðum í síðustu
undan keppni á móti Noregi hérna
heima. Við fengum alla með okkur
í þetta á þeim tímapunkti. Þetta
var upp á eftir það,“ sagði Aron
Einar.
Hann segir sorgina eftir tapið
í Króatíu síðasta vetur vera
gleymda og grafna og nú einbeiti
menn sér að næsta verkefni. Hann
viðurkennir þó að það hafi haft
áhrif á leikmenn, meðal annars
hann sjálfan. En hann er búinn að
vinna sér sæti sitt hjá Cardiff á ný
og fer vel af stað með liðinu.
„Ég var staðráðinn í að vinna
mig aftur inn í liðið og gerði það.
Ég spilaði fyrstu fjóra leikina en
meiddist svo á ökkla og var ekki
með í síðasta leik. En liðið byrjar
bara vel. Ég er sáttur á meðan ég
fæ að spila og landsliðsþjálfarinn
er líka ánægður með það,“ sagði
Aron Einar, en samvinna hans og
Gylfa Þórs Sigurðssonar á miðri
miðjunni var dýrmæt í síðustu
undankeppni.
Landsliðsþjálfarinn er bjartsýnn
á sigur, en telur Tyrkina næst-
besta á eftir Hollendingum í riðl-
inum.
„Við, Tyrkir og Tékkar erum
frekar jafnir. En ég myndi segja að
Tyrkir væru með næstbesta liðið í
riðlinum. Þeir eru búnir að skipta
um þjálfara sem ég hef mætt áður.
Hann er reynslumikill sem hjálp-
ar þeim. Það verður samt gaman
að sjá hvernig Holland bregst við
nýjum þjálfara og kemur til leiks,“
sagði Lars Lagerbäck. - tom
Ánægður á meðan ég
fæ að spila fótbolta
Aron Einar vann aft ur sætið sitt í byrjunarliði Cardiff .
VÍGALEGUR Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er fúlskeggjaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON