Akureyri


Akureyri - 07.03.2014, Qupperneq 8

Akureyri - 07.03.2014, Qupperneq 8
8 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014 VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA? Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu- póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856. LOF OG LAST VIKUNNAR LOF fá starfsmenn Bogans á Akureyri fyrir frábæra umhirðu. Gönguhópar í röðum aldraðra á einu máli um þetta, segir í bréfi til blaðsins. LAST fær Bakaríið við Brúna á Akureyri, segir kona sem sendir blaðinu bréf. Hún tengir það konudeginum og segir að konudagurinn sem dagur þar sem konur eigi að fá blóm. Þann dag auglýsi bakarar líka konudagskökuna en þá skuli græða! „Ég sendi í Bakaríið við Brúna eftir kökunni. Varð fyrir miklum vonbrigðum þegar ég sá dýrðina. Smá kaka, ca 6 góðar sneiðar, mjög fallega skreytt, en innvolsið frekar dauft og verðið tæpar 3.700 krónur. Ég fór í bakaríið daginn eftir, þar sem ég taldi að um mistök væri að ræða hvað verðið snertir, en var tjáð að þetta væri rétt verð og kakan hefði runnið út. Hvert er verðskyn landans eiginlega farið? Að nota slíkan dag sem konudaginn til að græða á okkur konum, eigum við það skilið? Megi bakarameistarar hafa skömm fyrir að bjóða upp á slíka okurköku á þessum degi?“ Skrifar konan en beinir spjótum sínum sérstaklega að Bakaríinu við Brúna, sem fyrr segir... LOF fær hótel KEA fyrir mjög lipra og góða þjónustu, segir kona sem hafði símleiðis samband við blaðið. „Þegar við mægðum frá Sauðákróki urðum hríðarfastar yfir nótt vegna óveðurs á Öxnadalsheiði þá urðum við vitni að algjörlega einstakri þjónustu á Hótel KEA, ljúfmennsku, framkomu sem er svo sannarlega vert að lofa. Við áttum ekki pantað herbergi og lá á að komast inn og það var bara allt svo hlýtt og faglegt, frábær þjónusta,“ segir konan... LOF fær Framsóknarflokkurinn fyrir að kljúfa og leggja Sjálfstæðisflokkinn í rúst. Nokkuð sem vinstri flokkunum hefur ekki tekist þrátt fyrir áratuga baráttu. Svo skrifar karl á Eyrinni í bréfi til blaðsins. LOF fær íslenska þjóðin fyrir að láta ofríkisöfl ekki kúga okkur, segir í öðru bréfi til blaðsins. Er þar vísað til undirskriftasöfnunar og háværra mótmæla landans gegn sviknum kosningaloforðum sjálfstæðismanna og fleiri í ESB-málinu... AKUREYRI VIKUBLAÐ 8. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2013 ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is. FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193. RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING 14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND Hvers konar rök eru þetta? Í tilkynningu sem fjölmiðlum barst frá Vegagerðinni 26. febrúar síðastliðinn sagði að fækka yrði snjómoksturs- dögum á Möðrudalsöræfum „í bili“ og vegum yrði lok- að yfir nóttina. Bara eins og það væri ekkert mál. Í til- kynningu Vegagerðarinnar sagði orðrétt: „Vegna mikils fannfergis á fjallvegum á Austurlandi er nauðsynlegt að fækka snjómokstursdögum á Fjöllum á leiðinni frá Námaskarði austan Mývatns að Skjöldólfsstöðum sem og Vopnafjarðarheiði. Breyting þessi tekur gildi frá og með föstudegi 28. febrúar.“ Einnig sagði: „Á þessu svæði eru víða komin djúp snjógöng og erfitt að halda þeim opnum, kóf í göngunum mikið og skyggni slæmt ef hreyfir vind. Við hvern mokstur hleðst upp snjór við hlið vegar, göngin dýpka og því verður erfiðara að opna aftur við næsta mokstur og þess vegna nauðsynlegt að fækka mokstursdögum tímabundið til að gera það mögulegt að halda leiðinni opinni eins og hægt er við þessar aðstæður.“ Kom fram að mokað yrði á þriðjudögum og föstudög- um. Gert væri ráð fyrir að vegum yrði lokað yfir nóttina, enda gæti á skömmum tíma fennt í snjógöng ef hreyfi vind. „Reikna má með að lokað verði frá 19:30 til morguns og eins má búast við að vegirnir geti lokast alveg nema þá daga sem rutt er,“ sagði einnig í tilkynningunni. Nú er þessi vandi svosem ærinn, ekki skal lítið gert úr því. En að það þurfi símtöl frá forstjóra Samherja til þess að ýmist opna leiðir eða loka þeim er þyngra en tár- um taki. Setjum tilkynninguna í nýtt samhengi. Skiptum út örnefnum og veltum fyrir okkur líkum á því að hið opinbera sendi út eftirfarandi fréttatilkynningu: „Vegna mikils fannfergis við Esjuna er nauðsynlegt að fækka snjómokstursdögum milli Hvalfjarðarganga og Reykja- víkur.Við hvern mokstur hleðst upp snjór við hlið vegarins við Esjuna, göngin dýpka og því verður erfiðara að opna aftur við næsta mokstur og þess vegna er nauðsynlegt að fækka mokstursdögum tímabundið.“ Aha? Hér búum við í landi þar sem borgarar greiða ýmsa skatta og gjöld til að halda uppi öflugum infrastrúktúr. Þar eru samgöngur og öryggi samgangna sjálfsagt mál. Þegar um ræðir þjóðleiðina sjálfa er ekki hægt að beita hundalógík hvorki í orðum né athöfnum. Það gengur ekki að eitt opinbert embætti segi: Ferðamenn, komið til okk- ar en annað segi: Sleppið því, vegurinn er lokaður milli staða. Segir sig sjálft hvers konar vandamál hefur þegar skapast hjá þeim sem þurfa að komast á milli staða, flytja vöru milli staða eða eiga allt sitt undir langtímabókunum ferðamanna. Ef það er svona mikill snjór þarna þarf að framkvæma stórátak í að breyta aðstæðum. Þótt það kosti mannafla og pening er það hluti af kerfinu að bregðast við því. Annað er gjörsamlega ósásættanlegt. Annað deildar- skiptir íbúm þessa lands í úrvarsdeild, aðra deild og skussa deild. Hún er opin núna á Grímsstöðum á Fjöllum. Björn Þorláksson AÐSEND GREIN LOGI MÁR EINARSSON Mikilvægi grunnskólans Í fullkomnum heimi geta öll börn látið drauma sína rætast. Þar lifa foreldr- ar það að sjá börnin sín vaxa úr grasi, þroskast og verða góðir og nýtir þjóðfé- lagsþegnar. Umburðarlyndi og víðsýni eru einkunnarorðin og fjölbreytileikinn er lofsunginn. Í slíkri veröld njóta öll störf virðingar, hvort sem þau eru unnin með hug eða hönd. Hvort sem árangur þeirra mælist jafnharðan í afkomutölum eða í samfélagslegum ávinningi árum eða áratugum síðar. Í þesskonar samfélagi lifum við því miður ekki, en mjökumst þó sem betur fer í rétta átt. Einhæft framleiðslusam- félag, reist á fábreytni hefur vikið fyrir aukinni fjölbreytni. Jafnrétti kynjanna nálgast þó hægt sé og almenn mann- réttindi eru meiri en áður. Samkyn- hneigðir búa saman fyrir opnum tjöld- um, geðsjúkir eru fúsari að segja sögu sína og íbúar gömlu Sólborgar hafa fyrir löngu flutt úr afskekkti stórri stofnun og búið sér heimili víðsvegar um bæinn. Bær sem fyrir nokkrum áratugum var býsna lokaður, og hafði orð á sér fyrir að flokka íbúa í heima- og aðkomumenn, er smátt og smátt að slíta barnsskónum og breytast í iðandi borgarsamfélag. Eins konar Bonsai borg, þar sem allt er til alls. En þrátt fyrir allar þessar framfarir, dynja þó ennþá, allt frá barnæsku, á okkur bein og dulin skilaboð þess efnis að sum störf séu merkilegri en önnur: Eitt borgar sig ekki að læra, annað er dæmigert kvennastarf en það þriðja er vænleg leið til álna. Enn skortir t.d. gríðarlega mikið á það að verknám njóti sömu virðingar og hefðbundið bóknám. Þetta birtist í mörgu, líka í áherslum grunnskól- ans. Börn fá ekki næg tækifæri til að spreyta sig á öðrum sviðum en hinum hefðbundnu kjarnagreinum. Því fjöl- breyttara sem námið er aukast líkur á að allir finni hvar hæfileikar þeirra liggja og umbunin verður ánægjuleg skólaganga. Vansæll nemandi fyllist auðveldlega vanmáttarkennd, verður óhamingjusamur og argur við skóla- kerfið. Hann þraukar skólaskylduna og gjarnan fyrsta bekk í framhaldsskóla, en gefst þá upp. Aðrir reyna aldrei við framhaldsnám. Þeir halda þess í stað út í lífið, oft stefnu- eða markmiðslausir, án þess að umheimurinn sé tilbúinn að taka á móti þeim. Ástæður brottfalls geta að sjálfsögðu einnig verið aðrar: Bágur fjárhagur, slæmar heimilsaðstæður, vímuefnanotk- un, hvers kyns fötlun og áfram mætti lengi telja. Það er þó ekki aðalatriðið því að samfélag, sem vill rísa undir nafni, gengst að sjálfsögðu við sínum hluta ábyrgðar á velferð þessara ungmenna. Hér kemur að mikilvægi grunnskól- ans. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á það að mögulegt er að spá fyrir um brottfall einstaklings úr framhalds- skóla strax við tíu ára aldur, jafnvel fyrr. Það er með öðrum orðum hægt, með nokkuri vissu, að koma auga á það hvort barn er líklegt til þess að falla milli skips og bryggju skólakerfisins á ung- lingsárum. Okkur ber því að sjálfsögðu skylda til að leggja enn harðar að okkur við að finna þessi börn og mæta þörfum þeirra og löngunum. Það gerum við m.a. með því að auka fjölbreytni náms á mið- og unglingastigi, t.d. í íþróttum, verk- og listgreinum. Þetta er að sjálfsögðu ekki bara spurning um að auka lífshamingju viðkomandi um alla framtíð heldur skil- ar einnig efnahagslegum ávinningi fyrir samfélagið. Vissulega er vilji yfirvalda til þess að halda úti öflugu grunnskólakerfi skýr. Um það vitna t.d. grunnskólalög, ný aðalnámskrá og óteljandi stefnuplögg. En það er til lítils að demba yfir skól- ana hátimbruðum markmiðum ef ekki fylgja fjármunir og önnur úrræði sem nauðsynleg eru til að hægt sé að fram- fylgja þeim. Til þess að bærinn okkar geti haldið áfram að blómstra og atvinnulíf dafni þurfum við ekki einungis að keppa um íbúa við önnur sveitarfélög í landinu, heldur einnig borgir nágrannaþjóð- anna. Og við þær keppum við varla í launum næstu misserin. Okkar helsta vopn í þeirri baráttu er að halda í og laða til okkar íbúa sem vilja sameina þægindi smábæjarlífsins og kosti borg- arlífsins. Við þurfum því að bjóða upp á fjölbreytta, öfluga skóla, kraftmikið íþróttastarf, fjörugt menningarlíf og ríka afþreyingu. En jafnframt þurfa bæjaryfirvöld á hverjum tíma að spyrja sig gagnrýninna spurninga: Er takmörk- uðum gæðum rétt skipt, er einhverjum hópi hyglt á kostnað annars og eru ein- hverjir sem verða útundan? Og vegna þess að nútímalegur og kraftmikill bær þarf alls konar fólk, í alls konar störf, er nauðsynlegt að börn alist upp við að bera virðingu fyrir þeim öllum. Ein besta fjárfesting okkar er því án efa framsækinn grunnskóli, þar sem nemendum er innrætt virðing fyrir hvert öðru. Skóli sem temur þeim víðsýni til þess að fagna fjölbreytileikanum, þó að hann sé stundum framandi og jafnvel á skjön við það sem þau ólust upp við. Með fjölbreyttu námsframboði hampar slík- ur skóli styrkleikum nemandans í stað þess að minna hann sífellt á veikleikana. Efling grunnskólans er því eitt brýnasta og jafnframt ábatasamasta viðfangsefni sveitarfélagsins í náinni framtíð. a Í fullkomnum heimi geta öll börn látið drauma sína rætast Logi Már Einarsson

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.