Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Síða 7
•mmmmrmmmmmmmm
Fimmtudagurínn 14, október 1993
Lokahóf ÍIiV:
Friðrik
leikmaður
ársins
Lokahóf 2. flokks og mcistara-
flokks ÍBV var haldið sl.
laugardagskvöld á Muninn. Það
verður ekki annað sagt en að knatt-
spyrnumennirnir kunni að
skemmta sér og sínum því loka-
hófið var frábær skemmtun.
Leikmenn IBV voru duglegir að
gera góðlátlegt grín hver að öðrum
en knattspyrnuráðið fékk það
einnig óþvegið. Ymsar viðurkenn-
ingar voru veittar á lokahófinu og
hápunkturinn var valið á leik-
manni ársins í meistaraflokki. I»að
kom fáum á óvart að fyrir valinu
varð markvörðurinn snjalli,
Friðrik Friðriksson. FRÉTTA-
bikarinn sem efnilegasti leikmað-
urinn kom í hlut Bjarnólfs Lárus-
sonar, annað árið í röð. Það var svo
sannarlega glatt á hjalla á loka-
hófinu enda hafði ÍBV tekist annað
árið í röð, þegar öll nótt virtist úti,
Jögvan Tillestolt gerir Martin að
heiðarsborgara Færeyja.
HSH-flutningar:
Opnuðu af-
greiðslu á
mánudaginn
Á mánudaginn var brotið blað í
sögu vöruflutninga í Vestmanna-
eyjum þegar félagarnir, Henrý
Erlendsson, Sigmar Pálmason og
Hörður Ingvarsson, opnuðu vöru-
afgreiðslu að Skildingavegi 2. Þar
með eru aðilar í einkarekstri byrj-
aðir rekstur vöruafgreiðslu sem
kemur í stað Vöruafgreiðslu
Herjólfs hf. sem lögð var niöur í
sumar. Um leið hætti Herjólfur
aðild að flutningum með skipinu
sem voru í samstarfl við Eimskipa-
félagið.
Henrý, Sigmar og Hörður reka
sameiginlega, HSH vöruflutninga og
er opnun vöruafgreiðslunnar, einn
liður í að auka þjónustu við viðskipta-
vini. Hafa þeir yfir að ráða fjórum
vöruflutningabílum sem daglega eru í
ferðum milli Eyja og meginlandsins.
í Reykjavík eru þeir í samstarfi við
Landflutninga sem sér um að koma
pökkum og pinklum út um allt land
og ef um stærri sendingar er að ræða
f j m. -~*m 1 J
Verðlaunahafar á lokahófi ÍBV: Tryggvi Guðmundsson, Friðrik Friðriksson leikmaður ársins, Steingrímur
Jóhannesson, Herrriann Hreiðarsson og Bjarnólfur Lárusson.
að halda sæti sínu í 1. deild á
ævintýralegan hátt.
Jóhannes Ólafsson, formaður
knattspymuráðs IBV, bauð besti vel-
komna en á lokahófinu voru auk
leikmanna og maka og knattspymu-
ráðs, fulltrúar frá stuðningsaðilum
ÍBV, formenn ÍBV, Týs og Þórs,
tómstunda- og íþróttafulltrúi, fulltrúi
handknattleiksdeildar og Vestmanna-
eyjabæjar auk fleiri góðra gesta. I
máli Jóhannesar kom fram að rekstur
deildarinnar í sumar hefði gengið
ágætlega og verður hann væntanlega
réttu megin við núllið og það væri
mjög góður árangur út af fyrir sig.
Jóhannes var óánægður með það að-
stöðuleysi sem meistaraflokki er
boðió upp á og vildi að íþrótta-
hreyfingin og bæjaryfirvöld tækju
höndum saman og gerðu eitthvað rót-
tækt í málunum.
Síðan tók við veislustjóri
kvöldsins, Þorsteinn Gunnarsson, og
eftir lýsingu Bjama Fel á loka-
sekúndum leiks ÍBV og Fylkis og
unaðslegri þriggja rétta máltíð (þar
sem eftirrétturinn var „Magnaður
Martin“ að hætti Malla Færeyings)
hófust skemmtiatriði kvöldsins.
Knattspymuráðið hafði platað
nokkra leikmenn 2. flokks með síma-
gabbi sem voru leikin. Rauða Ijónið,
Yngvi Borgþórsson varð fyrst fyrir
barðinu á Lárusi og félögum þar sem
lögfræðingur krafði hann skaðabóta.
Óðinn Sæbjömsson sendill hjá Kaup-
félaginu fékk það óþvegió hjá
óánægðum kúnna og Ámi Gunnars-
son fékk óvænt símtal frá K.S.Í. Þá
var hrært saman í góðan kokteil
nokkrum góðum svömm en rúsínan í
pylsuendanum var þegar unnusta
Hermanns Hreiðarssonar hringdi í
hann og tilkynnti óvænt tíðindi.
Jögvan Tillestolt (Gísli Magnús-
son), fulltrúi færeysku landsstjóm-
arinnar mætti í Þjóðbúningi
Færeyinga og ávarpaói þessa virðu-
legu samkomu á færeysku og ætlaði
allt um koll að keyra á lokahófinu.
Hann hélt þar stutt erindi og gerði
Martin Eyjólfsson að heiðursborgara
Færeyja.
Martin og Nökkvi Sveinsson vom
síðan í aðalhlutverkum í vídeómynd
sem þeir félagar höfðu gert, með að-
stoð Sighvatar Jónssonar og Sigurðar
Bragasonar. I myndinni var gert góð-
látlegt grín að knattspymuráðsmönn-
uni og leikmönnum og fékk Jón
Bragi Amarsson fyrirliði heldur betur-
að kenna á því.
Einnig sýndi Martin myndband
sem var tekið upp í Þýskalandi fyrir
tveimur árum þegar hann dvaldi þar.
Martin lenti fyrir slysni í tísku-
sýningu þar sem voru sýnd íþróttaföt
og sundfatnaður og fór hann á
kostum, eins og hans er von og vísa.
Rútur og Hermann höfðu einnig
klippt saman myndband með uppá-
halds leikmanninum sínum, Jóni
Braga, sem hafði yfirskriftina The
Terminator.
Knattspymuráð IBV veitti
stuðningsaðilum viðurkenningarvott
fyrir framlag þeirra í sumar og Lárus
Jakobsson, framkvæmdastjóri knatt-
spymuráðs, afhendi Svanhildi
öuðlaugsdóttir og Svövu Johnsen
viðurkenningu fyrir að hafa borið
hitann og þungan af innrukkun og
kaffisölu á heimaleikjum ÍBV sl. sex
ár. Eiginkonur og unnustur leik-
manna, ásamt nokkrum mæðrum,
komu færandi hendi og gáfu leik-
mönnum gasgrill að gjöf fyrir ágóðan
af kaffisölunni í sumar. Einnig fylgdi
með svunta til Lámsar sem á að verða
yfirkokkur og það skilyrði fylgdi
einnig að þeim yrði að sjálfsögðu
boðið með.
I lokin voru afhent verðlaun fyrir
afreks sumarsins.
FRETTA-bikarinn sem efnilegasti
leikmaóur 2. og 3. flokks ÍBV hlaut
Bjamólfur Lárusson, annað árið í röö.
Hermann Hreiðarsson var kjörinn
besti leikmaður 2. flokks.
Tryggvi Guðmundsson hlaut verð-
laun sem markahæsti leikmaður
meistaraflokks en hann skoraði 12
mörk á sínu fyrsta ári í I. dcild.
Steingrímur Jóhannesson var
kjörinn efnilegasti leikmaður
meistarafiokks.
Hápunkturinn var valið á leik-
manni ársins í meistaraflokki. Friðrik
Friðriksson markvörður hlaut þann
heiður. Hann lék mjög vel á milli
stanganna í sumar og var t.d. valinn í
lið ársins á lokahófi I. deildar fyrir
skömmu.
Að lokahófinu loknu var öllum
boðið á dansleik með Todmobile á
Höfðanum.
Eigendur HSH-flutninga: F.v. Sigmar Pálmason, Kristrún Axelsdóttir, Hörður Ingvarsson, Margrét
Gestsdóttir, Henrý Erlendsson og Þóra Sveinsdóttir.
fara þeir sjálfir á staóinn, sama hvort höldum við áfram að keyra út vörum nýr möguleiki sem okkur fannst
sem það er á Vestfirði, Norður- eða og ná í þær ef óskað er en þama er vanta," sagði Henry.
Austurland. „Þú nefnir staðinn og við
sjáum um að koma hlutnum þangað,
bæði fljótt og örugglega," sagði
Sigmar í samtali við FRÉTTIR.
Þeir binda miklar vonir við vöruaf-
greiðsluna og telja að þar með geti
þeir þjónað öllum þörfum viðskipta-
vinanna. „Við höfum reynt að keyra
vörunum út daginn eftir að þær koma
en með tilkomu vöruafgreiðslunnar
getur fólk náð í hana samdægurs
þegar mikið liggur við. Auðvitað
FRAMSÓKNARMENN!
Aðaifundur Framsóknafélags Vestmannaeyja5
verður haldinn í Framsóknarhúsinu að Kirkjuvegi
19, föstudaginn 15. október '93 ki. 20:30.
Stiórnin
FRÉTTIR
Störf endurmetin
í starfskjaranefnd var sam-
þykkt að nokkur störf innan
bæjarkerfisins verði sett í starfs-
mat. Um er að ræða þrjú störf í
Sorpeyöingarstöð Vestmannaeyja,
eitt starf á Hafnarvoginní,
forstöðu Bjamarborgar og starf
húsnæðisfulltrúa.
Þá var samþykkt, að nokkur
störf, sem tckíð hafa breytingum,
verói endurmetin í starfsmati.
Um er að rœða forstöðumann
Ahaldahúss, yfirverkstjóra þjón-
ustu og vióhalds, yfirverkstjóra
véla og tækja og sjúkralið í
opinni öldrunarþjónustu.
Reynslusveitarfélög
Fyrir bæjarráði á mánudaginn
lá bréf frá félagsmálaráðuneyt-
inu þar sem fjallað er um
reynslusveitarfélög. Var óskað
upplýsinga og hugmynda frá
sveítarfélaginu um þetta tilrauna-
verkefni. En eins og fram hefur
komió í blaðinu hefur
bæjarstjóm sótt um að Vest-
mannaeyjar verði tilrauna-
sveitarfélag.
VORíEyjum '94
Bæjarráð fjuliaöi um bréf frá
handknattleíksráði ÍBV þar sem
Jeitaö er samstarfs við Vest-
mannaeyjabæ um sýninguna
VOR í Eyjum ‘94. Bæjarráö lýsti
si£ hlynnt eripdinu og vísaði
erindinu til atvinnumálanefndar.
VOR í Eyjum ‘94, veróur
vömsýning í svipuðum dúr og
handboltadeildin stóð fyrir voriö
1992 og þótti takast mjög vel.
KonukvÖld
Kvennaklúbbur Islands og
Skútinn .halda meiriháttar
skemmtun á föstudagskvöldið
15. 10. Boóió verður upp á alls-
konar uppákomur. Skemmtileg-
asta kona Vestmannaeyja verður
valin og sú sterkasta. Veglegir
vinningar í boði frá Íslandsflugí
og Holiday Inn.
Tískusýning frá Jos og Goldcn
laady. Besti fatafellir landsins
mætir. Hátíóin hefst kl. 20:30.
Karlmenn velkomnir eftir kl.
23:30.
Þessar upplýsingar gaf
Sigríöur Ævarsdóttir, formaður
Kvenna íslands.
Fífill
Myndin að ofan af fíflinum var
tekinn sl. láugardag inn 5
Herjólfsdaí en’þár voru brekkur *
iðagráénar og fíflar í hundraóa
tali. Blíðviðrið undanfarið virðist
hafa ruglað náttúruna í ríminu
því um miðjan október eiga allir
fíflar og önnur blóm að vera
löngu fallin.