Akureyri - 27.03.2014, Blaðsíða 24
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS
VI
KU
BL
AÐ
UM DAGINN OG VEGINN
SILJA BJÖRK
SKRIFAR
Njarðarnesi 8 - 603 - Akureyri - S:4624200 - car-x@car-x.is
Hvað getum við gert fyrir þig á þegar aðstæður á borð við þetta skapast ?
Tjónaskoðun - viðgerðir og málning -
Bílaviðgerðir -
Sala og viðgerðarþjónusta fyrir fjór, sexhjól og sleða -
Hafðu samband við CAR-X.
Bjóðum upp á tjónaskoðun,
réttingar, málningarvinnu og framrúðuskipti auk
þess almennar bílaviðgerðir
Car-X bifreiðaverkstæði - Njarðarnes 8 - 603 Akureyri- Sími 462 4200 - car-x@car-x.is
ER BÍLINN BILAÐUR OG ÍLLFÆRANLEGUR ?
VIÐ GETUM KOMIÐ HONUM Á VERKSTÆÐI FYRIR ÞIG
Er þetta útsýnið þitt?
...úúúps...
AÐ EIGA EÐA
EKKI EIGA
Um daginn las ég pistil eft-
ir unga konu sem langar ekki
að eignast börn. Fyrir hana er
barnleysi forréttindi. Skoðun
hennar er að börn og fjölskyldu-
líf sé heftandi enda langar hana
frekar að borða á fimm stjörnu
veitingahúsum en snæða morg-
unkorn í öll mál.
Viðbrögðin við skrifunum
voru vægast sagt dómhörð, sem
og pistillinn sjálfur. Það er eins
og konur skiptist í tvær fylk-
ingar – mæður og barnlausar
konur - sem rífa hvor aðra á
hol fyrir það eitt að vera ekki á
sömu skoðun um ágæti móður-
hlutverksins.
Umræðan er fáránleg og
rígurinn ofar mínum skilningi.
Mæðurnar verða uppveðraðar,
því hvernig getur þú verið alvöru
kona ef þú ert ekki móðir? Sú
skoðun er í besta falli barnaleg
og á heima á fornaldartímum.
Þá heyrist frá þeim barnlausu
að mæður séu vitlausar að kjósa
þennan staðlaða lífstíl fram yfir
frelsið sem fólgið er í barnleysi.
Hvað er skemmtilegt við það að
þurrka hor þegar þú getur ferð-
ast? Sú skoðun er líka barnaleg,
því hver segir að lífið stöðvist við
barneignir?
Konur, í alvörunni? Ég fæ
óbragð í munninn. Ætlum við
virkilega, eftir alla okkar bar-
áttu, að skilgreina verðugleika
hvorrar annarrar út frá barn-
eignum eða barnleysi?
Ættum við ekki, sem hugs-
andi konur í nútímasamfélagi,
frekar að beina orkunni að
alvöru vandamálum eins og
kynbundnu ofbeldi, launamun
og misrétti í stað þess að rífa
hvor aðra á hol fyrir mismun-
andi skoðanir okkar á bleiu-
skiptum?
Við verðum að standa saman
enda erum við allar konur, allar
jafn verðugar, glæsilegar val-
kyrjur – barngóðar eða barn-
lausar. a
la
g
er
h
r
ein
su
n
SU
M
A
R
D
EK
K
/ H
EILSÁ
R
SD
EK
K
ítölsk gæ
ðafram
leiðsla
m
a
r
g
a
r
s
t
Æ
r
Ð
ir
Á
m
ik
l
u
m
a
f
s
l
Æ
t
t
i
a
llt a
Ð
65%
a
fslÁ
ttu
r