Fréttablaðið - 09.03.2015, Side 46

Fréttablaðið - 09.03.2015, Side 46
9. mars 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 22 BAKÞANKAR Hauks Viðars Alfreðssonar THE GRUMP KL. 5.30 - 8 - 10.40 CHAPPIE KL. 10.20 ANNIE KL. 5.30 VEIÐIMENNIRNIR KL. 5.30 - 8 BIRDMAN KL. 8 - 10.30 ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 5.30 - 8 - 10.20 - ÍSL TEXTI THE DUFF KL. 3.30 - 5.45 CHAPPIE KL. 8 - 10.20 CHAPPIE LÚXUS KL. 5 - 8 -10.40 ANNIE KL. 5 HRÚTURINN HREINN KL. 3.30 FIFTY SHADES OF GREY KL. 10.20 KINGSMAN KL. 8 - 10.45 PADDINGTON KL. 5.45 - ÍSL TAL ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK siSAM Nicole Kidman Colin Firth Mark Strong FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA THE DUFF 5:50, 8 CHAPPIE 8, 10:30 STILL ALICE 5:50, 8 VEIÐIMENNIRNIR 10:10 HRÚTURINN HREINN 5:50 10:10 Wild tales 18.00, 22.20 Óli prik 18.00 Whiplash 18.00 Íslenska krónan 20.00 What we do in the shadows 20.00, 22.00 Blowfly park 20.20 The trip to Italy 22.00 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-20 Save the Children á Íslandi „Fyrirtækið 66°Norður bað mig um að gera sérstaka útgáfu af þessari húfu sem er bara seld yfir Hönnun- arMars,“ segir Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður sem hefur hannað nýja útgáfu af hinni klassísku húfu- kollu. Húfan hefur átt miklum vinsæld- um að fagna á síðastliðnum árum hjá hópi sem oft er kenndur við hip- stera, en fyrst eftir að hún kom á markaðinn, fyrir rúmum fimmtíu árum, prýddi hún einkum höfuð sjó- og vinnumanna. „Það þekkja náttúrulega allir þessa húfu, þetta er í rauninni húfa sem er búin að vera hjá okkur í ára- tugi og sjóarar og vinnumenn hafa verið með í gegnum tíðina,“ segir Fannar Páll Aðalsteinsson, mark- aðsstjóri 66°Norður. „Það var frekar auðvelt, svona þegar ég fór að spá í hvaðan 66°Norður kemur og uppruna húf- unnar þá langaði mig að vinna eitthvað með það og fór að skoða Reykjavíkurhöfn. Mynstrið er eigin- lega Reykjavíkurhöfn,“ segir Þór- unn þegar hún er spurð að því hvort það hafi ekki verið erfitt að taka svo þekkta hönnun og gera nýja útgáfu. „Ég vona að hún verði vinsæl,“ segir Þórunn glöð í bragði og bætir við: „Þetta eru þrjár nýjar týpur og eitt mynstrið er í tveimur litum.“ Mynstrið sem innblásið er af Reykjavíkurhöfn kemur í tveimur litum, ljósbleikum og bláum, en hin týpan er dökkblá í grunninn og er mynstrið sem prýðir hana vísun í Pyropet-kerti Þórunnar. Það er nóg um að vera hjá Þór- unni þessa dagana því auk húfunn- ar góðu er væntanlegt nýtt kerti í Pyropet-línuna. „Það er fugl sem er að koma núna í lok mars byrjun apríl, ég ætla að sýna fyrstu eintök- in af honum núna á HönnunarMars.“ Kertin nutu mikilla vinsælda þegar þau komu út á síðasta ári. Fyrstu kertin voru í formi katta og þegar kveikt er á kertinu birtist smátt og smátt beinagrind sem er jafnframt hið mesta stofustáss. „Fuglinn kemur í tveimur nýjum litum, mintugrænum og gulum,“ segir hún en fleiri dýrategund- ir eru væntanlegar í Pyropet-lín- unni. „Hann er töluvert minni, bara svona lítill smáfugl, eiginlega í raunstærð.“ Pyropet-kertin verður hægt að berja augum í verslunum víða og verður kveikt á einu kerti á hverjum degi HönnunarMars, en fuglinn kemur í sölu um mánaða- mótin mars-apríl. Húfurnar eru framleiddar í tak- mörkuðu upplagi og verða einungis seldar í verslun 66°Norður í Banka- stræti. gydaloa@frettabladid.is ➜ Hin klassíska húfukolla er nú framleidd í nokkrum útfærslum og hefur verið fáanleg í rúm fimmtíu ár. Húfan er bein skírskotun í uppruna fyrirtækisins sem stofnað var árið 1926 og hóf fram- leiðslu á vörum fyrir íslenska sjó- menn. Týpuhúfurnar vinsælu gerðar í takmörkuðu upplagi Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður hefur í nægu að snúast þessa dagana. HönnunarMars er að hefj ast og hún hefur hannað nýja útgáfu af vinsælli húfu 66°Norður auk þess sem nýtt Pyropet-kerti er væntanlegt. FLOTT HÚFA Í hönnunarferlinu leitaði Þórunn innblásturs í uppruna húfunnar og valdi sér Reykjavíkurhöfn. Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is Þetta eru þrjár nýjar týpur og eitt mynstrið er í tveimur litum. Söngvarinn sjarmerandi, Ed Sheeran, sendi móður sína, Imo- gen, með öll fötin, sem hann kom fram í á Grammy-hátíðinni, til Englands. Fötin gaf hann til góð- gerðarverslunarinnar St. Elizabet Hospice í Framlingham. Því eiga aðdáendur Sheerans kost á því að eignast fatnað sem hann kom fram í á þessari stóru hátíð. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sheeran gefur föt til góðgerðarmála, en í fyrra gaf hann átta poka af fatn- aði til góðgerðarmála. Fötin voru gríðarlega vinsæl og seldust fyrir rúmar 800.000 íslenskar krónur. Gaf Grammy- fötin til góð- gerðarmála GÓÐUR Ed Sheeran er svo sannar lega með hjartað á réttum stað. Hjartað missti úr nokkur slög í síð-ustu viku þegar ég las að bandaríski leikarinn Harrison Ford lægi milli heims og helju eftir flugslys. Betur fór en á horfðist og Ford slapp með skrámur og sært stolt. Dauði hans er engu að síður óumflýjanlegur og eftir rúm fjögur ár hefur hann náð 77,4 ára aldri — sem er meðalævilengd karlmanna í Banda- ríkjunum. Það er virkilega undarleg tilhugsun. EN fræga fólkið eldist víst eins og aðrir og í hverri einustu viku sé ég einhvern sem er „fáránlega mikið eldri en ég gerði mér grein fyrir“. Sharon Stone er 56 ára. Dana Carvey úr Wayne’s World verður sextugur á árinu. Steve Martin verður sjötugur eftir nokkra mánuði. Hvaða rugl er þetta? ÉG þekki ekkert þeirra persónulega en samt er ég með aldurskom- plexa fyrir þeirra hönd. Það að Brad Pitt verði 52 ára á þessu ári gerir mig nefnilega ansi gamlan. Hvert einasta ár sem bætist á Umu Thurman er sem tíu ár á mig sjálfan. Þegar ég var unglingur að reyna að pása myndina Jennifer 8 akkúrat þegar brjóstin á Umu sáust var hún þrettán árum yngri en ég er í dag. OG því eldri sem ég verð, því styttra er þar til ég verð ekki lengur til. Það verða haldin ótrúlega skemmtileg partí sem mér verður ekki boðið í, af því að ég verð ekki til. Það munu eiga sér stað ótrúlegar framfarir í vísindum og tækni sem heimsbyggðin öll mun njóta góðs af, nema ég, af því að ég verð ekki til. Það mun koma fram á sjónarsviðið einn sá allra magnaðasti tónlistarmaður sem sögur fara af en ég mun aldrei heyra í honum. Ég verð ekki til. Ég verð beina- grind og eyru mín orðin að mold. JÁ, það verður að viðurkennast að hug- urinn fór um ansi víðan völl þegar ég hélt að Harrison Ford væri svo gott sem allur. Sextugur Dana Carvey toppar samt allt. Andvaka 0 8 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :4 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 0 F -3 C 7 C 1 4 0 F -3 B 4 0 1 4 0 F -3 A 0 4 1 4 0 F -3 8 C 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.