Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Side 12
Vilja menn árangur
í íþróttum eða ekki?
-Vestmannaeyjar verða stórveldi í handbolta
og fótbolta ef við sameinum alla flokka undir
merki IBV, segir Stefán Jónasson.
Stefán Jónasson er mikill áhugamaður um íþróttir, sérstaklega hand-
bolta. Hér er hann með fyririiða ÍBV, Björgvini Rúnarssyni.
Stefán Jónasson er einn þeirra sem
hefur frá barnæsku fylgst með og
starfað að íþróttamálum í Vest-
mannacyjum. Hann er má segja
fæddur og uppalinn Týrari en í
seinni tíð hefur hann tckið meiri
þátt í starfi ÍBV, sérstaklega í
handboltanum. Þróun íþróttamála
í Vestmannaeyjum undanfarin
misseri eru Stefáni mikið áhyggju-
efni og hefur hann tekið þátt í
umræðum um þau af fullum krafti.
Niðurstaðan úr þessu spjalli og
heilabrotum Stefáns er mjög afger-
andi, hún er sú að leggja niður
íþróttafélögin Þór og Tý og að öll
handbolta- og fótboltastarfsemi
fari undir einn hatt, Iþróttabanda-
lag Vestmannaeyja. Vissulega er
þetta róttæk tillaga en Stefán
leggur áherslu á að þetta sé hans
persónulega skoðun þó fleiri séu á
sama máli.
Breytinga þörf til að
ná árangri
„Það má segja að þessi niðurstaða
sé samansafn margra brota sem ég
hef fengið úr sitt hverri áttinni.
Margir eru sömu skoðunar og ég. Ég
vil þó leggja sérstaka áherslu á að ég
er ekki talsmaður eins eða neins. Ég
set þetta fram í eigin nafni þó ég vilji
ekki eigna mér þessar hugmyndir
einn. Spumingin sem við stöndum
frammi fyrir er hvað við viljum.
Viljum við árangur eða ekki? Og ef
við viljum árangur kostar það
peninga og samstöðu sem fæst ekki
nema að Knattspymufélagið Týr og
íþróttafélagið Þór verði lögð niður og
eitt afl, ÍBV, fari með alla stjóm
íþróttamála í Vestmannaeyjum,"
sagði Stefán og vísaði m.a. til áran-
gurs Skagamanna í fótboltanum í
sumar, en á Akranesi búa heldur fleiri
íbúar en í Eyjum.
Stefán hefur sett upp skipurit sem
hann telur þess virði að verði skoðað.
Efst á skipuritinu er aðalstjóm ÍBV
og ráði hún framkvæmdastjóra sem
heyri beint undir hana. Ekki segist
Stefán sjá nokkuð því til fyrirstöðu að
formaður ÍBV og framkvæmdastjóri
sé einn og sami maðurinn. Þar fyrir
neðan koma meistaraflokkar fótbolta
og handbolta bæði í karla og kvenna-
flokkum. Verði sérstök ráð skipuð til
að sjá um rekstur hvers þeirra. 12. og
3. flokki sjái sérstök unglingaráð um
reksturinn og heyra þau bæði undir
ráð meistaraflokkanna og stjóm IBV.
í yngri flokkunum starfí foreldraráð í
tengslum við aðalstjóm. Aðalstjóm
sjái svo um að skipa í aðrar nefndir,
t.d. þjóðhátíðamefnd.
Bæjarsjóður kaupi
félagsheimilin
„Eitt helsta skilyrðið til að hægt
verði að leggja niður félögin er að
bæjarsjóður kaupi félagsheimili
beggja félaganna. Og losi það fólk
sem í dag stendur undir ábyrgðum,
vegna skulda sem stofnað var til á
meðan á byggingu þeirra stóð, undan
þeim um leið. Félagsheimilin yrðu þá
hluti af íþróttamannvirkjum bæjarins
og kæmi í hlut stjómar ÍBV að út-
deila tímum í öll húsin þrjú. Með því
næðist betri nýting á húsunum sem
kæmi öllum til góða. Þá kæmi af
sjálfu sér að búningsaðstaða við Há-
steinsvöll færi í Týsheimilið sem er
besti og ódýrasti kosturinn."
Næsta atriði sem Stefán kom inn á
var Þjóðhátíð, SHELLmót og
Pæjumót. I dag skiptast félögin á um
að halda Þjóðhátíð, Týrarar eru með
SHELL-mótið og Þórarar með
Pæjumótið. Hugmynd Stefáns er að
Þjóðhátíðin heyri undir stjóm ÍBV og
íkipi hún menn í framkvæmdastjóm
hennar ásamt ráðum meistara-
flokkanna. SHELL-mótið verði í
höndum nefndar sem skipuð verði af
aðalstjóm og fólki sem starfar með 6.
flokki og um Pæjumótið sjái nefnd
skipuð af aðalstjóm og þeim sem
starfa við kvennaknattspymuna í
yngri flokkunum.
Tekjumar sem fást af Þjóðhátíð
renni óskiptar til stjómar IBV og ef
einhverjar tekjur verða af Pæju- og
SHELL-móti gildi það sama, nema
að þeim verði safnað í sjóð sem hægt
er að grípa til þegar illa árar. Tekjum
af Þjóðhátíð og auglýsingum verður
svo skipt, eftir ákveðnum reglum,
milli ráða meistaraflokkanna og
unglingastarfsins og spuming hvort
ekki verður að taka tillit til þess hver
nær í hverja auglýsingu. Um leið fái
aðrar íþróttagreinar og unglingaráðin
ajlar tekjur af sölu vamings á Þjóðhá-
tíð. Þær fjáraflanir sem handbolti og
fótbolti hafa hingað til haft, s.s. Jóns-
messugleðin verði áfram á þeirra
hendi. „Að öðru leyti verða ráðin
fjárhagslega sjálfstæð en með þessu
er þeim tryggður ákveðinn fjárhags-
legur grunnur sem ætti að tryggja
rekstur þeirra og skapa þeim skilyrði
til að tefla fram liðum í fremstu röð.“
Árangur skilar
peningum í kassann
Stefán, sem er harður Týrari segist
virða það mikla starf sem unnið hefur
verið innan félaganna. „Þetta fólk
sem hefur starfað innan þeirra hefur
lagt á sig mikla vinnu og ekki þegið
laun fyrir. Þetta er harður kjami í
báðum félögum en menn verða að
horfast í augu við breytta tíma. I dag
em gerðar miklar kröfur til leikmanna
og samkeppnin um bestu mennina er
hörð. Allir vilja sjá árangur og hann
kostar peninga. Þegar lagt er upp með
handbolta- eða fótboltalið í byrjun
tímabils er alltaf erfitt að segja fyrir
um árangur. Þegar illa gengur
minnkar aðsókn og erfiðara verður að
safna auglýsingum og styrktaraðilum
fyrir næsta tímabil. Dæmið snýst við
þegar vel gengur og fleiri fást til að
vinna. Þetta er bláköld staðreynd
sem menn verða að horfast í augu
við. Það sýnir, að í raun vem höfum
við ekki efni á öðm en að vera í topp-
baráttunni því árangur skilar
peningum í kassann, bæði beint og ó-
beint," sagði Stefán og lagði þunga
áherslu á orð sín.
Sama segir hann að gildi að mestu
um sameiningu yngri flokkanna. Þó
er eitt athyglisvert atriði sem hann
bendir á; færri krakkar stunda hand-
bolta og fótbolta í dag en áður. „Ein
skýringin á því er meira framboð,
bæði af öðrum íþróttum og svo má
ekki gleyma sjónvarpinu og vídeóinu
sem alltaf taka meiri og meiri tíma
hjá blessuðum bömunum. í hverjum
árgangi um fermingu em kannski 20
tii 25 strákar sem hafa áhuga á fót-
bolta og handbolta og það sjá allir
sem vilja hvað það er fáránlegt að
skipta þeim í tvö lið. Ekki þarf að
hafa áhyggjur af kvennahand-
boltanum, það er þegar búið að
sameina hann og það hefur skilað
árangri en í kvennaknattspymunni
gildir það sama og hjá strákunum."
Sparnaður
Hagkvæmni og hagræðing af því
að sameina er augljós að mati
Stefáns. Nefndi hann sem dæmi
ferðalög og kaup á búningum og
öðmm búnaði. „Þegar búið er að
sameina verður betra að koma á
skynsamlegu fyrirkomulagi á ferða-
lögin. Við skulum gefa okkur að 3.
flokkur eigi heimaleik og 4. flokkur
útileik sama daginn. Þá er minnsta
málið að semja við það félag sem á að
keppa hér um að leigja saman vél
sem getur flutt 4. flokkinn upp á land,
náð í útiliðið og skilað svo báðum
hópum til síns heima um kvöldið. Ég
veit að Láms Jakobsson, vinur minn,
lagði mikla vinnu í svona skipu-
lagningu þegar hann vann á
íslandsflugi. Svo sparar það líka
mikla peninga að tefla fram einu liði í
yngri flokkunum bæði í ferða- og
þjálfarakostnaði og eins og staðan er í
dag höfum við ekki efni á öðm en að
leita hagkvæmustu leiðanna."
Hvað búninga og búnað varðar
segir Stefán að þar megi bæði spara
og auka tekjur með sameiningu. „Við
hljótum að ná hagstæðari samningum
þegar keypt er á alla sem stunda hóp-
íþróttir í Eyjum. Það getur hver
maður séð áð það er ekki sama hvort
keypt em 20 pör af skóm eða 200 og
það sama á við búningana. Svo hlýtur
að vera auðveldara að fá styrktaraðila
og ná í stóra auglýsingasamninga
þegar einn aðili leitar eftir þeim. Ég
og fleiri þekkja hvemig er aó leita til
aðila upp á landi sem þekkja lítið eða
ekkert til hvemig hreyfingin er byggð
upp í Eyjum. Sjálfur hef ég lent í því
að leita eftir auglýsingum eða beinum
styrkjum til fyrirtækja í Reykjavík.
Einu sinni gerði ég það fyrir hand-
boltadeild ÍBV og fékk þá það svar að
nýbúið væri styrkja ÍBV með 20
þúsund króna framlagi. Þar hafði
Láms vinur minn verið á undan mér.
Stundum em Þór og Týr að leita til
sömu aðilanna líka og þá verður að
segjast eins og er; þetta blessaða fólk
sem lendir í þessu hristir bara hausinn
og skilur hvorki upp né niður.“
Tími til breytinga
Stefán vill síðuren svo gera lítið úr
því starfi sem unnið er í félögunum
og ÍBV. „Auðvitað er þetta fólk allt
að gera góða hluti og markmið allra
er það sama en við emm komin að
endastöð. Menn verða að hætta að
tala og tala. Ég vil fara að láta verkin
tala og er ekki einn um þá skoðun.
Mér er spum: Em félagar í Þór og Tý
ánægðir með árangurinn? Ef þeir eru
það verður ekkert gert. Séu þeir ó-
ánægðir, er rétti tíminn til breytinga.
Mér persónulega líst illa á, finnst það
reyndar fráleitt, að handbolti og fót-
bolti renni inn í félögin. Af hverju
kann einhver að spyrja? Ég hef alla
tíð verið Týrari og ég hef meiri áhuga
fyrir handbolta en fótbolta. Við
skulum setja sem svo að handboltinn
færi inn í Þór; þá finnst mér að ég
yrði að segja skilið við handboltann
því ég gæti aldrei farið að vinna gegn
mínu félagi.Æf ég ætlaði að haldá
mig við handboltann yrði ég að vinna
með Þómmnum í öllu fjáröflunum og
yrði þar með orðinn Þórari. Það kæri
ég mig ekkert um. Ég vil ekki lenda í
þeirri aðstöðu að þurfa gera upp á
milli Þórs og Týs. Margir eru sama
sinnis og því sé ég enga aðra leið en
að við sameinumst öll undir merki
ÍBV.
Eins og þetta er í dag em ráðin
komin inn á borð hjá Þór, Tý og aðal-
stjóm ÍBV. Sem sagt í gjörgæslu í
fjármálum hjá þessum aðilum, mega
ekkert gera án þess að bera undir það
undir þá áður og ábyrgðin er hjá Þór
og Tý. I rauninni em því fjögur
apparöt aó grautast í sama hlutnum
og ráðin undir smásjá þriggja aðila,
sem í sumum tilvikum a.m.k., hafa
lítinn eða engan áhuga á því sem þar
er að gerast enda hafa menn kannski
nóg með sitt.
Ef þetta allt verður sameinað verða
Vestmannaeyjar aftur stórveldi í
íþróttum og IBV verður að keppa um
verðlaunasæti í bæði handbolta og
fótbolta í stað þess að berjast fyrir lífi
sínu í 1. deild ár eftir ár. Þessum
árangri getum við náð á tveimur til
þremur ámm því grunnurinn er fyrir
hendi og við eigum marga efnilega
stráka og stelpur sem em tilbúin að
halda uppi merki IBV í framtíðinni.
Ef ekkert gerist heyrir 1. deildin
sögunni til hvað IBV varðarog Vest-
mannaeyjar verða uppeldisstöð fyrir
stóra félögin upp á landi.
Það er verið sameina útgerðir,
banka og jafnvel bæjarfélög og því
spyr maður; hvers vegna ekki íþrótta-
félög? Að lökum vil ég að það komi
fram að ég hef ekki gleymt öðmm fé-
lögum og ráðum sem starfa innan
ÍBV, t.d. Golfklúbbnum, sund-
deildinni og fleiram en hvert fyrir sig
sitja þau fein að sinni íþróttagrein en í
fjárhagsdæminu verður að taka fullt
tillit til þeirra,“ sagði Stefán Jónasson
aö lokum.
Ó.G.