Akureyri - 27.03.2014, Side 8
8 12. tölublað 4. árgangur 27. mars 2014
VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA?
Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem
sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í
blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu-
póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856.
LOF OG LAST VIKUNNAR
LOF fær Elín á Te&kaffi fyrir „einstaklega
góða þjónustulund og brosmildi“. Svo skrifar
kona í bréfi til blaðsins.
LAST fá kennarar í verkfalli fyrir að búa
ekki nemendur nægilega vel undir verkfallið
svo nemendur geti unnið sér gagn í skólunum
á meðan á verkfalli stendur. Þetta segir
þingeysk kona sem á barn í VMA og hringdi í
ritstjórn blaðsins til að segja farir ekki sléttar.
Konan segir að aðeins einn kennari hafi með
rafrænum hætti gengið þannig frá hnútum
að nemendur geti sjálfmenntað sig á meðan
á verkfalli stendur. „Dóttir mín getur nánast
ekkert unnið heima, nemendur sitja bara og
geta ekkert unnið, mér finnst þetta mjög illa
gert, það er stutt í próf, sérstaklega í VMA.
Mér finnst að kennarar verði að taka sig
saman í andlitinu og gefa nemendum kost
á að vinna heima, undrbúa sig, þótt það
myndi kosta að kennarar ynnu einn dag,“
segir konan ...
LOF fá sorphirðumenn á Akureyri, skrifar
karl á Brekkunni í pósti til blaðsins. „Þetta
er harðsnúinn herflokkur sem mætir alltaf
á sama tíma og tæmir ruslið frá okkur. Þeir
hljóta að vera í góðu formi. Þeir ganga og
lyfta allan daginn og eru úti í öllum veðrum.
Ég dáist að þeim,“ segir karlinn og er vart
annað hægt en taka undir orð hans...
LAST fá allir þeir sem nenna ekki að moka
frá sorpílátum, segir sami karl. „Það tekur
ekki nema örfáar mínútur en munar miklu
fyrir aðkomuna.“
LOF fær björgunarsveitarfólk og aðrir sem
komið hafa fólki til bjargar síðustu daga í
ófærðinni. Svo skrifar karl á Blönduósi í bréfi
til blaðsins.
LAST fær Akureyri vikublað og kona sem
lastaði KA í síðasta dálki, segir KA-maður.
Rangt var farið með staðreyndir í lasti um
upphitaðan gervigrasvöll og snjóbræðslu,
segir maðurinn sem sver fyrir að KA hafi
nokkuð til sakar unnið. Hann gagnrýnir
blaðið fyrir að birta ásakanir án þess að
tékka á staðreyndum. Blaðið brýnir fyrir fólki
að nafnleysi má ekki misnota og traust er
forsenda þess að hægt sé að halda dálkinum
úti...
AKUREYRI VIKUBLAÐ 12. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2013
ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is.
AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193.
RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri.
UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING
14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND
Frávikin sem
allt snýst um
Allar fréttirnar um aulana sem festu sig í skafli 10 metrum eftir að þeir óku fram hjá LOKAÐ
skiltinu við Öxnadalsheiðinni, fréttirnar um fólkið
á Hellisheiðinni sem var svo vitlaust að húðskamma
lögguna þegar það komst ekki í bíó vegna ófærðar,
fréttirnar um sérfræðingana að sunnan sem áttuðu sig
ekki á að mokstur á vegi að sumarbústað í Vaðlaheiði
er ekki forgangsmál þegar þjóðvegirnir eru lokaðir
vegna snjóa; allar þessar fréttir eru frávik og alls ekki
lýsandi fyrir umferðarmenningu Íslendinga.
Veruleiki óveðurs birtist manni strax í götunni
heima. Nágrannar hafa síðustu daga hver hjálpað öðr-
um. Boðið og búið er fólk hvívetna til að redda spotta,
kippa í næsta bíl, ýta með höndum og fótum, lána
mottur undir dekk, moka, grafa, spjalla, reka snoppuna
sameiginlega upp í élið og spá spekingslega fyrir um
vorið þótt allt sé á kafi í snjó. Gott mannlíf, samhygð
og æðruleysi kemur oft saman ef bíll festist í snjó.
Fjöldi fólks komst ekki milli landshluta um síð-
ustu helgi. Skírnarveislur, tónleikar, afmæli og annað,
vikulangur undirbúningur og tilhlökkun fór fyrir bí
vegna veðurguðanna. En flestir sitja heima þótt súrt sé
án þess að ana af stað út í óvissuna. 99,9% Íslendinga
vita að við veðurguði og ófærð verður ekki deilt. Hinir
sem um er fjallað í fréttum eru frávik.
Það er hins vegar eitt sem verður að ræða, þ.e. lífs-
hættuna sem ítrekað skapast við framúrakstur á vegum.
Það má stundum líkja því við rússneska rúllettu að aka
milli Reykjavíkur og Akureyrar þegar þessi frávik sem
lenda í fréttum, stressast upp sem aldrei fyrr og ætla að
græða nokkrar mínútur á langri leið með því að gefa
í botn og taka fram úr næsta bíl. Oft leyfir skyggni
ekki framúrakstur. Oft torveldar hálka og snjór slíka
fyrirætlun. Oft mega hinir hvatvísu gerendur þakka
öðrum ökumönnum að ekki fer illa. Stundum verður
þó ekkert við ráðið. Stundum leiðir illa ígrundaður
framúrakstur til fjörtjóns.
Umferðarstofa býr yfir mannafla og ríkisframlögum
sem ættu að gera stofunni kleift að hamra á hættum
framúraksturs. Þörf er á átaki, því eflaust er í mörg-
um tilvikum um skort á þekkingu ökumanna að ræða
fremur en að þeir ætli sér af ásetningi að ógna lífi og
limum borgara.
Akureyri vikublað sendir stuðnings- og samúðar-
kveðjur til aðstandenda konu sem lést í umferðarslysi
á Ólafsfjarðarvegi í síðustu viku. Ógæfusömum öku-
manni sendir blaðið einnig samúðarkveðjur, enginn veit
á þessu stigi hvaða málsbætur hann hefur. Aðgát skal
höfð í nærveru sálar en þessi mál eru ekki bara sárs-
aukafull einkamál heldur samfélagsmein sem verður
að ræða og bregðast við.
Með ritstjórnarkveðju
Björn Þorláksson
AÐSEND GREIN RAGNAR SVERRISSON
Óraunhæf glansmynd?
Í grein í blaðinu telur Friðleifur Ingi
Brynjarsson, verkefnastjóri hjá Vega-
gerðinni, að fyrirliggjandi tillögur að
enduruppbyggingu miðbæjarins sé
glansmynd sem gengur ekki upp. Hann
hefur áhyggjur af því að allt fari í bak-
lás í umferðinni í miðbænum ef farið
verður eftir tillögunum um breytingar
á Glerárgötu og hætta geti skapast. Í því
sambandi bendir hann á að Vegagerðin
hafi „það erfiða hlutverk að reyna að
samræma almannahagsmuni sérhags-
munum hvers sveitarfélags“. Þetta er
hárrétt hjá honum og þess vegna voru
umræddar tillögur um nýjan miðbæ
bornar undir þessa ágætu stofnun
eins og vera ber. Ef dæma má af grein
Friðleifs Inga, þar sem hann teflir fram
mörgum mælingum, tölum, stöðlum og
viðmiðunum, gæti saklaus lesandi dreg-
ið þá ályktun að Vegagerðin hafi fundið
það út að þetta nýja miðbæjarskipulag
væri gjörsamlega ófullnægjandi með til-
liti til almannahagsmuna. Svo er þó alls
ekki. Með fullri virðingu fyrir skoðunum
hans og framsetningu í máli þessu er
staðreyndin samt sú að Vegagerðin fór
yfir tillögu að breytingu á Glerárgöt-
unni á kaflanum milli Strandgötu og
Kaupvangsstrætis árið 2010, þegar þær
hugmyndir voru auglýstar, og samþykkti
þær fyrir sitt leyti. Nákvæmlega sama
útfærsla var lögð fram á ný í auglýstri
tillögu nema að þessi 300 metra kafli
er lengdur um uþb 200 metra norður
að Grænugötu. Það mun tæpast breyta
afstöðu Vegagerðarinnar þegar hún gef-
ur frá sér formlega umsögn fyrir lok
auglýsts frests sem gefinn hefur verið
til að tjá endanlega afstöðu til tillagn-
anna í heild sinni eins og skipulagslög
kveða á um.
Ekki ætla ég að skiptast á talnarun-
um við Friðleif Inga enda treysti ég
niðurstöðum í fylgigögnum með til-
lögunni sem voru unnar fyrir Vega-
gerðina af færustu sérfræðingum í
umferðarskipulagi og vegagerð með
tilliti til almannahagsmuna. Ég vil samt
minna á að við undirbúning og gerð
tillagnanna var almenn samstaða um
að hægja umferðina þegar bílar – eink-
um stórir – fara í gegnum miðbæinn og
áfram sína leið. Vilji íbúa stendur til þess
að miðbærinn verði skjólsæll, gott að-
gengi verði milli hans og sjávar og hann
almennt vel skipulagður fyrir gangandi
fólk. Ef breiðgata verður sett eftir endi-
löngum miðbænum, þar sem stórir og
smáir bílar geta blússað í gegn án þess
að hægja á sér, verður þessi draumsýn að
engu og gæti þess vegna breyst í martröð.
Bílar eru góðir til síns brúks en best
að hafa það á hreinu að þeir eru samt
ekki leiddir til öndvegis í þeirri tillögu
sem hér er til umræðu. Þar er fólk sett
í forgang og bílar verða að hægja á sér
eða hverfa ofan í bílageymslur ellegar
bílahús eins og nú er víðast gert með-
al annarra þjóða. Engu að síður er rétt
að huga vel að því hvernig best er að
haga umferð á slíku svæði og varast að
ekki skapist umferðarteppur eða hættur
sem hægt er að sneiða hjá. Góð umræða
um allt sem snertir umferðaröryggi er
því nauðsynleg. Þess vegna er framlag
Friðleifs Inga virðingarvert enda þótt
Vegagerðin hafi komist að annarri niður-
stöðu en hann og deili ekki með honum
sömu áhyggjum.
Að þessu metnu er ég ósammála því
að fyrirliggjandi nýskipan miðbæjarins
sé glansmynd og þar að auki hættuleg;
þvert á móti tel ég hana góða lausn sem
uppfyllir óskir bæjarbúa um vistvænan
og aðlaðandi miðbæ þar sem gott mann-
líf þrífst í friðsælu og öruggu umhverfi.
Höfundur er áheyrnarfulltrúi í
skipulagsnefnd Akureyarbæjar
... þvert á
móti tel ég
hana góða
lausn sem
uppfyllir
óskir bæj-
arbúa um vistvæn-
an og aðlaðandi
miðbæ ...
Ragnar Sverrisson
SNJÓKARLINN MUGGUR ER harla dapur og skítugur í bragði þessa dagana enda komið fram yfir jafndægur á vori og örlög hans ráðin nú þegar.
Völundur