Akureyri - 07.03.2014, Síða 1
8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014
VI
KU
BL
AÐ
Pizzur | Hamborgarar | Salöt | Tex Mex | Kjúklingaspjót
Pantaðu
með APPi Greifans
G r e i f i n n V e i t i n g a h ú s | G l e r á r g ö t u 2 0 | 6 0 0 A k u r e y r i | w w w . g r e i f i n n . i s
Sækja APP
Hambó
í hádegi
Ostborgari, franskar og gos á 1000 kr.
frá 11:30-14:00 alla virka daga.
Fjöldskyldutilboð: 4 ostborgarar, stór
skammtur af frönskum, 2 l. gos og 2
kokteilsósur á 3.790 kr.
3 ostborgarar, miðstærð af frönskum
og gos á aðeins 2.900 kr.
Unglingarnir okkar bera af
Mjög lítil kannabisnotkun er meðal
barna í 10. bekk á Akureyri. Drykkja
ungmenna er lítil og fleiri stelpur drekka
ekki en áður. Jafnmargar stelpur og
strákar drekka þó mjög oft samkvæmt
nýrri ESPAD-rannsókn.
Rannsóknin er alþjóðleg en vinnunni
hérlendis stjórnar Dr. Ársæll Arnarsson,
prófessor í sálfræði við Háskólann á Ak-
ureyri. Ísland hefur tekið þátt frá upphafi,
eða frá 1995. Um 3.500 íslenskir nemend-
ur taka þátt (81% allra 10. bekkinga) en
um ræðir samanburðarrannsókn 42 landa,
alls upptökusvæði 170.000 nemenda.
Ársæll segir það vekja mesta athygli
að mjög lítil kannabisnotkun sé sam-
kvæmt mælingunni meðal skólabarna
í 10. bekk á Akureyri. „Hér á Akureyri
nota 2,5% nemenda kannabis, sem er ná-
kvæmlega jafnstórt hlutfall og í síðustu
könnun, en meðaltalið fyrir landið var 11
prósent.“ Þá sé drykkja ungmenna lítil
miðað við önnur svæði og fleiri stelpur
drekki ekki en áður. Jafnmargar stelpur
og strákar drekki þó mjög oft.
„Þó við höfum vissulega séð mjög já-
kvæða þróun í þessum málum síðastliðin
ár, þá er mikilvægt að hafa tvennt í huga:
Í fyrsta lagi þarf að viðhalda þessum ár-
angri með áframhaldandi forvörnum. Í
öðru lagi má ekki gleyma því að þó hlut-
fallstölurnar séu lágar þá eru samt að
baki fjöldinn allur af unglingum í miklum
vanda,“ segir Ársæll. „Unglingar á Íslandi
njóta ekki sannmælis í umræðunni. Hún
einkennist oft af einkennilegu slúðri og
ýkjum. Unglingar á Íslandi bera hreinlega
af, að flestu leyti, bæði foreldrum sínum og
jafnöldrum í samanburðarlöndum.“
77,4% akureyrskra ungmenna segj-
ast aldrei hafa drukkið sl. mánuð. Að-
eins örfáir höfðu prófað kannabis og er
drykkja og fíkniefnaneysla akureyrskra
ungmenna hlutfallslega nokkru minni en
t.d. í Reykjavík og í Noregi. a
Starfsmannahandbók
Mars 2012
EINS OG FRAM kemur hér að neðan í forsíðufrétt blaðsins eru unglingar dagsins í dag að mörgu leyti fremri fyrirmyndum þeirra, hinum fullorðnu.
Það átti líka við um þennan fríða hóp ungmenna fyrir framan Glerártorg í gær, á hinum glaðværa öskudegi. Völundur