Akureyri


Akureyri - 05.06.2014, Qupperneq 10

Akureyri - 05.06.2014, Qupperneq 10
10 21. tölublað 4. árgangur 5. júní 2014 Hrunin heilsugæsla helsta ógn bæjarbúa Eitt þeirra mála sem að-eins bar lítillega á góma í umræðunni á Akureyri fyrir kosningar var ófremdará- stand Heilsugæslustöðvarinnar í bænum, HAK. Á sama tíma og þúsundir dálkcentímetra í blöð- um og margar mínútur fóru í ljós- vakamiðlum í þrengingu 500 metra kafla á einni götu í kappræðum oddvita bitnar undirmönnun og óánægja starfsmanna á lífsgæð- um bæjarbúa. Starfsmenn HAK fá lægri laun en kollegar þeirra hjá ríkinu. Yfirmenn starfa sumir að- eins tímabundið og margt virðist í lausu lofti. Allt hefur þetta orðið til þess að bið eftir viðtali við heim- ilislækni tekur óratíma. Óánægja bæjarbúa er víðtæk og grunur leik- ur á myglusveppi í stöðinni. Oddviti Sjálfstæðisflokks á Akureyri segist aldrei hafa komið inn á vinnustað þar sem vinnuandi hafi verið eins slæmur og á Heilsugæslustöðinni á Akureyri, skömmu fyrir kosningar. DÝRKEYPT TILRAUN Skýringar ástandsins eru sagðar nokkrar, sumpart samþættar. Sér- fræðingar sem blaðið hefur rætt við nefna einkum tvær ástæður. Annars vegar sé heilsugæslan á Akureyri tilraunaverkefni þar sem bærinn rekur heilsugæslustöðina fyrir eigin reikning en á að rukka ríkið fyrir. Þetta samstarf þótti lukkast vel fram eftir árum, enda góð rök fyrir að heimaþjónusta verði betur notendastýrð með for- ræði innan héraðs en utan. Hins vegar er hermt að heilbrigðisráðu- neytið hafi um skeið notast við úrelt reiknilíkan sem vanmeti kostnað hjá HAK. Það skýri vaxandi halla og óánægju. 80- 100 milljónir vanti inn í reksturinn. PATTSTAÐA VEGNA SAMEININGAR Hin skýringin er sögð pattstaða í fjármálum stöðvarinnar síðan rík- isstjórnin hóf vinnu við sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi. Þrefað hefur verið um fjáveitingar milli bæjar og ríkis síðustu mánuði. Á sama tíma og hvorki gengur né rekur hefur skapast flótti úr herbúð- um starfsfólks hjá HAK. Starfsmenn una því ekki að vinna fyrir 10-12% lægri laun á HAK en hjá ríkinu eins og hjúkrunarfræðingur sem blaðið ræddi við hermir að sé staðreynd. Læknar séu fjórum færri á HAK en fyrir nokkrum árum. Á sama tíma hafi bæjarbúum fjölgað nokk- uð. A.m.k. tveir hjúkrunarfræðingar hafa flutt sig frá HAK yfir á Sjúkra- húsið á Akureyri síðustu mánuði. Halda mætti að það gæti hjálpað til að höggva á hnútinn að Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra er Akureyringur og fyrrum bæjarstjóri á Akureyri. Allt kemur fyrir ekki. Deilan er einnig sögð tengjast fyrri ákvörðun fyrrverandi velferðarráð- herra að efna til jafnlaunaátaks sem hafi skapað nýjan kjaramismun. HRÓPLEGT ÓRÉTTLÆTI Um 25 hjúkrunarfræðingar starfa á HAK. Kjarasamningar hjúkr- unarfræðinga sem starfa á HAK voru felldir á dögunum enda er 10- 12% munur á kjörum hjúkrunar- ÞAÐ GETUR ENGAN veginn talist ásættanlegt að bæjarbúar eigi á hættu að þurfa að bíða í tæpan mánuð eftir viðtali við heimilislækni á Akureyri, en dæmi eru um slíka bið. Stjórnmála- menn og starfsmenn segja brýnt að höggva á hnútinn sem fyrst. Bær og ríki deila um fjárveitingar. Völundur FRÉTTASKÝRING Björn Þorláksson Fjögurra vikna bið hefur skapast eftir tíma hjá heimilislækni. Starfsfólk HAK er með mun lægri laun en greidd eru hjá ríkinu. Fjóra lækna vantar. 100 milljónir þarf inn í reksturinn strax.

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.