Akureyri - 07.03.2014, Page 12
12 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014
Sigrar unnir í höftum fátæktar
„Þetta var magnað, bæði upplifunin
að sitja þarna og svo var verkið flutt
á dánardægri skáldsins 1. mars en
Davíð Stefánsson lést þann dag árið
1964. Svo er náttúrlega skemmtilegt
að hafa hús eins og Davíðshús sem
vettvang fyrir svona leikrit, það sem
gerir þetta svo sérstakt er að allt
er eins inni í Davíðshúsi og þegar
hann dó, listaverkin, bækurnar
hans, húsgögnin. Verkið er ákaflega
vel skrifað og óður til listarinnar og
listamanna.“
Svo mælir Ragnheiður Skúladótt-
ir, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.
Áhorfendur segja að LA hafi unnið
enn einn sigurinn um síðustu helgi
þegar nýtt útvarpsleikrit var frum-
flutt í Davíðshúsi sem koma mun
fyrir eyru landsmanna um páskana
á Rás 1. Verkið er eftir Árna Krist-
jánsson og nefnist Söngur hrafnanna.
Það verður flutt í tvígang næstu tvo
laugardaga en sýningin er samstarfs-
verkefni Rúv, Minjasafnsins á Akur-
eyri og LA.
Afar lofsamleg umfjöllun hefur
birst í fjölmiðlum og á samskipta-
síðum um Söng hrafnanna og hefur
verið bent á að verkið sé ort inn í
hið ákveðna rými Davíðshúss sem
geri upplifunina sérstaka og ólíka
hefðbundnu leikhúsi. Aðeins kom-
ast 26 gestir fyrir á hverri sýningu
þannig að nánd áhorfenda er mikil
með öðrum áhorfendum. Þá magnar
það enn galdurinn að hljóðverkið
er skemmtilega sett fram af Einari
Sigurðssyni hljóðmanni og berast
raddir úr hinni og þessari áttinni
en ekki allt úr sama hátalaranum.
„Maður situr í myrkrinu, bara notuð
smáljóstýra, þetta er óvenjuleg upp-
lifun á svo fjölmargan hátt,“ segir
Ragnheiður.
Velgengni eins styður við annað
Það er ekki bara í Davíðshúsi
sem leiklist tengd Leikfélagi Ak-
ureyrar blómstrar þessa dagana.
Gullna hliðið, afmælissýningin
í Samkomuhúsinu, hefur gengið
frábærlega frá upphafi og nán-
ast uppselt á allar sýningar. „Það
er einstaklega skemmtilegt með
Gullna hliðið að þetta gamla verk
skuli fúnkera svona vel og tali til
ólíkra kynslóða, þökk magnaðari
uppsetningu og þá ekki síst heiðri
Egils Heiðars og Egils Ingibergsson-
ar,“ segir Ragnheiður. Þá er einnig
mikil aðsókn og einróma jákvæðar
umsagnir um Lísu og Lísu í Rým-
inu. Velgengni einnar sýningar getur
aukið velgengni annarrar sýningar
að sögn leikhússtjóra. „Mér líður
auðvitað óskaplega vel núna en við
erum komin að fjárhagslegum þol-
mörkum og verður ekki við unað
lengur,“ segir Ragnheiður.
Önnur hver króna horfin
Í næstu viku verður birt 6 mánaða
uppgjör Leikfélags Akureyrar. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins fékk
leikhúsið opinber fjárframlög sem
námu 100 milljónum árið 2007 þegar
best lét. Nú er þessi fjárhæð komin
niður í 95 milljónir. Þar dragast af
10 milljónir vegna afborgana á lán-
um. Ef miðað er við annars vegar 85
milljónir til starfsins nú 100 millj-
ónirnar árið 2007 eru framreiknaðar
vísitölutengt lætur nærri að LA fái
nú aðeins aðra hverja krónu af því fé
sem var í boði fyrir sjö árum.
„Okkur vantar sárlega meira
fjármagn til að halda uppi þeim
gæðum sem þarf í atvinnuleikhúsi”
Ragnheiður segir að ástæða þess
að hægt hafi verið að halda uppi
þeim standard sem raun ber vitni
er hversu gjöfult starfsfólk LA og
utanaðkomandi listamenn hafi verið
á tíma sinn og vinnu á þessum tím-
um endurreisnar félagsins. “Þetta er
góðvild sem ekki er lengur hægt að
ganga á”.
Á gulu ljósi
Ráðningarsamningur Leikfélags
Akureyrar við Ragnheiði sem leik-
hússtjóra rennur út um næstu ára-
mót. Spurð hvort hún muni áfram
hafa metnað og löngun til að sinna
starfinu segir hún það allt velta á
umhverfinu. Annars vegar á hún við
efnahagslegt umhverfi og umbæt-
ur þar en einnig skipti máli hvað
komi út úr pælingum um stóraukna
sameingu Hofs, SN og LA eða a.m.k.
stóraukið samstarf.
„Ég hef haft mjög gaman af þessu
en aðstæður eru þannig að maður er
hugsi yfir stöðunni.“
Hefðir þú hug á að sækja um starf
forstöðumanneskju yfir þessi þrjú
svið, SN, LA og Hof, ef pólitískur
vilji mun knýja á um breytingar?
Ragnheiður segist sjá ýmsa
möguleika sem felist í náinni sam-
vinnu eða sameiningu þessara
þriggja stofnana. Hún muni bíða
eftir hvernig endanlegt skipulag
verði hugsað áður en hún taki frek-
ari ákvarðanir. a
RAGNHEIÐUR SKÚLADÓTTIR. HUGSI vegna fjárframlaga til félagsins.
GULLNA HLIÐIÐ
HEFUR slegið
eftirminnilega í
gegn.