Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1993, Side 1
Leitiö ekki langt yfir skammt. Allar byggingavörur áeinum staö.
HUSEY
rr
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYJA
Garöavcgi XS - sfmi 11151
þar sem fagmennirnir versla.
20. árgangur Vestmannaeyjum 4. nóvember 1993 44. tölublað Sími: 98 - 13310 Myndriti: 98- 11293 Verö: 10O kr.
Um 300 Eyjamenn fara í verslunarferðir til Evrópu fyrir jólin:
15 milljónir úr bænum?
Gúnaóreykurinn í loðnuverksmiðju Vinnsluslöðvarinnar heyrir nú sögunni
til. Framkvcemdum við endurnýjun verksmiðjunnar er lokið og sl.fimmtu-
dag var hún reynslukeyrð oggekk það ágœtlega. A myndinni má sjá Sigurð
Friðbjörnsson verksmiðjustjóra (til vinstri) ásamt Boga Sigurðssyni, verk-
stjóra í F.E.S. sem var að skoða nýja búnaðinn hjá keppinautunum. Munu
þeir FES-menn ekki eiga sjö dagana sœla í vetur því nú sitja þeir einir að
peningalyktinni. Nánar er sagt frá endurnýjun loðnuverksmiðju
Vinnslustöðvarinnar á bls. 3.
Samkvæmt úttekt Frétta fara um
300 Eyjamenn til útlanda í
verslunarferðir fyrir jólin, eða milli
5 tii 6 prósent bæjarbúa. Gróflega
áætlað má gera ráð fyrir því að
Eyjamcnn versli alls kyns varning
erlendis fyrir þessi jól fyrir um 15
milljónir króna þannig að kaup-
menn í Eyjum verða af mikium
viðskiptum. I dag fór t.d. um 57
manna hópur á vegum félagasam-
taka í bænum í hópferð til Duhlin á
Irlandi.
Vinsælasta verslunarborgin í
Evrópu fyrir þessi jól er Dublin.
Samkvæmt upplýsingum umboðs-
skrifstofunnar í Éyjum eiga um 150
Vestmannaeyingar pantað þangað far
fyrir jólin eða hafa þegar farið. Aðrar
vinsælar verslunarborgir eru Glas-
gow, Eidinborg og Newcastle en að
sögn umboðsmanna má áætla að yfir
150 manns haldi þangað fyrir jólin í
skipulögðum hópferðum eða á eigin
vegum. Samtals eru þetta um 300
manns. Ef reiknað er með að hjón
versli að meðaltali fyrir um 100
þúsund kr. sem gera um 50 þúsund
kr. á hvem farþega, eyða Eyjamenn
um 15 milljónum króna í verslunar-
ferðum sínum til Evrópu fyrir þessi
jól.
Samkvæmt þcim upplýsingum scm
umboðsmenn létu blaðinu í té er
þróunin sú að þessum ferðum hefur
fjölgað en þær séu ekki sama kaup-
æðið og áður. Fólk er cinnig að fara
til að skemmta sér. Mun algengara er
nú að fólk fari í vikufcrðir í stað
helgarferða og þetta sé á kostnað
sólarlandaferða á sumrin sem hafa
minnkað töluvert. Svo virðist sem
fólk taki ekki út allt fríið á sumrin
heldur geymi hluta þess til að fara í
viku verslunarferð til Evrópu á
haustin. A landsvísu cr reiknað mcð
að um II þúsund manns fari í skipu-
lagðar haustferðir til helstu
vcrslunarborga erlcndis. Séu þcir
reiknaðir mcð sem fari á eigin
vegum, eru milli 4 til 5 prósent af
þjóðinni scm l'ara í slíkar vcrslunar-
ferðir þannig að Eyjamcnn skera sig
ckki mikið úr hvaó fjölda varðar.
Miðað við sömu forsendur eyða því
landsmenn á milli 500-700
milljónum króna í verslunarferðum
sínum fyrir þessi jól. Vikuferð til
Dublin kostar aðeins 32.930 kr. á
mann og er allt innifalið. Því má
'reikna með að um 300 Eyjamenn
borgi um 10 milljónir króna fyrir
sjálfarferðimar.
Sigurbjörg Axelsdóttir kaupmaður
segir að lítið sé við þessu að gera.
Verslunarferðir hafi tíókast í mörg ár
og ferðaskrifstofur geri út á þær.
„Aður fyrr voru það sjómcnn sem
sigldu erlendis. Þá tíðkaðist mun
meira en nú að fiska í skip og sigla
með aflann. Nú fer fólk unnvörpum
erlcndis þrátt fyrir erfitt árferði.
Landsbyggðarverslun virðist eiga
mjög eifitt uppdráttar. Erfitt er að
kcppa í tæplega 5000 manna bæ við
Reykjavík þar sem allt landið fer um
og verslar, á milli 100-200 þúsund
manns. Ef heldur fram sem horfir, þá
hvcrfur verslun af landsbyggðinni að
miklu lcyti og eftir veröur aðeins
verslun með brýnustu nauðsynjar,"
sagði Sigurbjörg.
Skákþing í Eyjum?
Skáksamband íslands hefur
farlð þess á lelt við Vestmanna-
eyjabæ að Skákþing íslands
1994 vcrði baldið í Eyjum.
Að sögn Páls Einarssonar,
bæjarritara er um landsliðsflokk
aó ræóa og er búist við um 15
þátttakendum ef af vcróur. „Það
var einungis verið að athuga
hvort bæjaryfirvöld hefðu áhuga
en það er stefna Skáksambands-
ins að dreifa skákþingunum um
byggóir landsins. Bæjarráðvísaói
erindinu til menningarmálanefnd-
ar og til gerðar fjáriiagsáætlunar
og er menningarmálanefndínni
falið aö kanna hvaö þetta komi til
með að kosta og hvort áhugi er
fyrirað halda mótið hér.“
Vinnslustöðin íhugar að leita til Færeyja eftir vinnukrafti:
Auðveldara að fá
Ragnar útilokar ekki sam-
starf við Sjálfstæ ðisflokkinn
fólk á skrifstofunau
Sighvatur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar
segir að erfitt sé að fá fólk í vinnu
þrátt fyrir atvinnuleysi og því komi
það vel til greina þegar veiði fer að
glæðast að leita til Færeyja til að fá
fólk í fiskvinnslustörf
„Okkar vantar um 25 manns í
vinnu, aðallega í snyrtingu og
pökkun. Það fæst ekkert fólk til þess-
ara starfa hér í Eyjum. Það er miklu
auöveldara að fá fólk á skrifstofuna
helduren í fisk. Ætli ástæóan sé ekki
sú að fólki finnst þetta hvorki spen-
nandi vinna né launakjör þótt þetta sé
ekki það versta sem í boði er. Við
ætlum fyrst aó leita innanlands eftir
starfskröftum um leið og veiði fer að
glæðast. Ef það tekst ekki kemur til
greina að leita til Færeyja eftir starfs-
fólki,“ sagði Sighvatur í samtali vió
Fréttir.
Ragnar Oskarsson, hæjarfull-
(rúi Alþýðubandaiagsins, útilok-
ar ekki samstarf við Sjálfsta.'ðis-
flokkinn að afloknum svcita-
stjórnarkosningum, í viðtali við
Vikublaðið 29. okt. sl. sem
Aiþýðubandalagið gefur út. Þetta
eru straumhvörf f stjórnmálum f
Eyjum því hingað til hafa skipst á
meirihluti Alþýðubandalags, AI-
þýðuflokks og Framsóknarflokks
annars vcgar og SjálfstæðLsflokks
hins vegar.
Ragnar segir i viðtalinu vió
Vikublaðið að möguleikamir séu að
breytast og ekki sé útilokað að fara í
samstarf með hvaða flokki sem er
ef samstaða er um málefni. Hann
bendir á aó á Akureyri starfi
Alþýöubandalagið og Sjálfstæðis-
flokkurinn f meirihluta. „Ekkert er
útílokað ef samstaöa næst um mái-
efni,“ segir Ragnar.
Ekkert formlegt samstarf hefur
veriö milli minnihlutaflokkanna á
kjörtímabilinu og segir Ragnar að
ástæðan sé sú að Alþýöuflokkurinn
hafi oft lagst á sveif meó meirihlut-
anum í ýmsum málum. Ennfremur
telur hann ekki líklegt að flokkamir
vinni sameiginlega að málefnaskrá
fyrir kosningar eins og staöan er í
dag. Hann vill þó ekki útiloka neitt.
Ragnar segist ekki vera oröinn
þreyttur á bæjarmálunum heldursé
gaman að vinna að þeim. Hann hafí
enn ekki tekið ákvörðun hvort hann
ætii aó halda áfram, það sé ekki
hans að ákveða annað en að gefa
kost á sér.
"I f
■n r-
■t r-
■t r"
„Þetta eru
þakkirnar sem i
maður fær“
-Sjá bls. 2
L.V. frumsýnir
Kardimommu-
bæinn á laugardag
-Sjá bls. 4.
CÍTÍ?
■ J L.
.J L.
Jón Kjartans-
son ómyrkur
r m-1 •
i mali
-Sjá bls. 8-9.
_______________j
Ljósmynda-
stofaóskars
30 ára
-Sjá bls. 6-7.
i
i
i
i
i
. j
TRYGGINGA
MIÐSTÖÐINHF.
FJ0LSKYLDU-
TRYGGING
FASTEIGNA-
TRYGGING
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR 0G SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 11535
VIÐGERÐIR 0G SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 13235
FAX13331
<>
BRUAR BILJÐ
Vetraráætlun Herjólfs
Alla virka daga
Frá Vestmannaeyjum: KL 08:15
Frá Þorlákshöfn: KL 12:30
Sunnudaga:
Frá Vestmannaeyjum: KL 14:00
Frá Þorlákshöfn: KL 18:00.