Akureyri


Akureyri - 05.06.2014, Qupperneq 11

Akureyri - 05.06.2014, Qupperneq 11
5. júní 2014 21. tölublað 4. árgangur 11 fræðinga hjá HAK og hinna sem vinna alfarið hjá ríkinu að sögn starfsmanns. „Þetta er hróplegt óréttlæti,“ segir hjúkrunarfræðing- ur á HAK sem þó vill ekki koma fram undir nafni. Annar hjúkrunar- fræðingur segir að einn vandinn sé að framkvæmdastjóri yfir stöðinni hafi aðeins verið settur tímabund- ið eftir að farsæll forstöðumaður sagði upp starfi sínu í ágúst sl. Þá séu fleiri dæmi um að forstöðumenn séu lausráðnir og fjóra lækna vanti hið bráðasta. „Það eru að minnsta kosti tvær hérna sem hafa flutt sig frá HAK yfir til ríkisins síðastliðna mánuði. Hér verður frekari upp- plausn ef ekki kemur til leiðrétting.“ AFLEIT SAMNINGSSTAÐA Fyrir skemmstu birtist á vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga frétt um að framlenging og breyting á kjarsamningi félagsins við Sam- band íslenskra sveitarfélaga hefði verið felld í atkvæðagreiðslu. Þeir sem eiga aðild að þessum samningi eru um 40 hjúkrunarfræðingar á öldrunarheimilum Akureyrar og um 25 á HAK. Aðrir sem eiga að- ild að samningnum eru hjúkrunar- fræðingar á Heilsugæslustöðinni á Höfn í Hornafirði (2-3) og svo hjúkrunarfræðingar á öðrum öldr- unar-, dvalar- og hjúkrunarheimil- um víða um land sem rekin eru af sveitarfélögum. Af þeim sem eiga aðild að samningnum er sem sagt meira en helmingur á Norður- landi þegar Dalbæ og Hornbrekku er bætt við. Samningsstaða starfs- manna HAK er sögð afleit. NÝ MISMUNUN SKAPAST? Fyrir u.þ.b.ári fengu hjúkrunar- fræðingar sem starfa hjá ríkinu launahækkun/leiðréttingu vegna átaks sem nefnt var jafnlaunaátak. Það átak náði ekki til hjúkrunar- fræðinga sem starfa hjá sveitar- félögum. Því segja starfsmenn að átakið hafi skapað nýja mismunun, sem hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá sveitarfélögunum haf reynt að fá leiðrétta, án árangurs. „Svarið sem við fáum er alltaf það sama: Það eru ekki til peningar.“ Hjúkrunarfræðingahópurinn sem felldi á dögunum að fá lægri laun en kollegar þeirra hjá ríkinu fyrir sömu vinnu virðast því hafa nokkuð til síns máls að óréttlætið sé hróplegt. Einn viðmælandi blaðsins segir: „Það virðist því miður vera staðreynd að enn þann dag í dag - árið 2014 - standi Ak- ureyrarkaupstaður fyrir láglauna- stefnu. Sú stefna hefur löngum loð- að við Eyjafjörð en er tímaskekkja í dag að mínu viti. Þess vegna er það mér og fleirum hulin ráðgáta hvers vegna ráðamenn á Akureyri segja ekki einfaldlega við ríkisvaldið: Þið viljið ekki borga okkur það sem þarf til að reka HAK - og borga starfsfólki þar sömu laun og þið gerið. Sveitarfélagið hefur ekki efni á að borga með HAK áfram. Þess vegna megið þið bara gjarnan taka við keflinu hér og nú, þegar samn- ingnum lýkur!“ SAMNINGAR ÁN SKYNSEMI? Þótt reynslan af tilraunaverkefn- inu með heilsugæslustöðina hafi sumpart verið góð hafa forsvars- menn Akureyrarkaupstaðar kvart- að nær allan starfstímann und- an því að sveitarfélagið verði að greiða með rekstrinum árlega. Það þýðir á mannamáli að ekki hafi fylgt nægt fjárframlag frá ríkinu. Þrátt fyrir þetta samþykkti bæjar- stjórn Akureyrar nýverið að ganga til samninga við ríkið um áfram- haldandi þjónustusamning vegna HAK. Félagsmálaráð ályktaði fyrir skömmu þar sem segir: „Félags- málaráð Akureyrar furðar sig á þeirri stöðu sem uppi er varðandi starfsemi Heilsugæslustöðvarinn- ar í bænum. Fjárframlög ríkisins eru ekki í samræmi við framlög til annarra heilsugæslustöðva. Skortur á starfsfólki er viðvarandi og laun lægri en á sambærilegum stofnunum sem reknar eru af rík- inu. Þetta ástand er með öllu óá- sættanlegt. Félagsmálaráð krefst þess að heilbrigðisráðherra taki á málinu af þeirri festu sem honum ber. Viðurkenna þarf vandann og tryggja Heilsugæslunni á Akureyri nauðsynleg fjárframlög.“ FYRST AÐ SJÁ ALVÖRU MÁLSINS NÚNA Í umræðu um málið hefur ekki bor- ið á að það sé flokkspólitískt, enda hafa allir flokkar á Akureyri kom- ið að þessum samningi við ríkið á liðnum árum og áratugum. Akur- eyri vikublað bar ástandið innan HAK undir tvo pólitíska fulltrúa á Akureyri. Annar þeirra, Gunnar Gíslason oddviti sjálfstæðismanna, segist ekki hafa áttað sig á alvöru málsins fyrr en hann fór ásamt fleiri frambjóðendum á fund með starfs- fólki HAK skömmu fyrir kosningar. „Ég hef oft komið inn á vinnustaði þar sem hljóðið var þungt í fólki en sjaldan eins og þarna. Pirringurinn er slíkur að það eitt segir manni að grípa verði til tafarlausra aðgerða. Við þurfum að setja verulega fjár- muni þarna inn bara einn, tveir og þrír og kippa hlutum í liðin. Þetta er gjörsamlega ótæk þjónusta sem heilsugæslan er komin í. Það þýð- ir ekki að bíða lengur eftir því að eitthvað gerist af hálfu ríksvalds- ins. Það er ekki hægt að bíða lengur. Heilsugæsla er hluti af grunnþjón- ustu íbúa sem þarf að vera í lagi. Stundum þarf bærinn að taka af skarið og láta vaða. Nú er dæmi um slíkt,“ segir Gunnar. Oddviti sjálfstæðismanna segir að ef heilsugæslan eigi að standa jafnfætis hér og í Reykjavík þurfi 95 milljónir aukalega. Góð byrj- un væri ef Akureyrarbær legði nú þegar fram 45-50 milljónir til að fjölga læknum og bæta þjónustuna. „Það má vinna að því markmiði með ýmsu móti en grundvallaratriðið er að fjölga læknum og stytta biðtí- mann. Ég ef sjálfur verið heimilis- læknislaus í tvö og hálft ár og okkur á heimilinu finnst það mjög óþægi- leg staða. Svona þjónusta á að vera persónuleg, maður á að tengjast sínum heimilislækni persónulega.“ VITLAUST REIKNAÐ Dagur Fannar Dagsson sem hefur gegnt formennsku í félagsmála- ráði fyrir L-listann tekur undir með Gunnari um mikilvægi að- gerða. Dagur hefur skrifað greinar um vandann og setið marga fundi vegna vandans. Hann staðhæfir að reiknilíkan sem ráðuneytið notist við sé vitlaust. Það vantelji kostn- að af rekstri HAK og skýri hluta vandans. „ Aðalmálið í okkar augum er launamunurinn. Launamunur- inn er hornsteinn vandamála Heilsugæslustöðvarinnar á Akur- eyri,“ segir Dagur Fannar. NEYÐ EN ENGIN LAUSN? Óvíst er hvort nýr meirihluti mun bregðast við ákalli sjálfstæðis- manna að láta bæinn punga út tugum milljóna upp á von og óvon um fullar endurgreiðslur frá rík- inu. Allir viðmælendur blaðsins eru sammála um að nú orðið megi segja að neyðarástand ríki í málefnum HAK. Þá leiki grunur á að myglu- sveppur hafi hreiðrað um sig innan heilsugæslustöðvarinnar sem fyrir vikið kunni að vera heilsuspillandi starfsmönnum. Vegna reiknilíkansins sem for- maður Félagsmálaráðs á Akureyri nefnir hefur blaðið heimildir fyr- ir að Kristján þór Júlíusson heil- brigðisráðherra hafi viðurkennt í hópi fólks en þó ekki opinberlega að taka verði inn í reikninginn nýj- ar upplýsingar sem bendi til þess að fjármunir frá ríkinu séu vantaldir inn í rekstur HAK. Blaðið reyndi að fá viðbrögð frá heilbrigðisráðherra en án árangurs. a “Það þýðir ekki að bíða lengur eftir því að eitthvað gerist af hálfu ríks- valdsins. Það er ekki hægt að bíða lengur.”

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.