Fréttablaðið - 19.02.2015, Side 62

Fréttablaðið - 19.02.2015, Side 62
19. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50 NAUTA TATAKI Nautatataki, chili, kóriander, kex TÚNA Kolaður túnfiskur, bonito-gljái beikon, sítrónugrassmajó, kex NÆTURSALTAÐUR ÞORSKHNAKKI Grillað toppkál, blaðlaukur, quinoa, beurre blanc HVÍTSÚKKULAÐI OSTAKAKA Ástaraldin, bakað hvítt súkkulaði, kókosís SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 40 · 101 REYKJAVÍK · KOLRESTAURANT.IS Borðapantanir í síma 517 7474 eða info@kolrestaurant.is NÝR SPENNANDI MATSEÐILL Brot af því besta: Hljómsveitin Kaleo er á leið í tón- leikaferð um Bandaríkin með ástr- alska tónlistarmanninum Vance Joy, en hann hefur notið gífurlegra vin- sælda í heimalandi sínu og víðar. „Það er mikil tilhlökkun í okkur. Við byrjum í Seattle 9. apríl og endum í Norfolk 11. júní,“ segir Jökull Júlíusson söngvari og gítar- leikari Kaleo. Sveitin kemur fram ásamt Vance Joy í Portland, Denver, Houston og Chicago en þó hafa ekki allar tón- leikadagsetningarnar verið gerðar opinberar. Vance Joy hefur gert það gott í Ástralíu og átti meðal annars eitt vinsælasta lag ársins 2013 þar í landi, lagið Riptide. Hann gerði samning við Atl antic Records árið 2013 en Kaleo gerði einmitt samning við sama fyrir- tæki á síðasta ári. Fyrsta plata Vance Joy, Dream Your Life Away, hefur fengið prýðisdóma víða um heim. Kaleo er nú stödd í London þar sem hún vinnur hörðum höndum í hljóðveri en hún flýgur vestur um haf í næstu viku. „Við verð- um aðallega í Bandaríkjunum á næstunni og verðum til dæmis á South by South West-hátíð- inni í mars,“ bætir Jökull við. Þá kemur sveitin einnig fram í Boston í mars á tónleikum á vegum Taste of Iceland. - glp Í tónleikaferð með Vance Joy Hljómsveitin Kaleo er á leið í tónleikaferð um Bandaríkin. Nóg um að vera. Í TÓNLEIKAFERÐALAG Hljómsveitin Kaleo hefur verið í London að undan- förnu að taka upp en er á leið til Bandaríkjanna í tónleikaferðalag með Vance Joy. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Gagnsæja korselettið sem amma mín gaf mér í jólagjöf hefur mikið tilfinningalegt gildi og er klárlega fimmtudagsflík. Unnur Birna Björnsdóttir, söngkona FIMMTUDAGSFLÍKIN Mikil aukning hefur orðið á því að stúlkur og ungar konur láti gata á sér geirvörturnar. Eig- andi stofu sem sér um slíkar aðgerðir segir að aðsóknin hafi aukist um 100 prósent á síðustu árum og að stúlkur allt niður í fjórtán ára gamlar láti gata á sér geirvörturnar. Hin 28 ára Snædís Snorradóttir lét gata á sér geirvörturnar fyrir þrett- án árum og segist sjá eftir því. „Ástæða þess að ég gataði á mér geirvörtuna er beinlínis rekjan- leg til uppreisnar gegn foreldr- um mínum,“ segir hún og bætir við: „Ég hugsaði þetta ekki til enda og var ómeðvituð um mögu- legar afleiðingar á brjóstagjöf.“ Stelpur og fitness-keppendur „Þetta er gríðarlega vinsælt hjá ungu stelpunum í dag og við erum að fá stúlkur allt niður í 14 ára inn á stofu til okkar í fylgd með foreldrum,“ segir Seselia Guðrún Sigurðardóttir, eigandi Tattoo og skart á Hverfisgötu, og bætir við að augljóslega sé um trend að ræða. „Undanfar- ið ár hefur aðsóknin aukist um 100% og aldur þeirra sem óska eftir þjónustunni verður sífellt lægri,“ segir Seselia. „Heilu dagarnir eru bókaðir í geirvörtugötun. Við þekkjum dæmi þess að heilu vinkvenna- hóparnir eru gataðir og partur af innvígsluferlinu er einmitt að láta gata geirvörtu,“ útskýrir Seselia. Hún bætir við að konur sem taki þátt í fitness-keppni sé stór hópur viðskiptavina sinna og telur að vinsældir götunar á geirvörtum tengist auknum vinsældum fitness-keppna hér á landi. Uppreisn gegn foreldrum Seselia segist jafnframt fullviss um að stúlkurnar sem sækja í götunina séu í ákveðinni upp- reisn gegn foreldrum sínum, sér í lagi þær yngstu. Þetta kemur heim og saman við sögu Snæ- dísar. „Lokkinn var ég með í mér í 2 ár eða þar til það rann upp fyrir mér að þetta væri ger- samlega tilgangslaust. Þetta var skraut sem fékk aldrei að njóta sín og gerði ekkert fyrir mig í ástarlífinu. Uppreisnin var sumsé allsráðandi.“ Snæ- dís segist sjá mikið eftir að hafa gengist undir götunina og bend- ir á að það sé eitt að vera í upp- reisn og annað að sætta sig við orðinn hlut þegar konur þurfa að höndla „að geta ekki gefið barninu ykkar brjóstamjólk út af ákvörðun sem þið tókuð í frekju- eða flippkasti“. gudrun@frettabladid.is Niður í 14 ára stúlkur láta gata geirvörtur Eigendur götunarstofa fi nna fyrir fj ölgun kvenna sem láta gata á sér geirvört- urnar. Keppendur í fi tness sækja mikið í slíkar aðgerðir, að sögn eins eigandans. SNÆDÍS SNORRADÓTTIR hefur áhyggjur af vaxandi vinsældum götunar og hvetur ungar konur til að velta fyrir sér tilgangi götunar og afleiðingum sem gætu hlotist af. BJÖRK TRYGGVADÓTTIR brjóstagjafarráðgjafi og ljósmóðir, segist ekki mæla með slíkri götun. „Það er svo sem ekkert sem segir að brjóstagjöf muni ganga illa eftir götun, en það er erfitt að útiloka áhrifin og verður hver að meta hvort áhættan sé þess virði,“ segir Björk og bætir við að helstu áhyggjur þeirra sem hyggjast láta gata geirvörtu ættu að snúast um sýkingarhættuna sem einkennir alla götun. SESELIA GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR eigandi Tattoo og skart, segir hins vegar að slík gagnrýni eigi ekki rétt á sér „Ég hef gatað geirvörtur í tuttugu ár. Ef áhrifin eru einhver ætti heilbrigðis- eftirlitið að vera fyrir löngu búið að banka upp á og gera við þetta athugasemd. Það hefur hins vegar ekki ennþá gerst.“ Vill að ungar stúlkur hugsi málið til enda Við þekkjum dæmi þess að heilu vinkvenna- hóparnir eru gataðir og partur af innvígsluferlinu er einmitt að láta gata geirvörtu. Seselia Guðrún Sigurðardóttir, eigandi Tattoo og skart á Hverfisgötu ➜ Brjósta- gjafarráðgjafi og ljósmóðir mælir ekki með því að ungar konur láti gata á sér geirvörturnar. SNÆDÍS SNORRADÓTTIR „Ég kannast við uppreisn fólks 14 til 16 ára, ég lagði mig alla fram í þeim efnum.“ SESELIA GUÐRÚN SIGURÐAR- DÓTTIR Hefur ekki fengið athuga- semd um skaðleg áhrif geirvörtugöt- unar. ➜ Kaleo kemur fram ásamt Vance Joy meðal annars í Seattle, Portland, Denver, Houston og Chicago. 1 8 -0 2 -2 0 1 5 2 1 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 D A -1 4 B C 1 3 D A -1 3 8 0 1 3 D A -1 2 4 4 1 3 D A -1 1 0 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.