Fréttir - Eyjafréttir - 04.11.1993, Blaðsíða 3
Hluti af starfsmönnum loðnuverksmiðju Vinnslustöðvarinnar og þeirra
sem unnu að breytingunum.
Loðnuverksmiðja Vinnslustöðvarinn-
ar tekin til starfa eftir endurbætur
Gúanóreykurinn í loðnuverk-
smiðju Vinnslustöðvarinnar heyrir
nú sögunni til. Framkvæmdum við
endurnýjun loðnuverksmiðjunnar
er lokið og á fimmtudaginn var
verksmiðjan reynslukeyrð eftir
gagngerar endurbætur. Að sögn
Sigurðar Friðbjörnssonar, verk-
smiðjustjóra, gekk reynslukeyrsl-
an ágætlega. Ymsir smá hnökrar
hefðu komið í ljós en allt hefði það
verið mjög smávægilegt og væri
unnið að því að að geta opnað
verksmiðjuna formlega á morgun,
föstudag.
Miklar breytingar hafa verið
gerðar á verksmiðjunni og má segja
að það eina sem standi eftir af gamla
húsinu séu útveggimir. Að sögn
Sigurðar eru komnar tvær nýjar gufu-
þurrkur í stað gamallar eldþurrku, ný
skilvinda, gufuketill og eimingatæki.
Einnig var skipt um allar raflagnir og
röralögn. „Verksmiðjan er nú orðin
mengunarlítil. Hún á að vera reyklaus
og lyktarlaus þótt lyktin sem slík sé
til staðar, hún færist bara inn í hús.
Það tekur tíma að læra á þennan nýja
búnað en við förum að taka á móti
hráefni og bræða um leið og það
berst. Það er hins vegar lítið að hafa
núna því það er engin loðnuveiði."
Aðspurður hvort starfsmönnum
fækkaði við þessar breytingar sagði
Sigurður svo vera. „Það fækkar
heldur í mannafla. Það er stjómstöð
hér í húsinu og þægilegra við þetta að
eiga og því þurfum við færri til að
stjoma," sagði Sigurður að endingu.
Að sögn Sighvatar Bjamason,
framkvæmdastjóra Vinnslustöðvar-
innar, er kostnaðurinn við fram-
kvæmdir loðnuverksmiðjunna um
285 milljónir kr. sem er samkvæmt
kostnaðaráætlun.
VETRARSKOÐUN
NISSAN - SUBARU - SKODA - CHRYSLER - PEUGOT
Einnig allar aörar gerðir bifreiða. Það margborgar sig
að fara í vetrarskoðun því allt þetta er innifalið:
1. Skipt um kerti.
2. Ath. bensínsíu
3. Vélarstilling
4. Ástand loftsíu athugað
5. Viftureim strekt
6. Kúpling stillt
7. Olía mæld á vél og gírkassa
8. Rafgeymir mældur og rafpólar
hreinsaðir.
9. Frostþol kælivökva vélar mælt,
frostjegi bætt á ef með þarf.
10. Ástand pústkerfis athugað
11. Bremsur reyndar
12. Isvara bætt á rúðusprautur
13. Hurðalæsingar og lamir smurðar.
14. Silikonbornir þéttikantar á hurðum.
15. Loftþrýstingur hjólbarða mældur
16. Stýrisbúnaður kannaður
17. Hjólalegur athugaðar
18. Ástand rúðuþurrka skoðað
19. Ljósastilling
20. Reynsluakstur
21. Öryggisbelti prófuð
22. Mengunarmæling
Verð aðeins kr. 7.700,-, 4 cyl.
Heimiliskorthafar fá 15% afslátt - Betur verður vart boðið
Bifreiðaverkstæði Vm.
Flötum 27, S: 12782 & 12958
KARDIMOMMl JRÆRÍNN
Frumsýning:
Laugardaginn 6. nóv. kl. 20:30.
2. sýning: Sunnudaginn 7. nóv. kl. 14:00
3. sýning: Sunnudaginn 7. nóv. kl. 17:00
4. sýning: Þriðjudaginn 9. nóv. kl. 20:30
5. Sýning: Laugardaginn 13. nóv. kl. 17:00
Leikstjóri: Örn Ingi Gíslason.
Forsala aðgöngumiða frá kl. 17:00 föstudag og laugardag og frá kl. 13:00 á
sunnudag. Miðasala opnar annars klukkutíma fyrir sýningu.
Miðapantanir í síma 11940 ^
LE1KFÉLA6
A* CaVÍÍ f ESTIiVKiETJÁ
D
í
Kellogs Corn Pops
Kelloggs kornflögur 500 gr.
Kellogs kornflögur 750 gr.
Edenfeld Shampoo I Itr.
Uppþvottalögur I Itr.
Áður Nú
TS3. /72
255. 2/6
535 299
182
77
Kjarabót allt árið!
EYJAKAUP