Fréttablaðið - 09.03.2015, Qupperneq 8
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
(2.120.968 kr. án vsk)
SAMFÉLAGSMÁL Fatlaðar konur eru
líklegri til að verða fyrir ofbeldi
en nokkur annar samfélagshóp-
ur samkvæmt tölum frá mann-
réttindaskrifstofu Reykjavíkur.
Bryndís Snæbjörnsdóttir, for-
maður Þroskahjálpar, segist ótt-
ast að minnkandi kröfur um fag-
mennsku í þjónustu við fatlaða
kunni að auka á vandann.
María Þorleif Hreiðarsdótt-
ir segir fyrst nú farið að taka
þessi mál alvarlega. Hún varð
fyrir kynferðisofbeldi þegar hún
starfaði á vernduðum vinnustað í
Kópavogi fyrir rúmum 20 árum.
Málið var aldrei kært til lög-
reglu. Hún segir að sér hafi verið
uppálagt að treysta manninum
sem var um sextugt og starfaði
sem leiðbeinandi á staðnum. Hún
hafi orðið afar hrædd og hraðað
sér heim án þess að stimpla sig
út. Maðurinn hafi síðar gengið á
hana og beðið hana um að þegja
yfir reynslu sinni.
Bryndís Snæbjörnsdóttir segir
lítinn skilning á ofbeldi gegn fötl-
uðum konum innan réttarkerfis-
ins. Málum hafi verið vísað frá
dómi þar sem þroskaskertar
konur þyki ekki nógu trúverð-
ugar og eigi erfitt með að muna
tímasetningar. Það sé hins vegar
ekki metið, að þær eigi erfiðara
með að spinna upp sögur. Þroska-
hjálp er nú í samstarfi við innan-
ríkisráðuneytið og dómstóla um
málið.
Bryndís segir mikilvægt að
aðgreina ekki fatlaða frá öðrum
heldur tryggja eðlilega blöndun
fatlaðra og ófatlaðra. Þá þurfi að
fræða starfsfólk og fatlaða um
áhrif kynferðisofbeldis og efla
vald fatlaðra og ábyrgð á eigin
lífi.
- þká / sa
Fatlaðir líklegri þolendur kynferðislegs ofbeldis:
Fatlaðir í meiri hættu
PÓSTUR Póstbíll kemur til með
að sinna þjónustu við íbúa á
afgreiðslusvæðum Ísland-
spósts við Vík í Mýr-
dal og á Kirkju bæjar-
klaustri.
Póst- og fjarskipta-
stofnun (PFS) hefur
samþykkt beiðnir
Póstsins um heim-
ild til að loka póstaf-
greiðslum á þessum
stöðum.
Mat PFS er að
þjónustan sem Íslandspóstur
ætlar að veita í stað póstaf-
greiðslu fullnægi gæðakröfum
laga um póstþjónustu, sem
og þeim skyldum sem
hvíla á fyrirtækinu sem
alþjónustuveitanda.
„Engin breyting er
boðuð af hálfu Ísland-
spósts varðandi útburð
póstsendinga á svæð-
inu. Breytingin felst
eingöngu í þeim þætti
starfseminnar er
varðar móttöku sendinga á sér-
stökum afgreiðslustað,“ segir í
umfjöllun PFS.
„Bréfberi/bílstjóri mun nú
taka á móti póstsendingum frá
íbúum og fyrirtækjum á þessum
stöðum með sama hætti og hann
hefur gert hjá íbúum utan þétt-
býlis um áraraðir.“
Bent er á að íbúar geti hringt
í bréfbera/bílstjóra og pantað
þjónustu á viðverutíma starfs-
mannsins, auk þess sem póst-
kassi verði á báðum stöðum. - óká
PFS heimilar Íslandspósti að loka pósthúsum í Vík og á Kirkjubæjarklaustri:
Bréfberi sinnir nú þjónustunni
BANDARÍKIN Átján mánaða stúlka
slapp með skrekkinn þegar bíll
sem móðir hennar og hún voru
í fór út af vegi og valt ofan í
ískalda á í Utah í Bandaríkjun-
um. Þrettán klukkustundir liðu
þangað til hún fannst og þá var
móðirin látin. Björgunarlið velti
bílnum á hliðina og fannst þá
stúlkubarnið í aftursætinu, en
móðirin var látin í framsætinu.
Stúlkan var samstundis send
á spítala. Hún var í hættu en
ástand hennar þó stöðugt. - jhh
Bíll endaði á hvolfi í kaldri á:
Móðir lést en
barn bjargaðist
VEÐUR 41 snjóflóð hefur fallið síð-
ustu tíu daga samkvæmt Veður-
stofunni. 20 þeirra hafa fallið á
Vestfjörðum og 15 sitt hvorum
megin við Eyjafjörðinn; á Trölla-
skaga og í Grýtubakkahreppi.
Töluverð hætta er á snjóflóðum á
þessum svæðum. Snjóflóðahætta
samkvæmt svæðisspá þarf þó
ekki að fela í sér hættu á snjóflóð-
um í byggð á viðkomandi svæði.
Víða hefur verið skafrenningur
til fjalla og varúðar skal gætt þar
sem snjór hefur safnast. - sa
Fjögur flóð á hverjum degi:
Enn töluverð
hætta á flóðum
BEÐIN UM AÐ ÞEGJA María Þorleif Hreiðarsdóttir varð fyrir kynferðisofbeldi á
vernduðum vinnustað. Hún segir fyrst nú farið að taka þessi mál alvarlega.
0
8
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:4
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
F
-5
0
3
C
1
4
0
F
-4
F
0
0
1
4
0
F
-4
D
C
4
1
4
0
F
-4
C
8
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K