Fréttablaðið - 13.10.2014, Blaðsíða 14
13. október 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Elskulegur eiginmaður minn,
bróðir, mágur, faðir, tengdafaðir og afi,
HILMAR ÖRN GUNNARSSON
fyrrv. útibússtjóri,
lést laugardaginn 4. október á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 17. september kl. 13.00.
Steinunn Jónsdóttir
Dóra Gunnarsdóttir Pétur M. Jónasson
Hörður Ingi Torfason Sali Chaiyaphan
Jón Gunnar Hilmarsson Matthildur Gunnarsdóttir
Birgir Ari Hilmarsson
Rúna Helga Hilmarsdóttir
og barnabörn.
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
önnumst við alla þætti þjónustunnar
Þegar andlát ber
að höndum
Með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Reynsla – Umhyggja – Traust
„Það var leitað til mín úr sóknarnefnd-
inni og ég spurður hvort ég væri tilbú-
inn að taka þetta verkefni að mér. Þetta
var ákveðin áskorun sem ég skoraðist
ekki undan. Það er mikið keppnisfólk
þarna í söfnuðinum sem hefur hlúð
geysilega vel að sögu sóknarinnar,“
segir Sigmundur Ó. Steinarsson rit-
höfundur. Hann á heiðurinn af bók-
inni Grafarvogssókn 25 ára sem kom
út fyrir stuttu en í henni er sagt frá
umfangsmiklu starfi Grafarvogssafn-
aðar, langstærsta safnaðar landsins.
Það tók Sigmund átta til níu mánuði
að vinna bókina en hann hefur skrif-
að sögubækur um íþróttir, til dæmis
100 ára sögu Íslandsmótsins í knatt-
spyrnu, og átti bókin að vera í svip-
uðum dúr.
„Þetta er ekki skýrsla eða langlok-
ur. Þetta er bók fyrir fólk um fólk.
Þetta er öðruvísi kirkjubók eins og
margir hafa sagt,“ segir Sigmundur.
„Þetta var mikill eltingarleikur við
myndir og efni. Ég er mikill tarna-
maður og vann geysilega mikið sumar
vikurnar og safnaði efni og settist svo
niður við skriftir. Ég vildi koma þessu
þannig frá mér að allir yrðu sáttir,“
bætir hann við. Hann er stoltur af
bókinni.
„Ég er geysilega ánægður með bók-
ina. Hraðinn í vinnslunni var svona
mikill því ég sá hana alltaf fyrir mér.
Ég er vanur blaðamennsku og ég segi
að við blaðamenn séum bestu sagn-
fræðingarnir enda erum við sagn-
fræðingar, þótt við séum ekki mennt-
aðir sem slíkir. Stundum hugsaði ég:
Í hvað ertu kominn, Sigmundur? Þá
bara tvíefldist ég enda ákvað ég að
ljúka verkefninu þegar ég tók það að
mér. Ég sagði í gríni að ég væri stund-
um kallaður séra Sigmundur en ég ber
einnig gælunafnið Bubbi. Þannig að
ég yrði kallaður Bubbi biskup ef ég
myndi ljúka þessu verkefni,“ segir
Sigmundur og hlær. Hann naut þess
að taka viðtöl við safnaðarmeðlimi
Grafarvogssóknar.
„Ég kynntist söfnuði sem stendur
vel saman. Þarna er unnið mjög öflugt
starf. Kórarnir hafa verið mjög öflug-
ir og góðir og safnaðarfélagið vinnur
alveg ótrúlegt starf í að safna fyrir
hinum ýmsu munum. Safnaðarmeð-
limir smyrja einnig vel þegar veislur
eru og annað og ég sagði einu sinni að
þegar góðgætið væri borið fram væri
það eiginlega munnsöfnuður,“ segir
Sigmundur glaður í bragði.
„Aðalatriðið er að sóknarbörnin séu
ánægð með bókina. Þá er ég ánægður.
Og ég er ánægður því ég heyrði að þau
kynnu vel að meta hana.“
liljakatrin@frettabladid.is
Þetta er engin
skýrsla eða langlokur
Sigmundur Ó. Steinarsson á heiðurinn af bókinni Grafarvogssókn 25 ára sem kom
út nýverið. Hann segir gerð bókarinnar hafa verið mikla áskorun og hugsaði stund-
um hvað hann væri búinn að koma sér í við vinnslu hennar.
MERKISATBURÐIR
50 Neró tekur við sem Rómarkeisari eftir lát Kládíusar.
1307 Allir musterisriddarar í Frakklandi handteknir samkvæmt skip-
un Filippusar fagra og pyntaðir þar til þeir játa á sig villutrú.
1908 Skáldið Steinn Steinarr fæðist en hann lést fimmtíu árum síðar.
1943 Síðari heimsstyrjöldin: Ítalir segja fyrrverandi bandamönnum
sínum, Þóðverjum, stríð á hendur.
1958 Sögupersónan Paddington kemur fram á sjónarsviðið.
1987 Kýrin Harpa syndir yfir Önundarfjörð frá Flateyri að Kirkjubóli í
Valþjófsdal á flótta þegar leiða átti hana til slátrunar. Eftir sundafrek-
ið var hún nefnd Sæunn og fékk að lifa lengur.
1992 Haukur Morthens söngvari lést 68 ára, eftir nær hálfrar aldar
söngferil.
1994 Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar veitt í fyrsta
sinn og hlaut þau Helgi Ingólfsson.
1996 Eldgosi, sem hófst í Gjálp 2. október sama ár, lýkur.
2006 Suður-Kóreumaðurinn Ban Ki-moon kosinn aðalritari Samein-
uðu þjóðanna.
Fyrsti þáttur af grínþáttunum Fóstbræðrum
fór í loftið á þessum degi árið 1997 en
þátturinn varð upphaflega til á Stöð 3 og
síðan sýndur á Stöð 2.
Upphaflegir meðlimir gríngengisins á
bak við Fóstbræður voru Jón Gnarr, Sigurjón
Kjartansson, Helga Braga Jónsdóttir, Hilmir
Snær Guðnason og Benedikt Erlingsson.
Hilmir Snær var aðeins Fóstbróðir í eina
seríu en Þorsteinn Guðmundsson kom í
hans stað. Í þriðju seríu bættist Gunnar
Jónsson síðan í hópinn.
Það má með sanni segja að Fóstbræður
hafi slegið í gegn á sínum tíma og gera enn.
Búið er að horfa á atriði úr þáttunum mörg
þúsund sinnum á YouTube og eru þættirnir
reglulega endursýndir á sjónvarpsrásum 365.
Margir ódauðlegir karakterar urðu til
í þáttunum, til dæmis Júlli, Gyða Sól og
Helgi, persónulegi trúbadorinn, og má enn
heyra fólk á förnum vegi vitna í þættina og
reglulega deila notendur samfélagsmiðlanna
atriðum úr Fóstbræðrum á síðum sínum.
Þættirnir slógu ekki aðeins í gegn hjá
áhorfendum heldur hrifsuðu einnig til
sín verðlaun. Þátturinn var valinn leikið
sjónvarpsefni ársins árið 1999 á Edduverð-
launahátíðinni og árið eftir var hann valinn
skemmtiþáttur ársins. Þá hlaut Jón Gnarr
verðlaun sem leikari ársins í aðalhlutverki
fyrir frammistöðu sína í þáttunum árið
2001 en það ár var Ragnar Bragason einnig
tilnefndur sem leikstjóri ársins fyrir Fóst-
bræður.
ÞETTA GERÐIST: 13. OKTÓBER ÁRIÐ 1997
Fóstbræður fóru fyrst í loft ið
FÓSTBRÆÐUR Hilmir Snær, Sigurjón Kjart-
ansson, Jón Gnarr og Benedikt Erlingsson.
Ég sagði í gríni að ég
væri stundum kallaður séra
Sigmundur en ég ber einnig
gælunafnið Bubbi. Þannig að
ég yrði kallaður Bubbi biskup
ef ég myndi ljúka þessu
verkefni.
Sigmundur Ó. Steinarsson.
GEYSILEGA ÁNÆGÐUR Sigmundur brýtur bókina upp með ýmsu smáefni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN Séra Vigfús Þór
tekur fyrstu skóflustunguna að Grafar-
vogskirkju laugardaginn 18. maí árið 1991.