Akureyri - 05.06.2014, Blaðsíða 14
14 21. tölublað 4. árgangur 5. júní 2014
42 milljónum úthlutað
til menningarverkefna
Menningarráð Eyþings hefur úthlut-
að 42 milljónum króna til menn-
ingarstarfs á starfssvæði Eyþings.
Þetta er í tíunda sinn sem úthlutað er
verkefnastyrkjum og þriðja árið sem
úthlutað er stofn- og rekstrarstyrkj-
um (styrkjum sem alþingi veitti
áður) samkvæmt samstarfssamningi
um menningarmál milli mennta- og
menningarmálaráðuneytis, atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytis og
sveitarfélaga í Eyþing.
Menningarráðinu bárust samtals
130 umsóknir um verkefnastyrki þar
sem sótt var um rúmar 85,5 millj-
ónir króna og hljóta 66 verkefni
styrk að upphæð 29 milljónir króna.
Heildarkostnaður við verkefnin er
422,5 milljónir króna.
Auk þess hefur Menningarráð
Eyþings úthlutað fjármagni til stofn-
og rekstrarstyrkja (styrkir sem al-
þingi veitti áður) frá árinu 2012. Í ár
bárust 26 umsóknir, sótt var um 53
milljónir. Úthlutað er 13 milljónum
til 13 aðila á starfssvæði Eyþings.
Menningarráðið leggur jafnan
áherslu á að þau verkefni sem hljóta
styrki efli á einhvern hátt samstarf
og/eða samvinnu í menningarmál-
um á Norðurlandi eystra eða dragi
fram menningaleg sérkenni svæð-
isins. Áherslur við úthlutun þessa
árs eru meðal annars verkefni sem
stuðla að samvinnu atvinnumanna
í listum, listnema og leikmanna,
verkefni sem hvetja til samstarfs
einstaklinga, hópa, byggðarlaga
eða listgreina, verkefni sem efla
atvinnustarfsemi á sviði menn-
ingar, lista og menningartengdrar
ferðaþjónustu og verkefni sem fela
í sér samstarf við önnur lönd á sviði
menningar og lista. a
LOFTIÐ & LANDIÐ Laugardaginn 7. júní kl. 14.00 opnar Ragnar Hólm Ragnarsson sýningu í Populus tremula á Akureyri.
Ragnar hefur á undanförnum árum haldið nokkrar sýningar á vatnslitamyndum en að þessu sinni sýnir hann ný olíumál-
verk undir yfirskriftinni „Loftið & landið“. Sýningin er einnig opin á hvítasunnudag og annan í hvítasunnu kl. 14.00-17.00.
Aðeins þessi eina helgi. Um sýninguna segir Ragnar: „Ég hef aðeins verið að færa mig út undir bert loft með olíulitina en
það er örlítið þyngra í vöfum að þvælast með þá um landið en vatnslitina þótt hvort tveggja sé gríðarlega skemmtilegt. Á
sýningunni verða mestmegnis flunkuný olíumálverk, bæði stílfært landslag og minni abstraktmyndir.“
Phishing the Landscape
Nú stendur yfir sýning í Verksmiðj-
unni á Hjalteyri eftir Catrionu Shaw
og Clémentine Roy, Phishing the
Landscape. Sýningin er tilrauna-
útgáfa en í aðalhlutverkum eru 10
alþjóðlegir listamenn. Titillinn vísar
í “phishing”, blekkingarleik, þar sem
upplýsingum er hnuplað og síðar
notaðar í sviksamlegum tilgangi.
Verkin á sýningunni sýna afstöðu,
sem tengja má við “phishing”, en í
samhengi landslags, eins og með
yfirtöku og nýrri notkun á mann-
virkjum áður ætluð til annarra nota,
eða samtímalegum uppfærslum á
landslagi og umtaki þess. Skynjun á
eiginleikum, sögu og notkun þessara
staða er oft breytt, ekki einvörðungu
með annari notkun heldur einnig
með annari gerð notanda. Fyrrum
vinnustaðir verða tómstunda- og
listhús, stríðsminjar verða veiði-
græjur fyrir fiskimenn og leikvellir
fyrir börn, landslag er endurskapað
og lagfært með stafrænum aðferð-
um eða sérfræðilegum hugtökum. a