Akureyri


Akureyri - 05.06.2014, Blaðsíða 24

Akureyri - 05.06.2014, Blaðsíða 24
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS VI KU BL AÐ UM DAGINN OG VEGINN JÓN ÓÐINN WAAGE SKRIFAR Eru flugur, flær eða maurar að ergja þig og bíta? áhrifaríkur og án allra eiturefna. Allt að 8 tíma virkni. Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og hjá N1 www.gengurvel.is Ökumaðurinn ég Þegar ég ek bifreið þá fer geta mín mikið eftir geðsmunum. Stundum gef ég stefnuljós sem merki um að ég sé búinn að beygja. Stundum gef ég alls ekki stefnuljós af því að mér finnst öðrum ekki koma við hvert ég er að fara. Þegar mér liggur á þá geta ökumenn sem lufsast innan hraðamarka gert mig brjálað- an. Þegar mér liggur ekki á þá finnst mér fínt að aka rólega og njóta umhverfisins. Oft er ég svo utan við mig að ég veit ekkert hvert ég er að fara. Það finnst krökkunum mínum skemmtilegt. Þau bíða spennt að sjá hvert ég fer hverju sinni. Stundum legg ég bílnum og skil þau eftir, það finnst þeim toppurinn. En mig langar til að vera góður ökumaður. Góður ök- umaður sem að tekur tillit til allra í umferðinni. Það gengur ekkert of vel, en ég reyni. Um daginn var ég að aka út úr bílastæði. Ég horfði ekki nægilega vel í kringum mig og var næstum búinn að aka inn í hliðina á bifreið sem ók eftir götunni. Ökumaður bifreiðar- innar var kona og ég sá að henni dauðbrá við heimskuna í mér. Mér þótti þetta einlægt leiðinlegt og langaði til að biðja konuna afsökunar. Ég sá að hún lagði í bílastæði utar í götunni svo ég flýtti mér á eftir henni. Ég lagði aftan við bif- reið hennar, snaraðist út í flýti, kallaði til hennar og hljóp af stað í áttina að henni. Konan sá mig. Hún rak upp skelfingaróp og hljóp í burtu. a

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.