Fréttablaðið - 19.02.2015, Síða 54

Fréttablaðið - 19.02.2015, Síða 54
19. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42 Chris Rock (2005) Skaut á Jude Law Reyna átti að gera hátíðina beittari en áður og höfða til yngri áhorfenda með því að fá grínistann Chris Rock sem kynni. Tilraunin þótti ekki heppnast sem skyldi. Í opnunaratriði sínu gerði Rock grín að ríkisstjórn George W. Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, auk þess sem hann skaut á Jude Law og vildi meina að hann hefði leikið í öllum myndum sem hann hefði séð á árinu. Í viðtali fyrir hátíðina sagði Rock að Óskarinn væri „fíflaleg“ hátíð sem gagnkynhneigðir menn horfðu ekki á. Í fótspor frægra Óskarskynna Leikarinn Neil Patrick Harris verður í fyrsta sinn kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni sem verður haldin í 87. sinn í Los Angeles 22. febrúar. Harris hefur áður verið kynnir á Tony- og Emmy-verðlaunahátíðunum og verður gaman að sjá hvernig honum vegnar samanborið við þá sem hafa verið Óskarskynnar síðastliðinn áratug. Steve Martin og Alec Baldwin (2010) Tveir reynsluboltar Gamanleikarinn Steve Martin var kynnir Óskarsins árin 2001 og 2003 og endurtók svo leikinn með kollega sínum Alec Baldwin 2010. Frammistaða þeirra félaga þótti fín, sem kom ekki á óvart, enda um tvo reynslubolta úr Hollywood að ræða. Eins og kynna er siður pikkuðu þeir stjörnur úr áhorfendahópnum og gerðu létt grín að þeim, þar á meðal Helen Mirren, Zac Efron og Taylor Lautner. Jon Stewart (2006) Eins og hórmangari Stewart var þekktur fyrir pólitískan grínþátt sinn, The Daily Show, þegar hann var í fyrsta sinn fenginn til að kynna Óskarinn. Áður hafði hann tvívegis verið kynnir á Grammy-verðlaun- unum. Stjórnmál komu furðu lítið við sögu hjá Stewart. Grín hans fjallaði mestmegnis um Hollywood, þar á meðal brandari um að hórmangari væri „eins og umboðsmaður nema með betri hatt“. Stewart hlaut misjafna dóma fyrir frammistöðu sína. Ellen DeGeneres (2007) Samkynhneigður kynnir Ráðning DeGeneres markaði tímamót því hún var fyrsta manneskjan sem hafði komið út úr skápnum sem varð kynnir á Óskarnum. Áður hafði hún verið kynnir bæði á Grammy- og Emmy-verðlaunahátíð- unum. Grín DeGeneres þótti vel heppnað og náði hún góðum tengslum við stjörn- urnar í salnum. Ólíkt Jon Stewart og Chris Rock var grín hennar meinlaust og féll það víðast hvar vel í kramið. Jon Stewart (2008) „Sáttakynlíf“ á Óskarnum Stewart var í annað sinn fenginn til að kynna Óskarinn og þótti standa sig vel. Athöfnin var haldin í kjölfar verkfalls handritshöfunda í Hollywood og í opnunaratriðinu lýsti Stewart Óskarshátíðinni sem „sáttakynlífi“. Hann gerði grín að ákvörðun Bush-stjórnarinnar um að halda herliði sínu áfram í Írak og grínaðist með fjölhæfni leikkon unnar Cate Blan- chett. Hugh Jackman (2009) Söng með Beyoncé Ástralski leikarinn var fenginn til að vera kynnir í fyrsta sinn. Hann byrjaði á söng- og dansatriði til heiðurs þeim tilnefndu, sem var nokkuð í anda þess sem Billy Crystal, margreyndur kynnir, var þekktur fyrir. Hann fékk Anne Hathaway úr áhorf- endasalnum til að syngja með sér dúett og plataði einnig Bill Murray til að hefja upp raust sína. Síðar á athöfninni var hann í enn meira söngleikjastuði og tók lagið með Beyoncé Knowles. A. Hathaway and J. Franco (2011) Klæddur sem Marilyn Monroe Ákveðið var að yngja rækilega upp þetta árið í von um að höfða til yngri aldurshópa. Tveir leikarar voru samt aftur í hlutverkum kynna. Upphafsatriðið var í anda Billy Crystal en spjall þeirra Hathaway og Franco tveggja uppi á sviði á meðan á athöfninni stóð þótti heldur stirðbusalegt. Hathaway þótti betri kynnir en Franco, sem vakti eflaust mesta lukku þegar hann mætti í dragi, klæddur sem Marilyn Monroe. Billy Crystal (2012) Mætti í níunda sinn Eftir hina misheppnuðu tilraun til að yngja upp frá árinu áður var ákveðið að fara í allt aðra átt. Gleðigjafinn Billy Crystal var fenginn til að halda uppi stemningunni í níunda sinn eftir að gamanleikarinn Eddie Murphy hafði gengið úr skaftinu. Frammistaða Crystals var góð en allt var eftir bókinni. Byrjunaratriði hans var hnyttið, þar sem atriði úr The Help og Bridesmades, komu við sögu. Seth MacFarlane (2013) Umdeilt brjóstalag Maðurinn á bak við þættina Family Guy var fenginn til að kynna í fyrsta sinn. Ást MacFairlanes á gamla stílnum skein í gegn og gagnrýnandi Variety líkti honum við Billy Crystal, bara 25 árum yngri. Frammi- staða hans fékk misjöfn viðbrögð. Sumir töluðu um að hann hafi reynt að hneyksla fólk of mikið. Ellen DeGeneres (2014) Pitsa og heimsfræg sjálfsmynd Eftir sjö ára hlé var Ellen DeGeneres fengin aftur sem kynnir og þótti hún standa sig með prýði. Grínið var í öruggari kantinum og ekkert dans- eða söngatriði var í boði eins og árin á undan. Margir muna eftir því er hún pantaði pitsu fyrir stjörnurnar og enn fleiri þegar hún tók mynd af sér með hópi stjarna, sem varð í kjölfarið sú ljósmynd sem fékk flest endurtíst á Twitter í sögunni. Alls fékk hún rúmlega tvær milljónir endurtísta á meðan á athöfninni stóð. 1 8 -0 2 -2 0 1 5 2 1 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 D A -2 D 6 C 1 3 D A -2 C 3 0 1 3 D A -2 A F 4 1 3 D A -2 9 B 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.