Fréttablaðið - 06.09.2014, Page 105
LAUGARDAGUR 6. september 2014 | SPORT | 57
SÁTTUR Birgir Leifur var ánægður með margt í spilamennsku sinni um helgina og
er viss um að geta byggt ofan á spilamennskunni í framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson,
kylfingur úr GKG, hafnaði í 8. sæti
á Willis Masters-mótinu í Dan-
mörku sem lauk í gær, en mótið er
hluti af Nordea-atvinnumótaröð-
inni. Staðan var nokkuð góð fyrir
lokadag mótsins sem fór fram í
gær en hann var í 4. sæti, þremur
höggum á eftir sænska kylf-
ingnum Oscar Zetterwall þegar
ræst var. Birgir fékk hins vegar
tvöfaldan skolla strax á fyrstu holu
sem gerði honum erfitt fyrir.
„Heilt yfir er ég mjög sáttur, ég
var að slá virkilega vel með járn-
unum en upphafshöggið á fyrstu
holunni refsaði mér grimmi-
lega. Það var versta höggið mitt
á mótinu en heilt yfir er ég mjög
sáttur. Það var margt mjög gott og
ég var nálægt því að blanda mér
í baráttuna um titilinn þannig að
ég tek margt úr þessu,“ en Birgir
náði að laga stöðuna strax á þriðju
holu í gær með því að næla í örn.
„Það var töluverður léttir að ná að
stroka út fyrstu holuna á þriðju
holunni. Það gaf manni trú á að
það væri nóg eftir af þessu móti
og þetta var eiginlega bara lýsandi
fyrir mótið. Ég var að slá fullt af
frábærum höggum og nýtti það
vel á þriðju holunni en það vant-
aði bara herslumuninn til að berj-
ast á toppinum,“ sagði Birgir sem
vonaðist til þess að spilamennskan
myndi halda áfram í þessum far-
vegi. „Það var frábært að sjá að
það sem ég hef verið að vinna í var
að virka vel og ég get lítið annað
gert en að reyna að byggja ofan
á þetta og vonandi koma þá betri
úrslit í framtíðinni,“ sagði Birgir
Leifur sem hlaut 200.000 krónur í
verðlaun fyrir áttunda sæti. - kpt
Vantaði bara herslumuninn í gær
Birgir Leifur lenti í 8. sæti á Willis Masters-mótinu í Danmörku sem lauk í gær.
ÖFLUGUR Sigurður hefur sýnt lipra
takta á tímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson,
þjálfari íslenska U21 árs karla-
landsliðsins í knattspyrnu, gerir
eina breytingu á leikmannahóp
sínum fyrir leikinn gegn Frakk-
landi á mánudaginn. Eyjólfur
ákvað að kalla inn Sigurð Egil
Lárusson, leikmann Vals, í stað
Jóns Daða Böðvarssonar sem
verður með A-landsliðinu gegn
Tyrklandi daginn eftir.
Leikur Íslands og Frakklands
er gríðarlega þýðingarmikill en
íslenska liðið þarf líklegast á stigi
að halda til að bóka sæti sitt í
umspili um sæti á Evrópumótinu
2015. Frakkland hefur þegar
tryggt sér efsta sæti riðilsins.
Þá staðfesti Heimir Hallgríms-
son, annar landsliðsþjálfari
Íslands, við Fréttablaðið í gær
að Hörður Björgvin Magnússon
yrði með U21 árs liðinu í leiknum
gegn Frakklandi.
Hörður var valinn líkt og Jón
Daði í A-landsliðið á dögunum
en hann mun taka áfram þátt í
landsliðsverkefnum U21 árs liðs-
ins í lokaleik liðsins gegn Frakk-
landi á mánudaginn. - kpt
Sigurður Egill
kallaður inn
FRÁBÆR Aron fór á kostum í sigri Kiel
á Wetzlar í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Aron Pálmarsson
fór á kostum í 32-29 sigri Kiel á
Wetzlar í þýska handboltanum í
gær. Með sigrinum nær Kiel að
lyfta sér upp í 4. sæti um tíma en
liðið hefur óvænt tapað tveimur
af fyrstu fimm leikjum sínum.
Aron náði sér ekki á strik í tap-
inu gegn Balingen fyrr í vikunni
en hann var heldur betur rétt
stilltur í leiknum í gær. Aron var
atkvæðamestur í liði Kiel en hann
skoraði þrjú af fyrstu fjórum
mörkum liðsins í leiknum og
fimm af fimmtán mörkum liðsins
í fyrri hálfleik. Aron bætti við
fjórum mörkum í seinni hálfleik
og lauk leik með alls níu mörk.
Sigurinn ætti að taka pressu af
Alfreð Gíslasyni, þjálfara Kiel,
en liðið hefur byrjað tímabilið
illa þrátt fyrir að hafa styrkt sig
gríðarlega í sumar. Miklar vænt-
ingar eru gerðar til liðsins í vetur
en Kiel er búið að ráða ríkjum í
Þýskalandi undanfarin ár með níu
af síðustu tíu deildartitlum. - kpt
Aron frábær í
naumum sigri