Akureyri - 27.03.2014, Qupperneq 4
4 12. tölublað 4. árgangur 27. mars 2014
NX 1000 { TIL BÆÐI SVÖRT OG HVÍT } NX 210
20.3 milljón pixlar • 20-50 mm linsa fylgir • APS-CMOS Sensor • 8 rammar á sek. • Direct Wi-Fi •
I-Function linsa • Lokarahraði frá 1/4000 upp í 30 sek. • ISO 100-12800 • Notar RAW, JPEG, EXIF,
DPOF og PictBridge skráarsnið • Tekur upp 1080p (30fps) myndbönd (H.264) með hljóði •
Hristivörn (DIS og OIS innbyggt)
Verð: 99.900 kr
SAMSUNG NX 210
20.3 milljón pixlar • 18-50 mm linsa fylgir • APS-CMOS Sensor • 8 rammar á sek. • Direct Wi-Fi •
I-Function linsa • Lokarahraði frá 1/4000 upp í 30 sek. • ISO 100-12800 • Notar RAW, JPEG, EXIF,
DPOF og PictBridge skráarsnið • Tekur upp 1080p (30fps) myndbönd (H.264) með hljóði •
Hristivörn (DIS og OIS innbyggt)
TILBOÐSVERÐ: 129.900 kr
FURUVÖLLUM 5 · AKUREYRI · SÍMI 461 5000 // GARÐARSBRAUT 9 · HÚSAVÍK · SÍMI 464 1515
MYNDAVÉLATILBOÐ FRÁ SAMSUNG
fylgir með báðum vélunum
Fjórði hver nemandi
í alvarlegum vanda
Oddeyrarskóli bestur í stærðfræði – verk að vinna í Glerárskóla – einn
grunnskóli á Akureyri sker sig úr hvað varðar slaka bekkjarstjórnun
Unnin hefur verið skýrsla af Náms-
matsstofnun fyrir Skóladeild Ak-
ureryarbæjar og fjallar hún um
niðurstöður PISA 2012 rannsóknar
OECD. Skýrslan ber heitið „Læsi
á stærðfræði, viðhorf, námsvenjur
og kennsluhættir í grunnskólum
á Akureyri samkvæmt PISA 2012“
Greindar eru niðurstöður rann-
sóknarinnar um stærðfræðilæsi,
námsviðhorf og kennsluhætti í
stærðfræði hjá 15 ára nemendum
í skólunum miðað við Ísland og í
alþjóðlegum samanburði Skýrslan
var lögð fram til kynningar á síðasta
skólanefndarfundi Akureyrarbæjar
og hefur Akureyri Vikublað skýrsl-
una undir höndum.
STÆRÐFRÆÐILÆSI MINNKAR
Stærðfræðilæsi nemenda á Akur-
eyri hefur hrakað sem nemur hálfu
skólaári frá árinu 2003. Þessi lækk-
un jafnast á við það að árið 2012 eru
nemendur jafn vel læsir á stærðfræði
við útskrift 10. bekkjar að vori og
jafnaldrar þeirra árið 2003 voru um
áramót fyrir útskrift.
Meðaltal OECD landanna mið-
ast við 500 stig og segir OECD að
um 100 stig séu á við eitt skólaár.
Stærðfræðilæsi skóla á Akureyri er
sem hér segir:
Glerárskóli 462
Giljaskóli 510
Lundarskóli 489
Síðuskóli 471
Brekkuskóli 512
Oddeyrarskóli 527
Akureyri meðaltal 493
Oddeyrarskóli mælist með hæsta
stærðfræðilæsið af skólunum á
Akureyri, 527 stig, en Glerárskóli
mælist lægstur eða með 462 stig.
Munurinn á hæsta og lægsta skóla
er 65 stig sem er rúmlega ein önn
skv. PISA. Í öllum skólunum er þró-
unin neikvæð, þ.e. stærðfræðilæsi
minnkar, utan Oddeyrarskóla þar
sem læsið er óbreytt milli áranna
2003 og 2012. Skv. skýrsluhöfundi
þarf að kanna það hvað hefur verið
gert í stærðfræðikennslu í skólun-
um undanfarinn áratug og sér í
lagi Oddeyrarskóla en þróunin þar
er ekki í takt við það sem almennt
gerist í hinum skólunum.
NEMENDUR GLERÁR-
SKÓLA ILLA LÆSIR
PISA könnunin raðar nemendum í 6
þrep eftir stærðfræðilæsi. Þeir nem-
endur sem eru í efstu tveimur þrep-
unum, þrepum 5 og 6, eru afburða-
læsir á stærðfræði. Skýrsluhöfundur
segir að nemendur sem ekki hafi
náð 2. þrepi við lok grunnskóla hafi
ekki náð lágmarkskröfum um læsi á
stærðfræði sem hver samfélagsþegn
þurfi til að geta tekið virkan þátt í
nútíma samfélagi. Mikill munur er á
hlutfalli nemenda með mikinn lestr-
arvanda milli skóla. Í Oddeyrarskóla
eru níundi hver nemandi undir þrepi
tvö en fjórði hver nemandi í Gler-
árskóla er í sömu þrepum. Í helm-
ingi skólanna er hlutfall afburða-
læsra töluvert hærra en á landsvísu,
Brekkuskóla, Lundarskóla og Síðu-
skóla. Í hinum skólunum er hlutfallið
undir landsmeðaltali.
ÞJÓÐFÉLAGSSTAÐA HEF-
UR EKKI ÁHRIF
Frá upphafi hefur OECD notað
mælikvarða á þjóðfélagsstöðu
nemenda í PISA rannsóknum til að
meta félagslegan jöfnuð í tækifær-
um til náms. Staðan er metin út frá
menntunarstigi foreldra, efnislegum
gæðum fjölskyldu og virðingarstöðu
starfs þeirra.
Þjóðfélagsstaða nemenda á
Íslandi hefur verið nokkuð góð
í langflestum skólum. Þó er tölu-
verður breytileiki innan skólanna
á Akureyri.
Lundarskóli mælist hæstur þar
með einkunnina 0.85 (Meðaltal
OECD landanna er 0) Brekkuskóli
með 0.74, Síðuskóli með 0.56, Gilja-
skóli 0.54. Glerárskóli 0.5 og svo
Oddeyrarskóli sem með einkunnina
0.27. Þannig er meðalstaða heimila
best í Lundarskólahverfinu, næst
best í hverfi Brekkuskóla og þar fram
eftir götunum. Meðalstaða heimila er
langlægst á Eyrinni.
Þegar borin er samað stærð-
fræðilæsi og þjóðfélagsstaða heim-
ila kemur hins vegar fram að Odd-
eyrarskóli, Giljaskóli og Brekkuskóli
skora hærra en þjóðfélagsstaða
heimilanna sem börnin koma frá
ætti að spá fyrir. Aftur á móti skora
Lundarskóli, Síðuskóli og Gler-
árskóli lægra í stærðfræðilæsi en
heimilisaðstæður ættu að spá fyrir.
Sá skóli þar sem áberandi lakasta
þjóðfélagsstaða heimila er, skorar
hæst í stærðfræðilæsi. Skýrsluhöf-
undar segja að „á engan hátt er hægt
að greina samhengi milli meðalþjóð-
félagsstöðu hverfis og meðalstærð-
fræðilæsis skólans“.
Þjóðfélagsstaða nemenda grunn-
skóla á Akureyri skýrir þannig ekki
stærðfræðilæsi (5.2% sbr við 7.7%
á landsvísu) og er það miklu lægra
hlutfall en í nokkru öðru OECD ríki.
Almennt séð segja skýrsluhöfund-
ar að stærðfræðilæsi nemenda eða
meðallæsi í ólíkum skólahverfum
verði ekki rakið að neinu marki til
mismunandi þjóðfélagsstöðu.
Enginn kynjamunur fyrir Ak-
ureyri í heild hefur fundist í PISA
rannsóknum á stærðfræðilæsi frá
2003.
SJÁLFSMYND NEMENDA LÍTIL
Viðhorf nemenda til stærðfræði
í grunnskólum Akureyrar eru að
meðaltali neikvæðari en á landsvísu.
Þau eru neikvæðust í Síðuskóla en
jákvæðust í Brekkuskóla og Lundar-
skóla.
Þegar sjálfsmynd þeirra sem
stærðfræðinema er skoðuð kemur í
ljós að 10.bekkingar Oddeyrarskóla
hafa mjög veika mynd af sjálfum sér,
þrátt fyrir að stærðfræðilæsi þeirra
sé hærra en í öðrum skólum á Akur-
eyri. Skýrsluhöfundur telur að það
þurfi að vinna með sjálfsmynd nem-
enda í skólunum, því þau séu betri
en þau haldi í stærðfræðinni.
PISA könnunin spyr einnig um
viðhorf nemenda til stærðrfærðinn-
ar og þar kemur fram mikill áhugi
Oddeyrarskólakrakka til að mennta
sig meira í stærðfræði að loknu námi
í grunnskóla, og er viðhorf þeirra
langt yfir landsmeðaltali. Áhugi í
hinum skólunum er við landsmeð-
altal.
EINN SKÓLI MEÐ ÁBERANDI
LAKASTA BEKKJARSTJÓRNUN
Kennsluhættir í stærðfræði á Akur-
eyri eru í heild ekki frábrugðnir því
sem gerist annars staðar á lands-
vísu, segir í skýrslunni. Þó er munur
á bekkjarstjórnun. Bekkjarstjórnun í
Brekkuskóla og Glerárskóla er áber-
andi betri en í hinum skólunum.
Einn skóli sker sig þar úr og er
bekkjarstjórnun metin afar neikvæð
af nemendum. Þar fær kennarinn
ekki nemendur til að hlusta á sig,
lítill agi er í tímum og kennari byrjar
oft ekki á réttum tíma. Þetta er áber-
andi einkenni á stærðfræðitímum
í þessum eina skóla umfram aðra
skóla . Bekkjarstjórnun var metin
út frá hvort kennari fengi nemendur
til að hlusta, kennarinn hefði aga á
bekknum, kennari byrjaði kennslu
á réttum tíma og hvort hann þyrfti
að bíða lengi eftir því að nemendur
þagni.
ÁHUGI NEMENDA Á STÆRÐFRÆÐI
Á Akureyri er almennt lítil breyting
á áhuga nemenda á stærðfræði milli
2003 og 2012, þó er mikill breytileiki
á milli skóla. Í Brekkuskóla til að
mynda hefur áhuginn stóraukist
en dregur úr honum í Glerárskóla
og Oddeyrarskóla á þessu tímabili.
Áhugi nemenda Síðuskóla á stærð-
fræði er síðan áberandi langminnstur
miðað við hina skólana, bæði árið
2003 og í nýjustu könnuninni árið
2012.
Trú barnanna á eigin getu í stærð-
fræði hefur minnkað mikið í öllum
skólum Akureyar á þessu tímabili.
Skýrsluhöfundur telur þetta nei-
kvæða niðurstöðu í ljósi þess að trú
nemenda á landsvísu hefur verið
stöðug á þessum tíma.
Síðan segir skýrsluhöfund-
ur: „Í grunnskólum á Akureyri
hefur viðhorf nemenda á lokaári
til stærðfræði versnað til muna á
undanförnum áratug. Gríðarlegur
munur er á þróuninni milli skóla á
Akureyri. Miðað við hina skólana
fylgir þróunin í Lundarskóla best
því sem gerist á landsvísu. Gler-
árskóli og Oddeyrarskóli skera sig
mjög mikið úr miðað við hina skól-
ana en í þessum skólum er þróun
á viðhorfum til stærðfræði mjög
neikvæð á öllum fimm matsþátt-
unum. Stærðfræðinámið virðist í
augum nemenda sem voru á lokaári
2012 vera af allt öðrum toga en það
nám sem nemendur á lokaári 2003
upplifðu“. a
FRÉTTA SKÝRING
Sveinn Arnarsson
ÞJÓÐFÉLAGSSTAÐA nemenda er best í Lundarskóla og Brekkuskóla þegar rýnt er í
PISA-könnunina. Völundur