Fréttablaðið - 13.10.2014, Page 10
13. október 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
BORGA NEYTENDUR ALLTAF Á
ENDANUM? – ER BREYTINGA ÞÖRF?
Félag atvinnurekenda efnir til opins félagsfundar kl. 8.30, þriðjudaginn 14. október á
Nauthóli Bistro í Nauthólsvík. Tilefnið er meðal annars staðan í samkeppnismálum eftir
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að sekta Mjólkursamsöluna fyrir samkeppnisbrot
og álit Eftirlitsstofnunar EFTA um að hömlur á innflutningi á heilbrigðisvottuðu, fersku
kjöti brjóti í bága við EES-samninginn.
Frummælendur:
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra:
Virk samkeppni
Þórarinn E. Sveinsson, stjórnarformaður Mjólkurvinnslunnar Örnu í Bolungarvík:
Samkeppnisstaðan á mjólkurmarkaði
Heiðrún Lind Marteinsdóttir lögmaður hjá Lex:
Ekki má aka stórum bíl of hratt – Um matskennd ákvæði samkeppnislaga
og viðurlög vegna brota
Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.
Morgunverður er í boði frá kl. 8 og kostar 2.900 krónur. Fundi verður lokið fyrir kl. 10.
Skráning á heimasíðu félagsins www.atvinnurekendur.is
PI
PA
R\
TB
W
A
Fundur FA um stöðu samkeppnismála
og mögulega þörf á lagabreytingum.
Fyrir veturinn er mikilvægt að hafa bílinn í góðu standi.
HEKLA þjónusta býður viðskiptavinum sínum upp á fría vetrarskoðun!
HEKLA þjónusta gerir þér tilboð í viðgerðir ef þörf er á.
Einnig eru tilboð á varahlutum á verkstæði.
Hafðu samband við okkur í síma 590 5030 til að panta tíma.
FRÍ VETRARSKOÐUN!
Innifalið í skoðun er:
• Bremsumæling
• Dekkjamæling (mynstur og loft)
• Skoðun á ljósabúnaði
• Þurrkur athugaðar
• Frostþol kælikerfis og rúðuvökva athugað
• Smurt í lamir og læsingar
• Mæld olía á vél
• Sjónskoðun á undirvagni
• Ástand rafgeymis mælt
Gerðu bílinn klárann fyrir veturinn og komdu til okkar hjá HEKLU
EGYPTALAND Fulltrúar nærri
þrjátíu ríkja tóku þátt í styrkt-
arráðstefnu í Egyptalandi í gær
til að taka ákvarðanir um fjár-
mögnun uppbyggingar á Gasa-
svæðinu, sem Ísraelar lögðu að
stórum hluta í rúst í sumar.
Evrópusambandsríkin hafa
ákveðið að verja samtals um 450
milljónum evra, en Bandaríkin
ætla að leggja fram rúmlega 200
milljónir dala. Samtals nemur
þetta nærri 100 milljörðum
króna.
Fleiri ríki hafa ákveðið að
taka þátt í uppbyggingunni, þar
á meðal arabíska smáríkið Katar
sem lofar einum milljarði dala,
eða jafnvirði rúmlega 120 millj-
arða króna. Talið er að alls þurfi
jafnvirði nærri 500 milljarða
króna til uppbyggingarstarfsins
á Gasa, þegar allt er talið.
Ísrael ætlar hins vegar ekki
að vera með. Avigdor Lieber-
man, utanríkisráðherra Ísraels,
segir hins vegar við ísraelsku
fréttaveituna Ynet að ekki verði
hægt að byggja upp á Gasa án
aðkomu Ísraela.
Hugmyndin er sú að féð fari
til Palestínustjórnar, sem síðan
muni sjá um framkvæmd upp-
byggingarinnar. Mahmúd
Abbas, forseti Palestínu, heit-
ir því að framkvæmdin verði
unnin í samstarfi við Sameinuðu
þjóðirnar, gjafaríkin, alþjóðleg-
ar fjármálastofnanir og samfé-
lagið á Gasa.
Það voru Egyptar og Norð-
menn sem boðuðu til ráðstefn-
unnar. Egyptar lögðu þar fram
hugmyndir að allsherjar frið-
aráætlun fyrir Austurlönd nær
og segja að skoða þurfi á ný til-
lögur Arabaríkjanna frá árinu
2002 um lausn á deilu Ísraela og
Palestínumanna.
gudsteinn@frettabladid.is
Lofa að verja fé til
uppbyggingar Gasa
Evrópusambandið og Bandaríkin ætla að verja jafnvirði nærri 100 milljarða króna
til uppbyggingar á Gasasvæðinu, sem Ísraelar lögðu að stórum hluta í rúst í sumar.
Fjölmörg önnur ríki leggja sitt af mörkum, en Ísrael ætlar ekki að vera með.
Hernaðurinn á Gasa stóð yfir í 50 daga, en honum lauk seint í ágúst.
Ísraelar gerðu meira en fimm þúsundir loftárása á Gasa og drápu meira
en 2.100 Palestínumenn. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra voru almennir
borgarar. Herskáir Gasabúar skutu um það bil 4.500 flugskeytum yfir
landamærin til Ísraels, en tjónið af þeim varð lítið í samanburði við tjónið
á Gasa. Mannfallið meðal Ísraela nam 72 manns, þar af voru 66 hermenn.
EYÐILEGGINGIN Á GASA
RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín
Rússlandsforseti hefur skipað
hersveitum sínum að fara frá
landamærum Úkraínu til bæki-
stöðva sinna.
Alls hafa um 17.600 rússneskir
hermenn verið síðan í apríl í hér-
aðinu Rostov, sem er rétt handan
við landamæri átakasvæðanna í
Úkraínu.
Vera má að ákvörðun Pútíns
tengist fyrirhuguðum fundi hans
og Petros Porosjenkó Úkraínu-
forseta, en þeir ætla að hittast á
Ítalíu á fimmtudaginn.
Úkraínskir uppreisnarmenn,
sem vilja tengjast Rússlandi, eiga
enn í bardögum við úkraínska
herinn, þrátt fyrir vopnahlé og
viðræður sem sagðar eru lofa
góðu. - gb
Friðarviðleitni í Úkraínu:
Pútín kallar
herinn heim
ENN ER BARIST Sprengjureykur berst
frá flugvellinum í Donetsk. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRASILÍA, AP Marina Silva,
umhverfissinni sem varð í þriðja
sæti í forsetakosningunum í
Brasilíu, hefur lýst yfir stuðningi
við Aecio Neves, fyrrverandi rík-
isstjóra sem etur kappi við Dilmu
Rousseff forseta í seinni umferð
kosninganna.
Neves hefur lofað að opna
efnahagslífið í Brasilíu og leggja
áherslu á hagvöxt.
Seinni umferð kosninganna
verður haldin 26. október, eftir
tæpar tvær vikur. - gb
Styttist í seinni umferð forsetakosninga í Brasilíu:
Silva styður Neves til forseta
MARINA SILVA Varð í þriðja sæti í
forsetakosningunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞÁTTTAKENDUR Á RÁÐSTEFNUNNI Utanríkis- og forsætisráðherrar fjölmargra
ríkja mættu til Kaíró í Egyptalandi í gær þar sem rætt var um fjármögnun uppbygg-
ingarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HÚS
■ Um það bil 100 þúsund íbúðir voru
eyðilagðar eða urðu fyrir skemmd-
um í loftárásunum. Þar af voru
um 20 þúsund heimili eyðilögð
algerlega eða að stórum hluta.
FÓLK Á HRAKHÓLUM
■ Meira en 100 þúsund manns eru
enn á hrakhólum. Um 57 þúsund
þeirra búa í bráðabirgðahúsnæði
á vegum opinberra aðila, þar á
meðal í skólum á vegum Sam-
einuðu þjóðanna. Um 47 þúsund
manns gista inni á öðrum fjöl-
skyldum.
FYRIRTÆKI
■ Nærri þúsund fyrirtæki eyðilögð-
ust eða skemmdust, þar á meðal
meira en 4.200 verslanir.
INNVIÐIR
■ Hátt í þrjátíu vatnsbrunnar
skemmdust. Nærri 50 kílómetrar
af vatnsleiðslum og meira en
17 kílómetrar af skolpleiðslum
eyðilögðust. Eina orkuverið á
Gasa skemmdist illa.
RÚSTIR
■ Fjarlægja þarf um það bil 2,5
milljónir tonna af grjótmulningi.