Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Page 6
Varð ekki jörðin bölvuð
vegna þess að Adam hlýddi Evu?
Með menningarmálanefnd á söguslóðum
• Mormónapollurinn í klöppunum vestan við Torfmýri. í þessum polli voru
mormónar skírðir niðurdýfiningarskírn. Staðurinn var valinn svo langt frá
bænum vegna ofsókna sem þetta fólk mátti þola.
sinni mjög lét hann undan vilja
hennar, nauðugur. Trúbræður Þór-
arins rituðu honum bréf þar sem
þeir gagnrýndu þetta afturhvarf
hans og í bréfinu segir m.a. „Varð
ekki jörðin bölvuð, vegna þess að
Adam hlýddi Evu“.
Lá mormónatrúboðið niðri um
nokkra hríð en árið 1853 kom til
Eyja, danskur maður, Lorentsen að
nafni fékk þá trúboðið byr á ný.
Mormónarnir eingangruðust mjög
og fór svo að þeir hugðu á för til
fyrirheitna landsins, þar sem þeir
sáu fram á nýja veröld, sólskirtsland
með sælu þessa heims og annars.
Árið 1854 flytja svo fyrstu Vest-
mannaeyingarnir vestur um haf, til
Utah í Bandaríkjunum. Og allt til
ársins 1893 eru Vestmannaeyingar,
sem tekið höfðu mormónatrú, að
flytja til Vesturheims, flestir til
bæjarins Spanish-Fork í Utah í
Bandaríkjunum. Það var eitt trúar-
einkenna mormóna, að þeir geti
hvergi verið sælir nema í því eina
Iandi, Utah, sem þeir kölluðu, það
fyrirheitna, þar sem þeir höfðu
byggt Zionsborg.
Fólksflutningum til Vesturheims
lauk árið 1893, og höfðu þá 169
manns flutt þangað vestur. Má nærri
geta hve mikil blóðtaka þessir flutn-
ingar hafa verið Vestmannaeyjum,
sem þá töldu rétt um 400 íbúa.
í Utah vegnaði íslensku fólki yfir-
leitt vel, þótti duglegt og hagsýnt.
Og þótt nú séu liðin rétt eitt hundr-
að ár frá því þessum fólksflutningum
lauk, er enn ýmislegt sem minnir á
upprunann. Fólk heldur þar enn
uppá þjóðhátíðina, líkt og gert er í
Eyjum, meira að segja halda þau
sína þjóðhátíð fyrsta mánudag í
ágúst, en bara í einn dag, ekki þrjá
eins og við í Eyjum gerum. Og á
skilti utan á lögreglustöð í Spanish-
# Arnar Sigurmundssun var leið-
sögumaður gönguhópsins.
Fork, stendur á íslensku, „OPIÐ
FRÁ KL. 9-5
Þegar Arnar Sigurntundsson hafði
miðlað þessum fróðleik til göngu-
fólks, var haldið að Hundraðs-
mannahelli, sem er rétt norðan
Hamarsvegar, móts við efri Þórs-
völlinn. Gömul mið segja að finna
megi hellinn með því að láta Höfuð-
ið á Hana liggja við Halldórsskoru í
Dalfjalli og Hástein í Dönskutó í
Heimakletti. Hellirinn tengist mjög
Tyrkjaráninu árið 1627, þar er talið
að fólk hafið falist meðan Tyrkir
létu greipar sópa um Eyjarnar og
drápu og rændu fólki. í dag er hellir-
inn mjög sigin saman og langt frá því
að þar rúmist í dag eitt hundrað
manns, þótt einhverntímann hafi
verið pláss fyrir slíkan fjölda.
Göngunni lauk svo í Safnahúsinu,
þar sem menningarmálanefnd bauð
uppá veitingar.
• Áð við Hundraðsmannahelli. Innfellda myndin er af hellisupinu.
Árleg ganga menningarmála-
nefndar Vestmannaeyjabæjar, um
söguslóðir í Eyjum, var síðasta laug-
ardag. Gengið var frá Illugahelli að
Mormónapolli á Hamrinum með
viðkomu í Kethelli og síðan kíkt við
í Hundraðsmannahelli í bakaleið-
inni. Arnar Sigurmundsson sá um að
miðla fróðleik til göngufólks, um
þessa merku sögustaði.
Áður en gangan hófst flutti Unnur
Tómasdóttir, formaður menningar-
málanefndar stutt ápvarp og þakk-
aði Þorsteini Sigurðssyni, öldnum
Eyjamanni og félögum hans, fyrir
merkingar sem þeir hafa komið upp
á ýmsum merkum söguslóðum og
örnefnum Eyjanna. M.a. á þeim
stað sem hópurinn lagði af stað frá,
Illugahelli, er steinn með skildi og
nafni staðarins, sem þeir félagar
hafa komið fyrir.
Illugahellir er smáhellir í grjóthól
á gatnamótum Höfðavegar og III-
ugagötu. Eru hólarnir tveir, í þeim
syðri er hellirinn en sá nyrðri heitir
Illugaskip. Tvær sögur fara af nafn-
giftum þessara staða, önnur er sú að
Illugi væri landvættur og byggi í hell-
inum en hinn hóllinn væri nökkvi
hans. Hin sagan segir að Illugi Jóns-
son sem í eina tíð var prestur á
Ofanleiti, hafi látið gera hellinn, svo
gista mætti í honum, ef menn yrðu
nauðuglega staddir á leið upp fyrir
hraun, og beri hellirinn nafn hans.
Neðst í Bessahrauninu, á baklóð
húss Magnúsar Þorsteinssonar, var
numið staðar og litið á lítinn hellis-
skúta sem ber nafnið Kethellir. Sag-
an segir að hann hafi hlotið nafn sitt
af því, að áður fyrr, meðan hellirinn
var ekki svo alkunnur sem nú, hafi
þjófar haft þar sitt aðsetur.
• Göngugarpar mættir við Illugahelli, á mótum Illugagötu og Höfðavegar.
Munnmælasaga segir að Illugi nokkur prestur á Ofanleiti, hafi látið gera
hellinn, fyrir þá sem leið áttu uppfyrir hraun og gætu fengið sér þar nætur-
gistingu ef færið var slæmt. Innfellda er af steini sem Þorsteinn Sigurðsson
og félagar lians hafa komið fyrir við hellinn.
Vestur á Torfmýri var numið stað-
i ar við merkan sögpstað, Mormóna-
poll, þar sem mormónar voru á síð-
ustu öld, skírðir niðurdýfingarskírn.
Það var árið 1851, að til Eyja
komu nokkrir íslendingar sem
stundað höfðu nám í Kaupmanna-
höfn og tekið þar mormónatrú. Einn
þeirra, Þórarinn Hafliðason frá
Kirkjubæ, hóf trúboð í Eyjum við
lítinn fögnuð margra Eyjamanna,
meðal annars sóknarprestsins, Sr.
Jóns Austmanns sem skrifaði
biskupi bréf til að kvarta yfir þessu
háttarlagi Þórarins. Segir prestur í
bréfi sínu að „nú sjáist hann ekki í
kirkju, en sitji við sínar heilarugls
studeringar í einhýsi að sér læstu“.
Svo mikils virði þótti að bréfið.kæm-
ist nógu fljótt til viðtakanda, að séra
Jón sendi gagngert með það til bisk-
ups og borgaði sjálfur undir það, en
kostnaður við sendiferðina var um
10 ríkisdalir, eins og segir í sam-
tímaheimildum. En Þórarni varð vel
ágengt í sínu trúboði en þegar fyrstu
Eyjahjónin voru skírð til mormóna-
trúar, ætlaði allt um koll að keyra í
bænum.
Voru þau skírð í sjávarlóni í
klöppunum niður á Sandi sem kallað
var og fór skírnin fram að næturlagi.
En vegna þess hve mikill styr varð út
af þessu, voru skírnarathafnir síðar
meir færðar til fjarlægari staða, langt
út á Eyju. Annar mormónapollurinn
var nærri Ræningjatanga, hinn í
sjávarklettunum við Torfmýri.
Þórarinn Hafliðason lét síðar meir
af mormónatrú, þó ekki sjálfviljug-
ur. Bæði var að hann var mjög
ofsóttur af andstæðingum mormóna-
trúar og eins hitt sem þyngst vóg, að
kona hans hótaði að skilja við mann
sinn ef hann léti ekki af þessari villu
sinni. Oe bar sem hann unni konu
í ÞÓRSHEIMILINU
MEÐAL VINNINGA:
ÍKVÖLD KL. 20:30
Helgarferð til Reykjavíkur með Hjólaborð
Flugleiðum. Kaffikanna
Handryksuga Ryksuga
Lampi
Teppi
Handþeytari
60 tölur?
Geisladiskastandur
IÞROTTAFELAGIÐ ÞOR