Skessuhorn - 03.10.2007, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER
Við óskum ÍA til hamingju með þriðja sætið í sumar
Innnesvegi 1 300 Akranes
Verkalýðsfélag Akraness
Síðasta umferð Íslandsmótsins í
knattspyrnu fór fram á laugardag og
fóru Skagamenn suður með sjó og
sóttu Keflvíkinga heim. Leikurinn
varð hinn fjörugasti og áður en
hann var úti höfðu sex mörk litið
dagsins ljós, þrjú hjá hvoru liði. Það
var mikil spenna í mönnum fyrir
leikinn og margir höfðu velt því
fyrir sér hvort upp úr mundi sjóða.
Guðjón Þórðarson var að mæta
í fyrsta skipti til Keflavíkur sem
þjálfari eftir að hann hætti snögglega
hjá Keflavík í fyrra í mikilli óþökk
heimamanna. Flestum ætti að vera
í fersku minni lætin sem urðu í
síðasta leik liðanna á Skaganum,
þegar Bjarni Guðjónsson skoraði
alræmdasta mark mótsins. Það var
einnig nokkuð grunnt á því góða á
milli liðanna í fyrra, Guðmundur
Mete og Hjörtur Hjartarson áttust
við og fengu bann í kjölfarið.
Það var því léttir að sjá að menn
ætluðu sér alls ekki að láta leikinn
leysast upp í einhverja vitleysu. Frá
fyrstu stundu var ljóst að leikmenn,
þjálfarar og stuðningsmenn
voru mættir í fótboltaleik en
ekki í einhvern sirkús. Kristján
Guðmundsson þjálfari Keflavíkur
sagði enda við fótbolti.net að
öll lætin fyrir leikinn hefðu
verið í fjölmiðlamönnum, ekki í
aðstandendum liðanna. Mættum
við fjölmiðlamenn taka það til
okkar, eflaust er okkur gjarnt að
reyna að búa til æsifréttir þar sem
engar eru. Stuðningsmennirnir
voru glaðir og reyfir og tóku meira
að segja upp á því að skiptast á
treyjum í hálfleik og styðja lið
andstæðinganna um stund. Hegðan
þeirra var til fyrirmyndar.
Leikmenn sýndu það líka að
þeir ætluðu sér að spila eins góðan
fótbolta og aðstæður leyfðu. Þær
voru reyndar alveg sérstaklega
slæmar, hellirigning og völlurinn
tættist upp við minnstu snertingu.
Leikurinn var þó ekki nema sex
mínútna gamall þegar fyrsta
markið leit dagsins ljós. Það var
heimamanna, snyrtilegt mark eftir
rispu upp kantinn og sendingu
fyrir. Fimm mínútum síðar var
Bjarna Guðjónssyni veitt gult
spjald og þá kom í ljós að ekki
hafði allt verið fyrirgefið, því
heimamenn fögnuðu spjaldinu
eins og Íslandsmeistaratitli. Það
sló nokkuð á fögnuð þeirra að
Svadumovic jafnaði metin á 15.
mínútu eftir að Björn Bergmann
hafði skallað boltann fyrir fætur
hans. Keflvíkingar létu markið
ekki slá sig út af laginu og komust
aftur yfir á 19. mínútu og juku við
forskot sitt á 26. mínútu. Staðan
3-1 og útlitið gott fyrir heimamenn.
Gestirnir gáfust ekki upp og á 43.
mínútu skoraði Bjarni Guðjónsson
gull af marki með góðu skoti. Staðan
í leikhléi var 3-2 fyrir Keflavík.
Heimamenn mættu ákveðnir
til leiks í síðari hálfleik og ætluðu
greinilega ekki að missa leikinn
niður í jafntefli. Að sama skapi átti
ÍA fínar sóknir og á 64. mínútu bar
ein þeirra árangur. Boltinn datt
þá niður fyrir fætur Jóns Vilhelms
Ákasonar sem var nýkominn inn
á sem varamaður. Hann lét vaða á
markið og jafnaði metin. Bæði lið
sóttu nokkuð eftir markið en náðu
ekki að koma boltanum í netið og
3-3 jafntefli því staðreynd.
Með stiginu í Keflavík gulltryggði
ÍA sér þriðja sæti deildarinnar með
30 stig. Fari svo að FH vinni Fjölni í
úrslitum bikarkeppninnar um næstu
helgi þýðir það EUFA sæti, annars
sæti í Inter-Toto Evrópukeppninni,
nokkuð sem fáir leyfðu sér að vona
fyrir mót. Guðjón Þórðarson hefur
gert frábæra hluti með liðið, hann
nær því besta úr leikmönnum
þess sem hafa sýnt frábæra
spilamennsku í sumar. Liðið er fast
fyrir til baka og sækir hratt fram á
við. Gagnrýnendur sem kvarta yfir
varnarsinnuðum leik ættu að skoða
markaskorunina, en ÍA skoraði 34
mörk í sumar, einungis Valur og FH
skoruðu fleiri. Skessuhorn óskar
leikmönnum og aðstandendum
ÍA til hamingju með árangurinn.
Það er óhætt að segja að framtíðin
í boltanum er björt á Skaganum,
sem fyrr.
kóp
Jafntefli í Keflavík og þriðja sætið staðreynd
Þrátt fyrir gott yfirbragð var oft grunnt á því góða hjá leikmönnum og mikið fagnað ef
Bjarni Guðjónsson var felldur. Hér veltist hann um í drullusvaðinu eftir eina tæklinguna,
Keflvíkingum til ómældrar gleði. Ljósm. Gísli Baldur.