Akureyri - 27.03.2014, Blaðsíða 2
2 12. tölublað 4. árgangur 27. mars 2014
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22
borgArApótek, Borgartúni 28 - gArðsApótek, Sogavegi 108
urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!

u ð rApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22
borgArApótek, Borgartúni 28 - ArðsApótek, Sogavegi 108
urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, p ek HAfnArfjArðA , Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Svæðisútvarp
endurvakið?
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri segir að RÚV verði að gera
enn betur í að fjalla um málefni
landsbyggðarinnar og að vænta
megi áherslubreytinga með komandi
hausti. Þetta kemur fram í Morgun-
blaðinu í vikunni.
Útvarpsstjóri útilokar ekki
endurvakningu svæðisútvarpa sem
lögð voru af árið 2010. „Skoða þarf
alla möguleika auk þess sem við
munum hlusta á vilja fólks úti á
landi í takt við það sem við ráðum
við,“ segir Magnús í Morgunblaðinu.
Eins og vefurinn akureyriviku-
blad.is hefur greint frá telur Hrafn-
kell Lárusson sagnfræðingur að
þjónustuskerðing hafi orðið við
landsbyggðina þegar svæðisútvörpin
voru lögð niður. Hann vinnur nú að
rannsókn um svæðisbundna fjölmið-
lun á Austurlandi.
Í síðasta tölublaði Akureyrar
vikublaðs lýsti Birgir Guðmundsson,
dósent í fjölmiðlafræði við Háskól-
ann á Akureyri, óánægju samkvæmt
rannsóknum með að svæðisútvörpin
hefðu verið lögð niður. Teldu ýms-
ir að samtal innan landsfjórðunga
hefði farið forgörðum.
Svæðisstöðvar Rúv úti á landi
verða fluttar í skipuriti frá frétta-
deild innan tíðar. Ekki er enn
ákveðið hvert. Ekki er vitað hvort
fyrirhugaðar stórbreytingar útvarps-
stjóra á Ríkisútvarpinu muni hafa
áhrif á mannahald á svæðisstöðinni
á Akureyri. -BÞ
Stórbruni aðeins
tímaspursmál
Að óbreyttu er aðeins tímaspursmál
hvenær stórbruni verður á lands-
byggðinni vegna óviðunandi bruna-
varna og takmarkaðs eldvarna-
eftirlits. Þetta kemur fram í aðsendri
grein frá Gísla Níls Einarssyni, sér-
fræðingi í forvörnum fyrirtækja hjá
VÍS, í blaðinu í dag.
Gísli Nils segir að hallað hafi
verulega undan fæti í virku og lög-
bundnu eldvarnareftirliti úti á landi.
„Sums staðar er það að engu orðið,
annars staðar í lágmarki og aðeins
í fáeinum tilfellum í lagi. Víða er
ætlast til að slökkviliðsstjórar eða
aðrir þar til bærir sinni eldvarna-
eftirlitinu í 10-50% hlutastarfi
ásamt því að halda utan um allt
slökkvistarf. Fyrir vikið situr þetta
á hakanum.“
Gísli Nils segir að ekki alls fyrir
löngu hafi aðeins heppni komið í veg
fyrir stórbruna hjá fyrirtæki úti á
landi. Í því tilfelli var bæði búið að
aftengja brunaviðvörunarkerfi og
skrúfa fyrir úðakerfi og hafði svo
verið í þó nokkurn tíma áður en
kviknaði í. Samkvæmt lögum um
brunavarnir hefði eldvarnaeftirlit
viðkomandi sveitarfélags átt að
skoða þetta fyrirtæki reglulega
vegna eld- og mengunarhættu. Það
var aldrei gert þau átta ár sem fyr-
irtækið hafði verið í rekstri áður en
kviknaði í. „Sem betur fer tókst með
snarræði að afstýra gríðarlegu tjóni.“
MIKIÐ ÁHYGGJUEFNI
Aðeins 6 slökkvilið af 37 á landinu
eru með gilda brunavarnaáætl-
un. Slík áætlun á að tryggja að
slökkvilið viðkomandi svæðis sé
þannig mannað, skipulagt, útbúið
tækjum, menntað og þjálfað að það
ráði við þau verkefni sem því eru
falin. „Þetta er mikið áhyggjuefni.
Ekki síður sú staðreynd sem bent
var á nýlega að 60% slökkviliðsbíla
á landinu eru fornbílar samkvæmt
skilgreiningum tryggingafélaga og
aðeins 17% slökkviliðsmanna eru
atvinnumenn ef svo má að orði kom-
ast. Þá kom fram á dögunum hjá
slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæð-
isins og yfirlækni bráðaþjónustu
utan sjúkrahúsa á Landspítalanum
að endurmenntun slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna hefur minnk-
að stórlega síðustu árin,“ segir sér-
fræðingur VÍS.
Sjá bls. 21.
- BÞ
NÝR LISTI Í
SKAGAFIRÐI
Sveitarstjórnarfulltrúarnir Sigurjón
Þórðarson og Gréta Sjöfn Guð-
mundsdóttir hafa ákveðið ásamt
áhugasömum hópi fólks að bjóða
fram „sameiginlegan framfara-
lista“ eins og það er orðað fyrir
komandi sveitarstjórnarkosningar,
laugardaginn 31.maí í sveitarfé-
laginu Skagafirði. Segir í tilkynn-
ingu frá Grétu Sjöfn og Sigurjóni að
síðastliðið ár og jafnvel lengur, hafi
„verið uppi sú pólitíska staða innan
sveitarstjórnar að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur einhverra hluta vegna
stutt í einu og öllu meirihluta VG
og Framsóknarflokks. Á hverjum
sveitarstjórnarfundi á fætur öðrum
hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
reynt að gera málefnalega umræðu
minnihlutans í sveitarstjórn þ.e full-
trúa Samfylkingar og Frjálslyndra
og óháðra, ótrúverðuga og tekið
til harðari varna fyrir meirihluta
Vg og Framsóknarflokks“.
Gréta og Sigurjón segja að
reynt sé að ýta út af borðinu mál-
um s.s. umræðu um eignarhald
á orkuauðlindum í Skagafirði og
hitaveituréttindi. Sama eigi við um
framtíð Heilbrigðisstofnunar Sauð-
árkróks „sem heilbrigðisráðherra
hefur haldið í algerri óvissu“.
Ekki meiri snjór í Hlíðarfjalli í 20 ár
„Í stað þess að moka snjó inn í
brekkurnar eins og oft háttar til á
skíðasvæðum höfum við þurft að
moka honum út úr brekkunum til
að fólk geti farið í lyfturnar. Þetta er
mesti snjór sem ég hef séð hér síðan
ég hóf störf hér,“ segir Guðmund-
ur Karl Jónsson, forstöðumaður í
Hlíðarfjalli.
Gríðarlegt magn féll af snjó um
síðustu helgi víða á Norðurlandi.
Sumir bölva en aðrir fagna. Guð-
mundur Karl kallar stöðuna lúx-
usvandamál fyrir skíðasvæði þótt
magnið kosti nokkur aukahandtök.
Margt bendir til að um sögulegt snjó-
magn sé að ræða. „Ég er eiginlega al-
veg viss um að þetta er meiri snjór en
kom árið 2001. Menn segja að þetta
minni á veturinn 1994-1995, sem var
alveg einstakur vegna snjóþyngsla.“
Eftir sléttan mánuð, 27. apríl nk.,
verður skíðasvæðinu lokað. Menn-
ingarlegar ástæður eru fyrir því.
Að sögn Guðmundar Karls sinna
Norðlendingar því lítt að sækja
skíðabrekkur eftir mánaðamótin
apríl-maí. Mörg dæmi séu um að
starfsmenn Hlíðarfjalls séu fleiri en
gestirnir þegar opnun hefur verið
reynd að vori, einstakar helgar. Megi
því einu gilda þótt snjór verði í fjall-
inu út júlí, skíðasvæðið verði lokað.
Þrátt fyrir sólarleysi í vetur segir
Guðmundur Karl að færið í fjallinu
hafi sennilega aldrei verið eins gott
og í vetur. Mikill fjöldi fólks hafi sótt
skíðasvæðið heim en apríl sé ávallt
besti skíðamánuðurinn. -BÞ
ÞAÐ HEFUR ÞURFT fjóra menn á tólf tíma
vöktum til að moka upp mannvirki í
Hlíðarfjalli svosem þetta skilti sem var á
þriggja metra dýpi í snjónum eftir mikla
ofankomu um helgina. Völundur
Tæknifræði á háskólastigi
Í dag munu forsvarsmenn Verkmenntaskólans á Akur-
eyri, SÍMEY og Keilis skrifa undir samstarfssamning
um að hrinda af stað samstarfsverkefni sem felst í
því að á Akureyri verði boðið upp á tæknifræði á
háskólastigi.
Stefnt er að því að bjóða tæknifræði til BSc.-gráðu í
nafni Keilis þar sem hluti námsins fer fram á Akureyri.
Einkum er horft til fyrsta og seinni hluta þriðja árs
en annað árið og fyrri hluti þriðja árs mun fara fram í
höfuðstöðvum Keilis.
Verði nemendafjöldi á Akureyri nægjanlegur er stefnt
að því að hluti staðlota og verklegrar kennslu fari fram
við VMA eftir nánara samkomulagi.
Stefnt er að því að kennsla á Akureyri verði í höndum
heimamanna enda uppfylli þeir skilyrði til kennslu á
háskólastigi.
Stefnt er að því að lokaverkefni nemenda verði unnin
með fyrirtækjum á Norðurlandi sem og þriggja vikna
verkefni nemenda eftir því sem við verður komið.
Í samstarfi við Símey verður skipulagt undirbúnings-
nám fyrir þá sem hyggja á tæknifræðinám en uppfylla
ekki inntökuskilyrði.
Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA, segist löngum
hafa verið talsmaður þess að boðið verði upp á tækninám
á háskólastigi hér á Akureyri; hvort sem er fyrir þá nem-
endur sem lokið hafa almennu stúdentsprófi, stúdentsprófi
að loknu iðnnámi, fullnaðarnámi í vélstjórn ellegar þá
sem lokið hafi sveinsprófi í iðngrein og hafa hug á frekara
tækninámi. Áfanginn sé fagnaðarefni. - BÞ
HJALTI JÓN SVEINSSON, skólameistari VMA