Fréttablaðið - 09.03.2015, Síða 16
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVAVA FRIÐJÓNSDÓTTIR
frá Torfufelli,
lést þriðjudaginn 3. mars á hjúkrunarheimilinu
Lögmannshlíð, Akureyri. Útför hennar fer fram
frá Akureyrarkirkju föstudaginn 13. mars nk. kl. 13.30.
Sigurður Jósefsson
Guðrún Sigurðardóttir Loftur Sigvaldason
Soffía Árnadóttir
Árni Sigurðsson Björg Brynjólfsdóttir
Jón Hlynur Sigurðsson Sigríður Steinbjörnsdóttir
Bjarney Sigurðardóttir Pétur H. Ágústsson
Sigrún Lilja Sigurðardóttir Einar Svanbergsson
Hólmfríður Sigurðardóttir Haukur Tryggvason
Sigurður Torfi Sigurðsson Ragnhildur Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og mágur,
ÁRNI ARINBJARNARSON
tónlistarmaður,
Geitlandi 3, Reykjavík,
sem lést á heimili sínu sunnudaginn 1. mars,
verður jarðsunginn frá Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu miðvikudaginn 11. mars kl. 15.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á ABC hjálparstarf.
Dóra Lydia Haraldsdóttir
Arinbjörn Árnason Joanne Árnason
Pálína Árnadóttir
Margrét Árnadóttir
Aron James, Joshua Ben
Haraldur Haraldsson
Páll Haraldsson
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar
andlát ber
að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Hugrún Jónsdóttir
útfararstjóri
Rósa Kristjánsdóttir
útfararstjóri
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Katla Þorsteinsdóttir
lögfræðiþjónusta
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þökkum auðsýnda samúð, kveðjur og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
PÁLS STEINARS GUÐMUNDSSONAR
fyrrverandi skólastjóra,
Unnarbraut 10.
Unnur Ágústsdóttir
Katrín Pálsdóttir Gunnar Þorvaldsson
Lára Pálsdóttir Sveinn Kjartansson
Ingibjörg Pálsdóttir Gunnar Hermannsson
Guðrún Pálsdóttir Þórir Baldursson
Unnur Pálsdóttir Sigfús Bjarni Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku pabbi minn, afi, bróðir og mágur,
FRIÐRIK RAGNAR EGGERTSSON
vélfræðingur og yfirvélstjóri,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 25. febrúar
sl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 10. mars klukkan 15. Blóm
og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélagið
Landsbjörg eða Samtök sykursjúkra.
Ragna Hrund Friðriksdóttir
Alfreð Máni Ingason
Hafsteinn Eggertsson Mandy Baucum
Guðjón Ingi Eggertsson Steinunn Thorlacius
Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og
rithöfundur, er um þessar mundir að
leggja lokahönd á sögu Alþýðuflokks-
ins sem fagnar 100 ára afmæli á næsta
ári. Sjálfur á hann sjötíu ára afmæli í
dag. „Það kemur alveg flatt upp á mig
að vera orðinn sjötugur. Ég hef unnið
sjálfstætt svo að það verða engin venju-
leg starfslok. Maður er alltaf samur
og jafn og vinnur meðan maður hefur
heilsu og ánægju af því sem maður er
að gera,“ segir hann.
Guðjón hefur verið allt síðasta ár að
skrifa sögu Alþýðuflokksins og aðeins
lengur, að því er hann greinir frá. „Ég
er að keppast við að ljúka þessu. Það er
fyrirhugað að bókin komi út annaðhvort
í nóvember eða í febrúar á næsta ári.
Þetta er næstum 100 ára saga og mjög
skrautleg á köflum. Flokkurinn klofn-
aði fimm sinnum þannig að menn geta
rétt ímyndað sér átökin.“
Sagnfræðingurinn hefur farið í gegn-
um mikið af gögnum og einkabréfum
við ritun sögu flokksins. „Þetta er um
alls konar mál sem voru að gerast bak-
sviðs.“
Guðjón, sem hefur verið kennari,
blaðamaður og ritstjóri, hefur verið
sjálfstætt starfandi frá 1991. Eftir
hann liggur fjöldi ritverka og hefur
hann hlotið fjölmargar viðurkenning-
ar fyrir verk sín.
Með því eftirminnilegra sem hann
hefur gert á rithöfundarferlinum er
ritun ævisögu Einars Benediktssonar
skálds. „Það er nú aðallega af því að ég
fór að leita að honum erlendis. Ég var
meðal annars lengi í London. Ég bjóst
ekki við að finna mikið en þetta varð
alveg ævintýri. Ég elti uppi alls konar
þræði og það bar árangur. Ég hitti
meðal annars afkomendur manna sem
störfuðu með Einari og það var eins í
Noregi þegar ég var þar. Ég komst í
mörg gögn sem aldrei höfðu verið opin-
beruð áður. Maður var eins og Sherlock
Holmes.“
Guðjón er fæddur og uppalinn í
Reykjavík og kveðst eiginlega vera
Afl ar gagna á sama hátt
og Sherlock Holmes
Guðjón Friðriksson, rithöfundur og sagnfræðingur, sem er 70 ára í dag, segir ritun
ævisögu Einars Benediktssonar með því eft irminnilegra sem hann hafi gert. Hann ritar
nú sögu Alþýðufl okksins sem hann segir hafa verið skrautlega á köfl um.
Áður en Sinfóníuhljómsveit Íslands tók
til starfa höfðu ýmsar tilraunir verið
gerðar til stofnunar sinfóníuhljómsveitar
og má þar nefna Útvarpshljómsveitina
sem starfrækt var í nokkur ár. Einn aðal-
hvatamaður að stofnun hennar var Jón
Þórarinsson. Sínfóníuhljómsveitin var
stofnuð fimmtudagskvöldið 9. mars 1950
þegar 39 manna sveit, þar af 5 erlendir
tré- og málmblásturshljóðfæraleikarar,
hélt fyrstu tónleikana í Austurbæjar-
bíói. Aðgangseyrir var 20 krónur og á
tónleikunum var m.a. leikinn Egmont-for-
leikurinn eftir Beethoven og Ófullgerða
sinfónían eftir Schubert. „Hefur aldrei
áður heyrst svo stór og fullkomin íslenzk
hljómsveit hér,“ mátti lesa í blöðunum
og var mikið rætt um fagnaðarlætin
sem brutust út í lokin. Það var nokkrum
vandkvæðum bundið að tryggja hljóm-
sveitinni rekstrargrundvöll, þannig var
hljómsveitin rekin af Ríkisútvarpinu fram
að 1983 þegar lög voru samþykkt sem
tryggðu sjálfstæði hennar.
ÞETTA GERÐIST 9. MARS 1950
Sinfóníuhljómsveit Íslands stofnuð
Í REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNI Guðjón Friðriksson var með kaffi fyrir nánustu fjölskyldu í
gær í tilefni sjötugsafmælisins. Hann segist kannski hafa meira við þegar hann verður 75 ára.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
bæði Austur- og Vesturbæingur. Hann
hafi búið á Barónsstíg til 12 ára aldurs
en flutt þaðan með foreldrum sínum
á Holtsgötu. Á blaðamannsferlinum
skrifaði hann mikið um Reykjavík, að
því er hann greinir frá. „Árið 1985 var
ég ásamt öðrum sagnfræðingi ráðinn
til að skrifa Sögu Reykjavíkur. Davíð
Oddsson var þá borgarstjóri og ég kom
beint af Þjóðviljanum,“ segir hann og
það bregður fyrir kímni í röddinni.
ibs@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1497 Nikulás Kóperni-
kus gerir fyrstu skráðu
stjörnuathugun sína.
1685 132 menn af ell-
efu skipum farast í
snöggu áhlaupsveðri,
sem gengið hefur undir
nafninu Góuþrælsveðr-
ið. Skipin voru frá Staf-
nesi og Vestmanna-
eyjum.
1796 Napoleon Bonap-
arte giftist fyrstu konu sinni, Josephine de Beauharnais.
1831 Lúðvík Filippus Frakkakonungur stofnar frönsku útlend-
ingaherdeildina.
1862 Fyrsti bardagi á milli tveggja brynvarinna skipa, Monitor
og Virginia, er háður í Bandaríkjunum og lýkur með jafntefli.
1943 Bobby Fischer, bandarískur skákmaður og fyrrverandi
heimsmeistari í skák, fæðist.
1957 Jarðskjálfti að stærð 9,1 verður á Aleútaeyjum.
2007 Byggingu nýja Wembley-leikvangsins lýkur.
0
8
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:4
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
0
F
-1
E
D
C
1
4
0
F
-1
D
A
0
1
4
0
F
-1
C
6
4
1
4
0
F
-1
B
2
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K