Skessuhorn - 03.10.2007, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 40. tbl. 10.árg. 3. október 2007 -kr. 400 í lausasölu
Digranesgötu 2 • 310 Borganes • Síðumúla 27 • 108 Reykjavík • Sími 430 7500 • Fax 430 7501 • spm@spm.is • www.spm.is
Vélhjólaíþróttaklúbbur Akraness stóð fyrir mótorhjólakeppni á Langasandi sl. laugardag. Ríflega sjötíu keppendur tóku þátt og fjöldi
áhorfenda mætti. Sjá umfjöllun og myndir frá keppninni á bls. 26. Ljósm. Hilmar Sigvaldason.
Aðfaranótt laugardags
voru unnar skemmdir á
bílum í Borgarnesi, bæði
við Kveldúlfsgötu en einnig
við Þórðargötu. Að sögn
lögreglu eru engir grunaðir
enn sem komið er. Bíllinn
sem stóð við Kveldúlfsgötu
var í eigu íbúa á sambýlinu
í Borgarnesi. Þar hafa bílar
áður verið skemmdir að sögn
starfsmanns á sambýlinu sem
Skessuhorn ræddi við. Bæði
hefur verið hoppað ofan á
þeim og speglar brotnir og
taka íbúarnir það afar nærri
sér, eins og nærri má geta. Í
sambýlinu búa einstaklingar
sem ekki ganga heilir til
skógar og eru viðkvæmari
fyrir svona áföllum en þeir
sem eru heilbrigðir. Theodór
Þórðarson yfirlögregluþjónn
í Borgarnesi segist
aðspurður ekki telja að
verið sé að beina spjótum
gegn íbúum sambýlisins
persónulega, heldur muni
vera tilviljunarkennt hver
lendir í svona tjóni hverju
sinni. „Það er oft mikið líf
þarna í nágrenninu. Ekki er
langt í bensínstöðvarnar og
aðra starfsemi sem þarna er
í grennd. Hins vegar þarf
að brýna fyrir fólki að bera
virðingu fyrir eigum annarra,
hverjar sem þær eru,“ sagði
Theodór.
bgk
Endurmátu fasteignir
Fasteignamat ríkisins hefur
lokið endurmati fasteignamats
á íbúðarhúsnæði á Akranesi að
beiðni bæjarstjórnar Akraness
og hækkaði heildarfasteignamat
allra húsa um 13,6% að meðaltali,
en sumra nýlegra eigna um
allt að 24%. Á næstu dögum fá
allir íbúðareigendur í bænum
tilkynningu frá Fasteignamatinu um
endurmat þar sem greint verður frá
hinu nýju mati. Endurmatið tekur
til 2.475 íbúðar- og bílskúrseigna
á Akranesi, ýmist fullbyggðra eða
í byggingu. Fasteignamat eignanna
er eftir endurmatið 45.707 milljónir
króna.
Einstaka húseignir hækka á
bilinu 0 - 24%, en innan við 1%
eigna, eða tæplega 20 eignir alls,
lækka um allt að 9% og
er þá einkum um að ræða
mjög gamlar húseignir.
Eftir endurmatið
er fasteignamat
fullbyggðra íbúðareigna
að meðaltali 77% af
m e ð a l f a s t e i g n a m a t i
samsvarandi eigna á
höfuðborgarsvæðinu.
Miðað við þetta
endurmat mun hækkunin
þýða, miðað við
óbreytt hlutfall fasteignaskatta,
verulega hækkun fasteignagjalda
á húseigendur. Bæjarstjórn
hefur þó í hendi sér að lækka
álagningarprósentuna til að koma
til móts við fasteignaeigendur.
Að óbreyttu þýddi þetta nýja
fasteignamat að skattar af
íbúðarhúsnæði á Akranesi hækki
verulega og um tugi þúsunda
fyrir nýjustu eignirnar. Gísli S.
Einarsson bæjarstjóri segir í samtali
við Skessuhorn að hækkunin sé í
ljósi samninga um sölu á húseignum
í bæjarfélaginu síðastliðin tvö ár.
„Það var framkvæmt mat á eignum
sem ekki var til heildstætt mat á, en
þetta þýðir ekki að fasteignagjöld
séu að hækka að sama skapi nema
í tengslum við verðlagshækkanir.
Í hvert skipti sem fjárhagsáætlun
er lögð fram er prósenta þeirra
ákvörðuð,“ segir Gísli. Aðspurður
hvort til greina komi að lækka
fasteignastuðulinn til að draga úr
hækkunum sem að óbreyttu yrðu,
segir Gísli að álagningarprósentan
gæti lækkað með tilliti til hækkaðs
fasteignamats. „Ég á því ekki von
á því að þetta breytist nema m.t.t.
almennra verðlagshækkana.“
Af hinu endurmetna fasteignamati
er lóðarmat samtals 6.141 milljónir
króna og hækkaði um 6,6% við
endurmatið. Lóðarmat sérbýlis
hækkaði að jafnaði um 10%, en
lóðarmat fjölbýlis stóð í stað.
Eftir endurmatið er lóðarmatið að
meðaltali 46% af meðallóðarmati
samsvarandi íbúðarhúsalóða á
höfuðborgarsvæðinu.
Hið nýja fasteignamat
tekur gildi 1. desember,
en frestur til athugasemda
er til 1. nóvember
nk. Á heimasíðu
Fasteignamats ríkisins
www.fmr.is má
nálgast eyðublað til
athugasemda.
kóp/mm
www.smellinn.is
Bílar
skemmdir
Bíll sem einhver hefur séð ástæðu til
að rispa.