Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Blaðsíða 14
 U október Rugnur Oskarsson, bæjariiilltrúi AlþýOubandala^sins skriiar: VIÐ LOKUM EKKI Á baksíóu síðustu Frétta er skýrt frá umræðu í bæjarstjóm um lokun vegar við Lyngfell. Þar má m.a.lesa að ég hafi flutt tillögu um að fresta lokun umrædds vegar þar sem erfitt gæti verið fyrir mig á bifreið minni að komast ferða minna um svæðið t.d. vegna snjóþyngsla. Hér fer blaða- maður Frétta vægast sagt afar frjálslega með staðreyndir málsins þar sem einn þáttur umræðunnar er slitinn úr samhengi við annan og út- koman verður villandi og röng. Eg geri hér af gefnu tilefni formlega þá kröfu til Frétta aó þegar skýrt er frá umræðu.n í bæjarstjóm sé það gert þannig að efnisatriði séu ekki slitin úr samhengi. Ætli blaðið að láta taka sig alvarlega sem ég tel víst að það vilji gera, verður það að temja sér vand- aðri vinnubrögð en þau sem umrædd umfjöllun blaðsins bar með sér á dögunum. Ég hef rætt málið við rit- stjóra blaðsins óg eftir það viðtal get ég ekki annað en verið bjartsýnn, í.þ.m. þangað til annað kemur í Ijós. Um hvað snýst vegamálið ? Það mál sem ég hef hér gert að um- talsefni snýst um það hvort eiganda Lyngfells á að leyfast að loka veg- inum frá garðlöndunum sunnan flugvallar í austur að gamla Stór- höfðaveginum um Kinn, Ef það leyfi verður veitt verður lokað þeim hring sem við Vestmannaeyingar förum gjaman þegar við fáum okkur sunnu- dagsbíltúrinn suöur að Brimurð og til baka. Þessi leið hefur verið opin í ára- tugi og er hin skemmtilegasta. Með lokun hennar væri enn verið að fækka akstursleiðum um Heimaey en þær leiðir em síst of margar. Hvaða rök mæla með lokun? í umræðum í bæjarstjóm kom það fram hjá þeim sem hlynntir em lokuninni að eigandi Lyngfells vill Frá kven- félaginu Líkn Frá starfsemi Slysavarnardcildarinnar Eykyndils. Starfsemi s.v.d. Eykyndils Líknarkonur em nú þeg,ir famar að undirbúa basar sem alltaf fylgir kaffisölunni 1. desember n.k. Það þarf margar hendur til starfa og þær mæta vel sem heimangengt eiga. Meðan Líknarhúsið er ekki tilbúið vinna þær að Hólagötu 40 eins og undanfarið. Þær mæta þar á mánudags- kvöldum kl. 20:00. Þær em meó saumavélar og önnur ulheyrandi verkfæri og margar em ótrúlega hugmyndaríkar, en auðvitað er hugurinn alltaf langt á undan og þess vegna þarf svo margar hendur ef vel á að fara. Þær félagskonur mæta sem geta. Auðvitað hella þær á könnuna og slaka á smá stund. (Fréttatilkynningfrá Líkn). Þakkir Félag eldri borgara þakkar kærlega Rannveigu Hreinsdóttur á Cafe Maria fyrir rausnarlegt kaffisamsæti fyrir félagsmenn sl. ftmmtudags- kvöld. Félag eldri borgara. Á síðasta aðalfundi Slysavarna- dcildarinnar Eykyndils varð sú breyting á stjórninni að Esther Valdimarsdóttir gaf t kki kost á sér áfram, en hún hafði starfað í stjórninni í 10 ár. Herdís Tegeder var kosin í hennar stað. Stjórnina skipa nú eftirtaldar konur: Októ- vía Andersen formaður, Bára Guðmundsdóttir varaformaður, Bára Magnúsdóttir gjaldkeri, Ingi- björg Andersen varagjaldkeri, Guðmunda Hjörleifsdóttir ritari, Halla Guðmundsdóttir vararitari, Herdís Tegeder meðstjórnandi. Á starfsárinu gengu 14 konur í Ey- kyndil. Fjáröflunarleiðum var vel tekið og erum við þakklátar fyrir það. Þær helstar vom: Vorsöfnun, merkjasala, blómasala, kaffisölur á Sjómanna- daginn, við útskrift Stýrimanna- skólans og á aðalfundi Utvegsbænda- félagsins, jólabasar, kökubasar, sala á minningarkortum, árbókum S.V.F.I. o.fl. Eykyndill gaf á starfsárinu gúmmí- mottur undir rólur, fyrir kr. 300.000, astmatæki og tölvu til skráningar á slysum ca. 200.000 kr. o.fl. Eftir aðalfundinn hefur Eykyndill gefið til Slökkviliðsins 34 boðtæki að verð- mæti kr. 533.320,-, tvö sjúkrarúm á Sjúkrahúsið og tvö sjúkrarúm á Hraunbúðir fyrir ca. kr. 500.000,-, til endumýjunar á vinnuflotbúningum fyrir Björgunarfélag Vestmannaeyja kr. 200.000,-, til skólabama vom gefnir endurskinsbórðar o.fl. Hjólareiðadagurinn var haldinn í maí, í samvinnu við lögregluna og gmnnskólana. í tengslum við hann vom seldir 100 stk. öryggishjálmar, sem vom niðurgreiddir af s.v.d. Ey- kyndli. Nú er starfið hafið að nýju eftir sumarið. Fyrsti fundurinn verður haldinn mánudaginn 18. október n.k. Saumanefndin er byrjuð af fullum krafti og er í Básum á mióvikudags- kvöldum og laugardögum. Það er mikið líf og fjör hjá okkur og em nýjar konur hjartanlega velkomnar í Eykyndil. S.v.d. Eykyndill þakkar öllum sem lagt hafa hönd á plóginn við slysa- vamarstarfið. F.h. s.v.d. Eykyndils. Októvía Andersen, formaður. Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, HULDU JÓHANNSDÓTTUR, frá Brekku Kolbrún H. Lorange Sigurður L. Magnússon Magnús Kr. Sigurðsson Tómas Sigurðsson Bjarki Þór Þrastarson Hulda Björk Þrastardóttir barnabörn og aðrir vandamenn Ragnar Óskarsson. geta farið um land sitt án þess að vegur hamli. Auk þessa hefur eigandinn í hyggju að rækta upp það land sem nú er vegu'r. Hvaða rök mæla móti lokun? Þau rök sem mæla móti lokun em fjölmörg. I fyrsta lagi er engin knýj- andi þörf fyrir landeigandann, s.s. .vegna skorts á beitarlandi að fá leyfi til að leggja veginn af. I öðm lagi er engin ástæða til þess að loka skemmtilegum hringakstri sem hundmð Vestmannaeyinga njóta, til þess eins að landeigandinn komist um án þess að þurfa að fara yfir lítinn veg. Slíkt er alkunna í sveitum landsins og þykir ekkert tiltökumál. í þriðja lagi hlýtur það að vera öryggis- atriði fyrir Póst og síma að eiga sem greiðasta aðkeyrslu aó stöðvarhúsi sínu við Sæfell. Sú aðkeyrsla yrði vemlega skert ef umræddum vegi yrði lokað. Auðvitað mætti nefna til fleiri rök en ég læt staðar numið hér. Komum í veg fyrir lokunina Á síðasta fundi bæjarstjómar var frestað að heimila lokun vegarins. Ef almenningur í bænum lætur hvorki í sér heyra um málið né ræðir það við bæjarfulltrúa verður veginum án efa lokað og þá stönd- um við einn daginn frammi fyrir orðnum hlut. Þessi skemmtilega akstursleið verður aðeins til í minn- ingunni. Við skulum því þrýsta á að veginum verði ekki lokað, heldur verði hann lagfærður þannig að við getum í góðri sátt við ágætan landeiganda ekið vegin okkar héðan í frá sem hingað til. Ragnar Óskarsson Athugasemd ritstjóra vegna skrifa Ragnars: Hvað er einn jeppi á milli vina? Það má vel vera að jeppanum hafi verið gert of hátt undir höfði í frétt- inni, en að öðru leyti var hún rétt. Málið snérist um lokun vegar við Lyngfell og frá því var greint. FRETTIR hafa talið það skyldu sína að greina frá því sem gerist á vettvangi bæjarstjómar og munu að sjálfsögðu halda því áfram. Þó jepp- inn hans Ragnars hafi orðið óþarflega fyrirferðamikill í greininni, og ekki aðalatriðið að þessu sinpi, verðaþað að teljast smávægileg mis- tök. A hverju ári birtast tugir og jafnvel hundruðir greina um bæjar- málin án athugasemda sem sýnir vönduð vinnubrögð og svo verður áfram. Ó.G. C FRÉTTIR) Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamaður: Þorsteinn Gunnarsson. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Aðsetur rit- stjórnar: Strandvegi 47 II. hæð. Sími: 98-13310. Myndriti: 98-11293. FRÉTTIR koma út alla fimmludaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Tuminum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Pinnanum, Kránni, Búrinu, Betri Bónus, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Eyjakaup, Eyjakjörog Söluskálanum. FRÉTTIR eru prentaðar í 1750 eintökum. FRÉTTIR em aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Landakirkja Sunnudagur 17.10 Kl. 11:00 Bama og fjölskylduguðsþjónusta. 14:00 Almenn Guðsþjónusta. Barnagæsla meðan á Guðsþjónustu stendur. Gideonsmenn mæta. Kaffikonsert kórs Landakirkju að messu lokinni. Fjölbreytt dagskrá og notaleg stemmning. Fermingartímar Kl: 20:30 KFUM&K unglingafúndur Mánudagur 18.10 kl. 10 Mömmumorgun. 12:10-13:00 Kyrrðarstund á hádegi. Orgeltónlist í kirkjunni 12:00-12:10. Súpa og brauð og heitt á könnunni á eftir. 17:30 TTT-fundur. 20:30 Tónleikar í safnaðarheimili kirkjun- nar í tilefni aldar ártíðar Páls Isólfssonar, tónskálds. I tilefni árs aldraðra býður söfnuður Landakirkju öllum eldri borgu- mm. Aðeaneur fvrir aðra er kr. 1000. Betel Fimmtudagur kl. 20:30 Biblíulestur. Um Heilagan anda: Hann mun ganga fyrir honum í anda og krafti Elía til aö snúa hjörum feðra til bama. Lúk. 1:17(2. hluti). Föstudagur kl. 20:30. Unglingasamkoma (13 ára og eldri). Laugardagurkl. 20:30. Bænasamkoma. (Beóió sérstaklega fyrir þeim er þess óska). Sunnudagurinn kl. 13:00 Sunnudagaskólinn, fyrir öll böm Kl. 16:30 Vakningarsamkoma. Lifandi boóskapur og gleóifylltur, nærir hjartaó. Hjartanlega velkomin í Betel. Áðventkirkjan Föstudagur: Samkoma ki. 20:00. Laugardagur: Kl. 10:00 Biblíurannsókn. Ungskátar (6-9 ára) kl. 14. Biblían talar S: 11585 Bahá'i sam- félaqið Opið hús að Kirkjuvegi 72B, fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 20:30. Almennt umræðuefni. Allir velkomnir. Heitt á könnunni. Minningarkort: Eftirtaldar sjá um sölu á minn- ingarkortum Krabbavarnar: Kristín s: 11872, Hólmfríður s: 11647, Guðný sími 13084 og Anna s: 11678.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.