Akureyri - 27.03.2014, Síða 6
6 12. tölublað 4. árgangur 27. mars 2014
Sjálfbærni og endurnýting
Meira en hundrað börn komu með
gömul leikföng um síðustu helgi og
skiptu þeim út fyrir önnur gömul
leikföng frá öðrum börnum á Gler-
ártorgi á Akureyri. Unicef stóð að
framtakinu en þetta er í fyrsta skipti
sem svona tilraun er gerð á Akureyri.
Viðburðurinn tókst afar vel að sögn
aðstandenda og verður framhald á. Í
stað þess að henda notuðu leikfangi
sem e.t.v. heillar ekki lengur eiganda
þess fær leikfangið framhaldslíf hjá
öðru barni. Skiptin brýna fyrir börn-
um og fullorðnum mikilvægi endur-
nýtingar og sjálfbærrar hugsunar að
sögn sjálfboðaliða Unicef sem voru
að störfum sl. laugardag.
Myndirnar tala sínu máli.
Rekstur Fallorku
gengur vel
Aðalfundur Norðurorku hf. árið
2014 fór fram í síðustu viku. Árs-
velta samstæðunnar var tæplega 2,6
milljarðar króna. Hagnaður ársins
var 569 milljónir króna, eftir skatta
og eigið fé tæplega 6,3 milljarðar
króna. Á aðalfundi var ákveðið að
greiða 15% arð til hluthafa eða um
127 milljónir króna.
Samstæðureikningur sam-
anstendur af rekstri Norðurorku,
dótturfélagsins Fallorku ehf. og
áhrifa hlutdeildar félaganna Teng-
is hf. og Norak ehf. Rekstur þeirra
allra gekk vel á árinu, sérstaklega
þó Fallorku.
Hagnaður er í takt við áætlanir
en rekstrarkostnaður eykst nokkuð
samfara ákvörðun um aukna gjald-
færslu lausafjármuna sem og rann-
sóknarkostnaðar.
Norðurorka greiddi niður lán á
liðnu áru um 650 milljónir króna
sem er meira en undanfarin ár og
munar þar mestu að Fallorka greiddi
niður lán að upphæð 250 milljónir
króna. Veltufé frá rekstri var rúmlega
1 milljarður króna og handbært fé
í árslok 575 milljónir króna. Lang-
tímaskuldir voru í árslok tæplega
4,8 milljarðar króna og höfðu hækk-
að um 1,6 milljarða króna milli ára
að teknu tilliti til verðbreytinga og
gengismunar innan ársins. Munar
mestu um yfirtöku Norðurorku á frá-
veitu Akureyrarbæjar. Yfirtökuverðið
var 2,3 milljarðar króna og kemur
yfirtakan á fráveitunni eingöngu
fram í efnahagsreikningi félagsins
þar sem yfirtakan átti sér stað þann
31. desember 2013.
MINNI FJÁRFESTINGAR
Fjárfesting Norðurorku í kerfum
og nýframkvæmdum voru um 600
milljónir króna, nokkuð minna
en áætlað var, þar sem frestað var
byggingu miðlunargeymis í Torfdal
ofan Akureyrar. Fjárfestingar þessa
árs eru áætlaðar um 605 milljónir
króna þar af til fráveitu um 133 millj-
ónir króna. Á næstu árum liggja fyrir
stór fjárfestingaverkefni sem félagið
þarf að takast á við svo sem bygging
hreinsimannvirkis fyrir fráveitu sem
og stórverkefni dótturfélagsins Fall-
orku, bygging nýrrar Glerárvirkjunar.
SAMKEPPNISHÆFT VERÐ
Í ljósi baráttu um verðbólgumarkmið
ákvað stjórn félagsins um liðin ára-
mót, að hækka eingöngu notkunar-
gjöld neysluvatns en að notkunar-
gjöld annarra veitna yrðu óbreyttar.
„Norðurorka stendur mjög vel að vígi
hvað verðlagningu varðar og hefur
áður bent á að verð raforkudreifingar
og heita vatnsins hefur lækkað mjög
að raungildi undangengin ár,“ segir
Baldur Dýrfjörð kynningarfulltrúi
Norðurorku.
Norðurorka hefur með yfirtöku á
fráveitu Akureyrarbæjar tekið að sér,
fyrir hönd íbúa og eigenda, það stóra
verkefni að fráveitan svari til krafna
umhverfis- og mengunarvarnarlög-
gjafar. Miklir hagsmunir eru í húfi
hjá okkur sem búum innst við langan
fjörð. Á Akureyri eru stór matvæla-
fyrirtæki, mikil ferðamennska og að
sjálfsögðu náttúran og íbúarnir sjálfir.
„Verð á þjónustu og vörum fyrir-
tækisins skiptir almenning miklu
og er einn af þeim þáttum sem ráða
íbúaþróun sem og tækifærum við-
skipatvina okkar. Rekstur félagsins
og verkefna þess fyrir íbúana, endur-
spegla verðskrá þess á hverjum tíma.
Verkefni framtíðarinnar eru stór og
mikil sem og von okkar að verðskrár
fyrirtækisins verði áfram með þeim
hagstæðustu litið til samanburð-
ar við sambærilega rekstur,“ segir
Baldur. a
RAUNFÆRNIMAT
Í SKRIFSTOFUGREINUM
ER RAUNFÆRNIMAT EITTHVAÐ FYRIR ÞIG?
Ertu orðin/nn 23 ára og hefur unnið skrifstofustörf í 5 ár eða lengur
HVAÐ ER RAUNFÆRNIMAT Í SKRIFSTOFUGREINUM?
Það er mat og staðfesting á þekkingu og reynslu af skrifstofustörfum.
Í raunfærnimati skrifstofugreina er lagt mat á reynslu og þekkingu í sam-
anburði við námsskrá Skrifstofubrautar I í Menntaskólanum í Kópavogi.
Skrifstofubrautin er hagnýtt nám á framhaldsskólastigi (33 einingar) sem
miðar að því að veita nemendum almenna þekkingu í greinum sem nýt-
ast við krefjandi störf á skrifstofu. Nánari upplýsingar um námsbrautina
má finna á www.mk.is
Raunfærnimatið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Kynningarfundur vegna raunfærnimats verður hjá SÍMEY 2. apríl kl.
16:00
RAUNFÆRNIMAT
Í SKRIFSTOFUGREINUM
Skráning er hjá SÍMEY í síma 460-5720, eða á www.simey.is
Frekari upplýsingar gefa Heimir, heimir@simey.is og Kristín, kristin@simey.is
Er raunfærnimat eitthvað fyrir þig?
Ertu orðin/nn 23 ára og hefur unnið skrifstofustörf í 5 ár eða lengur
Hvað er raunfærnimat í skrifstofugreinu ?
Það er mat og staðfesting á þekkingu og reynslu af skrifstofustörfum.
Í raunfærnimati skrifstofugreina er lagt mat á reynslu og þekkingu í samanburði
við námsskrá Skrifstofubrautar I í Menntaskólanum í Kópavogi.
Skrifstofubrautin er hagnýtt nám á framhaldsskólastigi (33 einingar) sem miðar
að því að veita nemendum almenna þekkingu í greinum sem nýtast við
krefjandi störf á skrifstofu. Nánari upplýsingar um námsbrautina má finna á
www.mk.is
Raunfærnim
atið er
þátttakendu
m að
kostnaðarla
usu.
Kynningarfu
ndur vegna
raunfærnim
ats verður h
já
SÍMEY 2. ap
ríl kl. 16:00
Skráning er hjá SÍMEY í síma 460-5720, eða á www.simey.is
Frekari upplýsingar gefa Heimir, heimir@simey.is og Kristín, kristin@simey.is