Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.03.2015, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 09.03.2015, Qupperneq 4
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL „Þegar ég var í fangaklefa í Grindavík lá ég og vissi að líf mitt eins og ég þekkti það var búið. Að það sé hægt að fara svo óvarlega með opinbert vald er eitthvað sem ég hefði aldrei leyft mér sem lögreglu- maður. Frelsissvipting og svipting mannorðs er eitthvað sem þú getur aldrei farið of varlega með,“ segir Gunnar Scheving Thorsteinsson. Hann var ákærður fyrir að hafa flett nöfnum yfir 40 kvenna upp í upplýsingakerfi lögreglunnar, svo- kölluðu LÖKE-kerfi. Einnig var hann grunaður um að hafa deilt upplýsingum til þriðja aðila um einstakling sem sætti lögreglu- rannsókn. Á rannsóknarstigi gisti hann fangageymslu yfir eina nótt. Síðasta fimmtudag tilkynnti Ríkis- saksóknari svo að fallið yrði frá þeim þætti ákærunnar sem snýr að því að hafa flett upp nöfnum kvennanna. Gunnar segist síðan hafa fengið upplýsingar um það við aðalmeðferð málsins á föstu- dag að ekki yrði krafist refsingar yfir honum vegna þess ákæruliðar sem eftir stendur. Gunnar Scheving segist telja að á rannsóknarstigi hafi málið ekki einungis snúist um það að hafa flett konunum upp í kerfinu. „Heldur er það það sem situr eftir eftir ónýta rannsókn, þar sem ég var grunaður um miklu alvar- legri hluti,“ segir Gunnar. Hann var upphaflega ásakaður um það að hafa nálgast upplýsingar um konurnar og deilt þeim opinber- lega með vinum sínum. Gunnar bendir á að þær ásakanir gegn sér hafi birst í fjölmiðlum löngu áður en gefin var út ákæra. Garðar St. Ólafsson, verjandi Gunnars, segir að sá grunur að Gunnar hafi flett nöfnunum upp í Löke hafi ekki komið úr tölvukerfinu sjálfu, held- ur annars staðar frá. Gunnar hafi einfaldlega ekki flett upp nöfnum þessara kvenna. Gunnar segist hafa misst tiltrú á lögreglu og ákæruvaldinu fyrst eftir að málið kom upp, en það álit hafi áunnist aftur eftir atburði liðinnar viku. „En hvort ég vil starfa áfram í lögreglunni, þá er það eitthvað sem ég get ekki svarað strax. Ég hef helg- að líf mitt því að starfa sem lög- reglumaður og ég hef starfað í tíu ár í lögreglunni. Þetta var fram- tíðarstarfið mitt og ég hef mik- inn metnað fyrir þessu starfi. En að það sé hægt að svipta fótunum svona undan mér út af fölskum ástæðum, ég er ekki viss um að ég vilji aftur vera í þeirri stöðu,“ segir hann. Hann segist þó hvorki bera hatur eða illvilja til neins. Hvorki lögreglu, ákæruvaldsins eða ann- arra sem tengjast einkalífi hans. „En ég þarf að rétta hlut minn sjáanlega. Það sem skiptir mig miklu máli er að geta horft á sjálfan mig í spegli,“ segir hann. Hann muni því sækja rétt sinn, hvort sem það verði með því að krefjast refsingar yfir þeim sem brutu gegn honum eða sækja þær bætur sem hann eigi rétt á eða berjast fyrir starfi sínu. „Því ég ætla út í lögregluna á mínum for- sendum ef ég ætla út í lögregluna yfirhöfuð,“ segir Gunnar. Fékk aftur traust á lögreglu Ákæru gegn Gunnari Scheving Thorsteinssyni lögreglumanni var breytt áður en til aðalmeðferðar kom. Gunn- ar segir að LÖKE-málið hafi breytt lífi sínu. Hann er óákveðinn í því hvort hann fer aftur til starfa hjá lögreglu. HUGSI Gunnar Scheving Thorsteinsson hefur ekki ákveðið hvort hann fer aftur til starfa í lögreglunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 10% af öllum myndum, sem teknar hafa verið, voru teknar á síðustu 12 mánuðum. Þegar ég var í fangaklefa í Grindavík lá ég og vissi að líf mitt eins og ég þekkti það var búið. Ég hef helgað líf mitt því að starfa sem lögreglumaður og ég hef starfað í tíu ár í lögreglunni. Gunnar Scheving Thorsteinsson, lögreglumaður. RÚSSLAND Tveir menn eru grun- aðir um morðið á Boris Nemtsov, rússneskum stjórnarandstæð- ingi. Hann var myrtur í síðustu viku. BBC segir að annar mann- anna, Zaur Dadayev, hafi viður- kennt aðild að skotárásinni á brú í Kreml þann 27. febrúar síðast- liðinn. Dadayev og hinn maðurinn, Anzor Gubashev, eru báðir af tsjetsjenskum uppruna. Að öðru leyti er lítið vitað um þá. Mikil öryggisgæsla var þegar þeir voru færðir fyrir dómara í gær. Þrír aðrir menn hafa verið í varðhaldi í dag vegna rannsóknar málsins. - jhh Grunaðir menn frá Tjetjeníu: Tveir grunaðir um morðið SAMFÉLAGSMÁL Í dag hefst alþjóð- leg fjármálalæsisvika með því að Máni Mar Steinbjörnsson hringir bjöllunni í Kauphöllinni að morgni dags. Vikan er til þess ætluð að vekja börn og ungmenni til vitundar um fjármál. Í vikunni verður fjöldinn allur af fjölbreyttum viðburðum og er þetta í annað sinn sem hátíðin er haldin á Íslandi en alls taka um eitt hundrað þjóðir þátt í vikunni. Alþjóðlega fjármálalæsisvikan er haldin að frumkvæði samtak- anna Child and Youth Finance International. - sa Vekja ungt fólk til vitundar: Vika fjármála- læsis hafin Í FANGAKLEFA Dadayev er sagður hafa viðurkennt aðild að árásinni. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Lögreglustjórinn á höfuðborgar svæðinu vildi ekki tjá sig við Fréttablaðið eða frétta- stofu Stöðvar 2 um aðkomu sína að svokölluðu lekamáli. Hún sagðist raunar ekki á neinum tímapunkti ætla að tjá sig við fréttastofu Stöðvar 2 um þessi mál. Sigríður Björk sagði þó í viðtali við Björn Inga Hrafnsson í sjón- varpsþættinum Eyjunni að hún væri ekki á flótta undan fjölmiðl- um. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að Sig- ríður Björk Guðjónsdóttir, lög- reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefði brotið lög um persónuvernd og miðlun persónuupplýsinga með samskiptum sínum við Gísla Frey Valdórsson, fyrrverandi aðstoðar- mann innanríkisráðherra. Starfaði hún þá sem lögreglustjóri á Suður- nesjum. Heimildir fréttastofu Stöðvar 2 herma að mikillar óánægju gæti innan lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu með að Sigríður hafi ekki upplýst lögregluna um þessi sam- skipti meðan rannsókn lekamáls- ins var í gangi. Sigríður sagði við Eyjuna að hún hefði ekki vitað af því að upp- lýsingar um samskipti hennar við Gísla Frey hefðu ekki fylgt máls- gögnum til ríkissaksóknara. Það væri þó sennilega vegna þess að rannsóknin sneri að því að upplýsa hvernig minnisblaðið lak úr ráðu- neytinu en samskipti hennar og Gísla áttu sér stað um sólarhring eftir lekann. - gag Segist ekki hafa vitað að upplýsingar um samskipti sín við Gísla Frey hefðu ekki fylgt málsgögnum: Ætlar aldrei að ræða lekamálið við Stöð 2 Á LEIÐ ÚR VIÐTALI Sigríður Björk hafnar því að Persónuvernd hafi komist að þeirri niðurstöðu að hún hafi brotið lög. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Grøn Balance fæst í Krónu nni Hafðu það grænt og njóttu lífsins Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá STORMUR gengur enn og aftur yfir landið á morgun. Síðdegis má búast við stormi sunnan- og vestanlands með snjókomu í fyrstu en síðan slyddu eða rigningu. Annað kvöld verður stormurinn yfir landinu austanverðu. -1° 8 m/s 0° 8 m/s -2° 5 m/s 2° 11 m/s Vaxandi vindur, stormur gengur til norð-aust- urs yfi r landið. Strekkingur allra vestast annars hægari. Gildistími korta er um hádegi 7° 27° 8° 14° 18° 8° 13° 7° 7° 21° 13° 18° 19° 11° 12° 11° 9° 15° -2° 6 m/s 2° 2 m/s -2° 4 m/s -2° 7 m/s -2° 6 m/s -1° 7 m/s -6° 10 m/s 1° -2° -1° -2° -2° -1° -2° -2° -2° -4° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur MIÐVIKUDAGUR Á MORGUN 0 8 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :4 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 0 F -2 8 B C 1 4 0 F -2 7 8 0 1 4 0 F -2 6 4 4 1 4 0 F -2 5 0 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.