Skessuhorn


Skessuhorn - 29.08.2007, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 29.08.2007, Blaðsíða 21
21 MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST Helln ar. Mynd ar leg mann virki fylgja hót el inu eins og sjá má á loft mynd Mats Wibe Lund. Kvik mynda gerð í Flat ey Und an far ið hef ur dval ið í Flat­ ey hóp ur kvik mynda gerð ar manna að störf um. Þeir hafa vak ið nokkra at hygli, enda fer það ekki fram hjá nein um í því litla sam fé lagi sem er í eyj unni þeg ar hóp ur fólks vals ar um með tæki og tól til kvik mynda gerð­ ar. Hóp ur inn hef ur ver ið nokk uð í frétt um í sum ar og það vakti nokkra at hygli þeg ar kom ið var upp GSM sendi svo far síma sam band næð ist í Flat ey, mun fyrr en á ætl an ir gerðu ráð fyr ir. Þetta fór mis jafn lega fyr­ ir brjóst ið á fólki og kvört uðu sum­ ir yfir því að frið ur inn sem eyj an er hvað fræg ust fyr ir væri úti. Það er Baltasar Kor mák ur sem leik stýr ir kvik mynd inni sem ber heit ið Brúð gum inn. Hann og Ó laf­ ur Eg ill Eg ils son skrif uðu hand rit ið sem bygg ir á leik rit inu Ivanov eft­ ir rúss neska skáld ið Ant on Tsjekov. Ó laf ur leik ur einnig eitt af að al­ hlut verk un um, en með al leik ara eru Ó laf ía Hrönn Jóns dótt ir, Jó­ hann Sig urð ar son, Hilm ir Snær Guðna son, Mar grét Vil hjálms dótt­ ir, Her dís Þor valds dótt ir og Þröst­ ur Leó Gunn ars son. Kvik mynd in á sér nokk uð sér staka for sögu því til henn ar er stofn að sem hluti af stærra verk efni. Sami hóp ur mun setja verk ið upp á fjöl um Þjóð leik­ húss ins í vet ur. Það verð ur því hægt að sjá kvik mynd um sama efni, leik­ stýrt af sama leik stjóra með sömu leik ur um á sama tíma og leik verk­ ið verð ur á fjöl un um og verð ur það ef laust fróð leg ur sam an burð­ ur. Þeir sem til Flat eyj ar hafa kom­ ið vita að ekki er pláss fyr ir ó end an­ leg an fjölda manns við vinnu sína. Fram leið end ur mynd ar inn ar sníða sér því stakk eft ir vexti og er um 20 manna tökulið í eyj unni, sem þyk ir ekki mik ið í nú tíma kvik mynd um. Þrátt fyr ir að mynd in byggi á leik riti Tsjekovs breyta hand rits­ höf und arn ir tölu vert út af upp runa­ legu sög unni. Um gam an mynd er að ræða og seg ir hún frá Jóni sem fer í fásinn ið í eyj unni og end ur­ nýj ar sjálf an sig í gegn um ís lenska sum ar ið og nátt úr una. Ein hverj­ ar tök ur mynd ar inn ar fara fram í Breiða fjarð ar ferj unni Baldri. kóp Mik il nátt úru feg urð er í Flat ey og nátt úr an og ís lenska sum ar ið skipa stór an sess í mynd- inni. Kirkj an í Flat ey gegn ir stóru hlut verki í mynd inni. Baltasar, fað ir leik stjór ans Baltasar Kor máks, mál aði fresk una í kirkj unni. Þar má með al ann ars sjá leik stjór ann í hlut verki Jesú Krists. Hót el Helln ar sett á sölu Guð rún Berg mann, sem rek ið hef ur hót el Helln ar und an far in ár, hef ur nú sett hót el ið á sölu. Sagði hún í sam tali við Skessu horn á stæð­ una fyr ir söl unni vera þá að rekst ur svona hót els væri ekki á eins manns færi. Í upp hafi hafi ver ið sjö að il ar sem voru að hugsa um gisti rekst ur á Helln um. Síð ar urðu þeir fimm og að lok um voru þau eft ir tvö, Guð­ rún og Guð laug ur Berg mann, eig­ in mað ur henn ar. Hann er nú lát inn og því sé hún ein eft ir. „Hér vant ar mjög marg ar hend­ ur því það er dýrt að fá starfs menn hing að og borga út úr rekstr in um. En aukn ing in hef ur ver ið stöðug eða um 10% á milli ára, sem er að­ eins meira en ferða manna aukn ing­ in til lands ins. Það eru flest ar fyr­ ir spurn ir um gist ingu í júlí. Fólk hringdi eða kom og ég átti ekki her bergi. Í júlí mán uði ein um sam­ an voru 226 fleiri fyr ir spurn ir en ég gat ann að. Mér finnst vera meiri eft ir spurn eft ir gist ingu á sunn an­ verðu Snæ fells nesi en að norð an­ verðu og nýt ing in hjá okk ur var 97% í júlí,“ sagði Guð rún og bæt­ ir jafn framt við að 85% gesta sem dvelji hjá henni séu er lend ir ferða­ menn. Þeir séu yf ir leitt fyrstu að­ il arn ir sem stað festa pönt un með nafni og eru þeg ar komn ar bók an­ ir fyr ir næsta sum ar. Yf ir leitt séu þeir bún ir að bóka með svona löng­ um fyr ir vara og eru ekk ert að hugsa um veð ur spá. „Þeg ar Ís lend ing arn­ ir koma síð an á ég eng in her bergi laus fyr ir þá.“ Guð rún seg ir upp bygg ingu hót­ els ins lok ið og það sé búið að skapa sér nafn. Eft ir spurn og um tal sé orð ið mjög gott en hót el ið er vott­ að af Green Glo be og mark aðs lega vel stað sett. Auk þess að fá gesti sem vilja berja stór brotna nátt úru­ feg urð ina aug um, seg ir Guð rún að það hafi kom ið sér á ó vart hversu marg ir ljós mynd ar ar komi til að mynda fugla líf ið á svæð inu. „ Heilu hóp arn ir hafa kom ið und ir leið­ sögn frægra kenn ara, ein göngu til að mynda. Tæki þeirra eru ekki af verri end an um og geysi lega dýr.“ Þekk ist af mynd um og úr þátt um Guð rún er vel kynnt í ferða­ manna geir an um víða um heim og fyr ir stuttu komu sjón varps menn frá þýsku sjón varps stöð inni Art og tóku við hana við tal. Það birt­ ist í þætti sem ber nafn ið „and­ lit Evr ópu.“ „Í fram haldi af við­ tal inu komu gest ir hing að. Einnig má geta þess til gam ans að fyr­ ir nokkrum dög um komu hér hjón sem rétt voru sest nið ur þeg ar kon­ an spyr mig hvort ver ið geti að hún hafi séð mig í sjón varp inu. Ég ját­ aði því og þá bæt ir hún við að mað­ ur inn henn ar hafi þekkt mig. Fólk kem ur oft hing að ein fald lega af því að það hef ur séð mig ein hvers stað­ ar, ann að hvort í blöð um eða sjón­ varpi og stopp ar þá kannski ein ung­ is til að fá sér kaffi. Aðra sögu get ég sagt þér af svip uð um toga. Hing að kom kona frá Hollandi sem hafði les ið við tal við mig í blaði. Hún bað um að fá mynd af okk ur sam an, sem auð vit að var sjálf sagt mál.“ Að spurð seg ir Guð rún að allt sé ó ráð ið hvað taki við eft ir sölu hót­ els ins. „Þótt ég sé búin að setja hót­ el ið á sölu þýð ir það ekki að eign in sé seld. Það verð ur ekki fyrr en ég sit með und ir rit aða papp íra í hönd­ un um. Þang að til reyni ég að reka hót el ið eins vel og ég get,“ sagði Guð rún Berg mann. Guð rún Berg mann

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.