Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1993, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1993, Blaðsíða 6
30 ár síðan Óskar Björgvinsson setti upp Ijósmyndastofu í Eyjum: „Þetta er spurning um að ná sem bestu sam- bandi við kúnnann“ Flestir Vestmannaeyingar ef ekki allir hafa farið í myndatöku á Ljósmyndastofu Óskars. Það er alveg sama hvernig liggur á þér, Óskar fær þig til að brosa með kunnum frösum, bröndurum eða látbragði sem honum einum er lagið. í þessum mánuði eru liðin 30 ár síðan Óskar Björgvinsson setti á fót Ijósmyndastofu í Eyjum, í Kuða í Formannasundi. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Tæknin hefur breyst heilmikið og iiturinn komið til sögunnar þótt hann sé aftur að víkja fyrir svarthvítu myndunum. En Óskar er alltaf á sínum stað, hress í bragði að vanda. Blaðamaður heim- sótti hann á stofuna á Kirkjuvegi og eins og við var að búast kom maður ekki að tómum kofanum. Það hefur ýmislegt gerst á þessum rúmum 30 árum frá því Óskar hélt til Reykjavíkur í Ijósmyndanám „Ég hef alltaf haft áhuga á ljós- myndun. Pabbi var með útihús heima þar sem ég útbjó framköllunarað- stöðu. Þegar ég útskrifaðist úr gagnfræðaskóla 17 ára gamall fórum við í útskriftarferðalag til Skotlands. Það var mikið ævintýri en þá kom í ljós að alla vantaði passamyndir. Hörður Sigurgeirsson sem hér var þá með ljósmyndastofu treysti sér ekki til að taka myndimar á svona stuttum tíma. Það varð úr að ég tók allar myndimar. Þetta var seinni part dags. Ég tók myndimar utandyra og notaði túnið í Hábæ sem bakgrunn. Þegar búið var að mjólka kýmar var þeim hleypt út á túnið og ég tók ekkert eftir því. Bakgrunnurinn á síðustu mynd- unum var því ansi líflegur," segir Óskar og hlær eins og honum einum erlagið. „Upp frá þessu kviknaði áhugi minn á ljósmyndun fyrir alvöm og ég tók mikiö af landslagsmyndum hér í Eyjum á þessum tíma. Eftir gagn- fræðapróf sótti frændi minn um fyrir mig hjá Sigurði Guðmundssyni ljós- myndara'í Reykjavík s?m var eipn af þeim virtustu á sínum tíma og árið 1959 fór ég í höfuðborgina í ljós- myndanám. Sigurður var sá ljósmyndari sem útskrifaði flesta lær- linga en hann hafði þann háttinn á að sá lærlingur sem var að ljúka námi hjá honum tók að sér nýjan lærling. Sigurður kenndi mér á vélamar í byrjun en ekkert í sambandi við þessi mannlegu samskipti sem eru ^o mikilvæg í ljósmyndun. Einn daginn. sagði Sigurður: Óskar, nú áttu þú að taka bamamyndir. Ég fraus enda aldrei myndað bam áður og ég reyndi eins og ég gat. Ég hefði viljað eiga samtalið við bamið á segulbandi í dag, það var hálf skrautlegt. En myndimar vom ágætar. Ljósmyndari fyrir Þjóðviljann Ég var í þrjú ár hjá Siguröi og þetta var mjög skemmtilegur tími. Þetta var svo til eingöngu portret myndir en ég var einnig töluvert í blaðaljós- myndun. Sigurður var mikill vinstri maður og tók myndir fyrir Þjóð- viljann og sendi mig mikið í blaðaljósmyndun. Eitt atvik er mjög eftirminnilegt frá þessum árum. Þjóð- viljanum vantaði ljósmyndara og ég var sendur til Keflavíkur ásamt tveimur blaóamönnum en þá var McMillan forsætisráðherra Bretlands væntanlegur til íslands. Ég var aðeins 17 ára unglingur og þegar McMillan ásamt sendinefndinni steig út úr flug- vélinni ætlaði ég ryðjast fram til að ná góðri mynd. En troðningurinn var svo mikill að hinir ljósmyndaramir hentu mér til hliðar og náði ég engri mynd. Síðarvar fjölmiðlafólkinu sagt að það gæti farið inn í flugstöðina og fengið sér bjór á meðan við væmm að bíöa. Ég reyndi að semja við hina ljós- myndarana að fá myndir hjá þeim en þeir vildu ekki láta ljósmyndara frá Þjóðviljanum fá neina mynd. Þá kom maður frá íslensku sendinefndinni sem vorkenndi þessum unga pilti eittr hvað og bauð mér að koma með sér þar sem ráðherramir vom að ræða saman. Ég fékk leyfi til að mynda eins og ég vildi í 10 mínútur inni hjá ráðherrunum. Þannig náði ég lang- bestu myndunum og þegar hinir ljósmyndaramir fréttu þetta, snérist dæmið við. Ég seldi þeim myndir á góðu verði og græddi helling á þessu sem kom sér vel fyrir fátækan náms- manninn. Einu sinni átti að skíra frænda minn heima hjá sóknarpresti í Reykjavík, séra Arelíusi Nielssyni. Ég tók myndir og séra Arelíus spurði hvort ég hefði hefði mikið upp úr þessi. Ég sagði svo ekki vera, ég væri að læra og væri á prósentu af sveina- kaupi. Þennan dag vom þrjár skímir og tvær giftingar á heimili hans og séra Arelíus sagði að ég mætti bíða þama á bakvið gardínumar og hann skyldi síðan bjóða fólkinu upp á myndatöku. Ég seldi fólki myndimar og áður en ég vissi af var ég kominn á kaf í aukabisness sem kom sér vel. Óskar Björgvinsson, Ijósmvndari, á stofu sinni. Það vom allir tilbúnir til að aðstoða mann. A námsámnum leigði ég herbergi í ' Reykjavík og fékk góða aðstoð frá foreldrunum. En fátækan náms- manninn langaði í ferðalög og ég samdi við Ferðaskrifstofu Úlfars Jakobssen að spila á harmonikku í rútuferðum til að halda uppi söng. Rúta frá Úlfari kom til mín á hverjum laugardegi kl 2 og ég fékk fríar ferðir um allt land um helgar með því að spila á harmonikkuna." „Hans Petersen spurði hvort ég væri ekki blankur“ „Námið gekk mjög vel. Það var fjölbreytt og skemmtilegt og ég var fljótlega farinn að vinna sjálfstætt á stofunni. Við lærlingamir þurftum að finna út úr ýmsum efnum og við vomm oft að gera tilraunir inn á stof- unni og stundum vomm við næstum því búnir að sprengja hana í loft upp. Þegar ég var búinn að læra tók ég að mér stofu sem hét Hraðmyndir. Eigandinn þurfti að fara til Banda- ríkjanna í tvo mánuði og bað mig að sjá um stofuna sína á meðan. Ég var ákveðinn að fara til Eyja þar sem vantaði ljósmyndara. Hans heitinn Petersen, sá kunni maður, frétti af þessu og kallaði mig á fund til sín. Hann spurði hvort ég væri ekki blankur og vantaði aðstoð við að koma upp stofu í Eyjum. Ég jánkaði því og hann bauð mér að panta press- ur og myndavélar og sagði að ég mætti byrja að borga þegar ég væri kominn vel af stað með reksturinn. Þetta var mjög sérstakt svo ekki sé meira sagt. í nóvember 1963, fyrir réttum 30 ámm síðan opnaði ég stofu í Kuða í Formannasundi. Það var mikið að gera strax í byrjun. Þetta var virkilega gaman, allir svo jákvæðir Myndir scm Óskar Björgvinsson hefur tekið afhinum ýmsu Vestmannaeyingum síðustu árin:

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.