Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Side 15

Fréttir - Eyjafréttir - 14.10.1993, Side 15
 F:3*?¥¥¥*;:;:; rimintudagurmn I4. okto»)er tyyj y 1 illf Þessi hlutu verðlaun sem bestu leikmenn sumarsins hjá Tý. Frá vinstri: Hjördís, Aldís, Lind, Atli, Ingibjörn og Sævar. Lokahóf Týs Lokahóf yngri flokkanna hjá Knattspyrnufélaginu Tý fyrir knattspyrnusumarið 1993 var haldið fyrir skömmu. Þar voru veitt einstaklingsvcrðlaun fyrir bestu hegðun, mestu framfarir og besta leikmanninn hjá drcngjum og stúlkum. Það voru formaður Týs, Ólafur Týr Guðjónsson og formaður ÍBV, Sólveig Adólfs- dóttir, sem afhentu verðlaunin. Það var þétt setinn bekkurinn og mikil eftirvænting í Týsheimilinu þegar verðlaunaafhendingin fór fram. Verðlaun fyrir besta hegðun hlutu eftirtalin: 7. fl. dr. Ingibjöm Jónsson. 6. fl. dr. Sævar Ómarsson. 5. fl. kv. Anna Fríða Stefánsdóttir. Verðlaun fyrir mestu framfarir hlutu eftirtalin: 7. fl. dr. Halldór Grímsson. 6. fl. dr. Haraldur Sohan. 5. fl. dr. Leó Sveinsson. 4. fl. dr. Magnús Elíasson. 5. fl. kv-. Telma Tómasdóttir 4. fl. kv. Hjördís Jóhannesdóttir. 3. fl. kv. Birgit Jóhannsdóttir. Hápunkturinn var afhending verðlauna til besta leikmanns ársins í hverjum flokki fyrir sig. Eftirtalin hlutu verðlaunin: 7. fl. dr. Andri Ólafsson 6. fl. dr. Óttar Jónsson 5. fl. dr. Atli Jóhannsson 4. fl. dr. Páll Almarsson 5. fl. kv. Aldís Grímsdóttir 4. fl. kv. Lind Hrafnsdóttir 3. fl. kv. Hjördís Halldórsdóttir Einnig voru veitt verðlaun til Vestmannaeyjamótsmeistara Týs. " Að lokum snæddu krakkamir glæsilegar veitingar í boði kvenna- deiIdarTýs. Vestmannaeyjameistarar Týs í 7. flokki c. I X 2 - Getraunakeppni Týs/Þórs/Frétta Helsingborg-AIK Vto 2 2 Norrköping-Malmö 2 X T relleborg-Degerfors 1 2 Frölunda-Öster X X Arsenal-Man. City I 1 Chelsea-Norwich 2 X Coventry-Southampton 1 2 Liverpool-Oldham X 1 Man. Utd.-Tottenham 1 X Newcastie-Q.P.R. 1 I Sheff. Wed.-Wimbledon 2 X Swindon-Everton 2 2 West Ham-Aston Vílla 1 1 Ragnar FriðFmnur Finnbogason sigraði Jón Braga í fyrstu keppninni og er hann því kominn í 8 manna úrslit. En það eru feðgamir og rakaramir Viktor Ragnarsson og Ragnar Guð- mundsson sem keppa að þessu sinní. Raggi er gamalreyndur tippari, en Viktor hefur aldrei tippað áður. Þá er bara að sjá hvort byrjendaheppnin dugir á pabba. Þessi helgina hefst síðan innanfélags hópakeppnin og þeir sem hafa á- huga á að vera með mæta á laugardagsmorguninn milli kl. 10 og 13 inni í Týsheimili. Þar verða allar nánari upplýsingar veittar. Eínnig geta menn tippað á smærri og stærri kerfi, fengið upplýsingar um nýjustu stöðumar svo og úrslit í innbyrðisviðureignum liðanna. Látið sjá ykkur. I’orsteinn Hallgrímsson, íslandsnieistari í golíi: Fékk styrki frá OLIS, Flug- leiðum og Kvennadeild GV Á laugardaginn var Þorsteini Hall- grímssyni, Islandsmeistara í golfi, veittir styrkir, bæði í peningum og farmiðum, samtals að verðmæti rúm 200 þúsund krónur. Magnús Sveinsson, umboðsmaður OLIS, afhenti Þorsteini 70 þúsund krónur frá fyrirtækinu sem vióur- kenningarvott fyrir frækilegan árang- ur í sumar. Gunnar Már Sigurfinns- son, fulltrúi Flugleiða, kom líka færandi hendi. Afhenti hann Þorsteini tíu farmiða milli lands og Eyja. Nýtast þeir Þorsteini í keppnisferðirá næsta ári, en til þessa hefur hann þurft að greiða ferðalög úr eigin vasa. Að lokum fékk Þorsteinn 100 þúsund krónur frá Kvennadeild GV sem er afrakstur fimmtudagsmóta sem þær stóðu fyrir í sumar. Það kom fram hjá gefendum sú ósk að Þorsteinn keppi áfram undir merki Golfklúbbs Vestmannaeyja. Þorsteinn sagði að þau þyrftu ekki að óttast að hann væri á förum frá G.V. og þessar myndarlegu gjafir ættu eftir að auðvelda honum stunda íþróttina frá Vestmannaeyjum. Þorsteinn ásamt Gunnari Má Sigurflnnssyni, fulltrúa Flugleiða. 1. deild karla - ÍBV: ÍR 20-24 Stelpurnar töpuðu Kvennalið ÍBV tapaði fyrir Gróttu á Seltjarnarnesi í gærkvöldi, 23- 19, eftir að jafnt hafði verið í hálfleik, 10-10. IBV byrjaði með látum og komst í 5-1 en síðan tókst Gróttu að jafna fyrir leikhlé. Jafnræði var með liðnum framan af seinni hálfleik en Grótta var sterkari í lokin og sigraði 23-19. Judith Estergal var best Eyjastúlkna í leiknum, en annars léku Eyjastúlkur mjög illa. Mörk ÍBV: Sara Ólafsdóttir 5, Judit 5, Andrea Atladóttir 4, Iris Sæmundsdóttir 3, Sara Guðjónsdóttir 1 og Ingibjörg Jónsdóttir 1. Eftir þrjár umferðir hafa' ÍBV- stelpumar2stig. Lokahóf ÍB V-stúlkna 2. og meistaraflokkur kvenna IBV hélt lokahóf sitt í Þórsheimilinu sl. föstudag. Var glatt á hjalla og nutu stúlkurnar glæsilegra veitinga kven- nadeildar Þórs. Ekki voru veittar neinar viðurkenningar en stúlkurnar voru staðráðnar í að halda áfram uppi merki kvennaknattspyrnunnar í Eyjum. Á myndinni má sjá þennan fríða hóp ásamt þeim feðgum Jóhanni Sveini og Sveini Sveinssyni þjálfara. „Mjög svekktur“ Þrátt fyrir ágætis leik framan af í gær- kvöldi gegn IR, náði hið unga og efnilega lið ÍBV ckki að fylgja því eftir og misstu leikinn úr höndunum á.sér í lokin. ÍBV hafði yfir 19-17 þegar fimm mínútur voru til lciksloka cn IR skoraði sjö mörk í röð og tryggðu sér sigurinn. Það var fyrst og fremst stórleikur Björgvins Þórs Rúnarssonar og Viðars Einarssonar í markinu sem fleytti ÍBV áfram í fyrri hálfleik. ÍBV skoraði þrjú fyrstu mörkin og höfðu forystu allan fyrri hálfleikinn. Viðar varði átta skot í hálf- leiknum og Björgvin var illviðráðanlegur í sókninni og lék vamarmenn ÍR hvað eftir annað mjög grátt. ÍR-ingar voru mjög slakir í leiknum en samt tókst ÍBV aldrei að hrissta þá almennilega af sér. í hálfleik var staðan jöfn, 10-I0en ÍBV hafói einnig undirtökin framan af seinni hálfleik. En þá fór reynsluleysi ÍBV að segja til sín og í lokin hreinlega gáfust þeir upp og IR-ingar skoruóu hvert markið á fætur öðru og flest þeirra voru mjög ódýrt. Lokatölur urðu því 20-24 fyrir ÍR en sá sigur var of stór mióað við gang leiksins. Björgvin og Viðar voru bestu menn IBV og þá var Amar nokkuð sprækur, sér- staklega í vöminni. Hins vegar niunaði mikið um að Zoltan Belanyi var mjög slakur í leiknum og náói sér engan veginn á strik. Leikur liósins var ágætur framan af. Sérstaklega var vömin sterk og sóknar- leikurinn var ágætur. Þessi leikur var ágætis eldskím fyrir hina ungu og efni- legu stráka liðsins. Núna hafa þeir kynnst því að spila alvöru leiki og leióin hlýtur að liggja upp á við. Það er engin ástæða til að örvænta. Hins vegar mega strákamir ekki láta dómgæsluna fara svona í taugamar á sér. Þeir vom útaf hvorki meira né minna en 16 mínútur, þar af 8 fyrir mótmæli. Þegar blaðamaður leit við í búnings- klefa ÍBy eftir leikinn mátti heyra Sigbjöm Oskarsson þjálfara messa dug- lega yfir sínum mönnum. Hann var mjög óhress að missa þennan leik úr höndunum enda spiluðu ÍR-ingar illa. „Eg hef ekki mikið aó segja, ég er bara mjög svekklur. Við leiðunt allan leikinn og töpum þessu niður. Þetta var algjört andleysi, það vantaði allan kraft í stráka," sagói Sigbjöm við Fréttir eftir leikinn. Mörk IBV: Björgvin Þttr Rúnarsson 7/2, Amar Pétursson 5, Guðfinnur Krist- mannsson 3, Magnús Amgrintsson 2, Daði Pálsson I, Jóhann Pétursson 1 og Zoltan Bclanyi 1. Varin skot: Viðar Þorsteinn ásamt Magnúsi Sveins- Einarsson 13. synj> fulltrúa OLjS. s Iþróttasporið 4. flokkur Týs dreginn út úr íslandsmótinu Týrarar hafa ákvcðið að senda ekki 4. flokk drengja í íslandsmótið I handbolta vetur vegna manneklu. Að sögn Sigurgeirs Sigmundssonar, framkvæmdastjóra Týs, mættu ein- ungis þrír til fjórir drengir á^æfingar og þjálfaramir heföu ekki séð neinn tilgang í því að senda lið i íslandsmót við þannig aðstæður. Þess vegna hefði verió ákveóió aó draga 4. flokk úr keppni í vetur. Þeir fáu drengir sem æfóu handbolta í 4. flokkí Týs hafa nú allir gengiö yftrí Þór sem mun tefla fram sterku liöi í vetur. Týrarar fóru þess á leit við Þórara að sameina 4. flokk undir merki ÍBV í vetur, en Þórarar uróu ekki viö þeirri ósk. Vestmannaeyjameistaramótið í sundi Vestmannaeyjameistaramótið í sundi fer fram um helgina í Sundhöli Vestmannaeyja. Mótið hefst á föstudagskvöldið kl. 20:00 og á laugar- deginumkl. 15:00. Mótið er opið öllum sem hafa áhuga aö keppa í sundi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.