Skessuhorn


Skessuhorn - 14.04.2010, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 14.04.2010, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 -Sólskálar- -Stofnað 1984- Smiðsbúð 10, 210 Garðabæ Sími: 554 4300 www.solskalar.is Þjónustuauglýsingar Símar: Viðar 894 4556 og Magnús 891 9458 Múrverk flísalögn Nýlagnir – breytingar – viðhald Kristján Baldvinsson pípulagningameistari Elmar B. Einarsson pípulagninga- og vélvirkjameistari Bílar & Dekk ehf. Allar almennar bílaviðgerðir og bilanagreining. Þjónustueftirlit, smurþjónusta. Hjólbarðaþjónusta. Akursbraut 11a • Sími 578 2525 • Fax 578 2526 bilarogdekk@internet.is Bókasafn Reykdæla Bókasafnið í Logalandi er opið öll fimmtudagskvöld frá kl. 20-22. Komið og nýtið ykkur gott safn. UMFR Vetrartilboð Gisting, morgunverður og 3ja rétta kvöldverður 8.900 kr. á mann í tveggja manna herbergi. Gildir sunnudag til fimmtudag til 1.mai. Vélabær ehf. Bæ í Bæjarsveit Alhliða bíla, búvéla- og vinnuvélaviðgerðir. Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla og dráttarvéla. Hjólbarðaþjónusta S: 435-1252 velabaer@vesturland.is Pennagrein Pennagrein Pennagrein Til þess að geta unnið sig út úr fjárhagslegum vandræðum þarf að hafa trú á framtíðina og getu samfélagsins. Það þurfa allir að leggja sitt að mörkum til að byggja upp heilbrigt og blómlegt samfélag. Fyrir þremur árum ákváðum við hjónin og þrjár dætur að flytja úr Skaftafelli í Öræfum. Þar hafði ég stjórnað þjóðgarðinum í 9 ár. Í Öræfum búa um 65 manns yfir veturinn, en sumargestir voru um 200.000. Við höfðum kynnst því að búa í fámennri sveit þar sem hver íbúi skiptir máli og vera heimsborgarar í senn. Þegar fólk ákveður að setjast að á nýjum stað þá þurfa ákveðnir þættir í samfélaginu að vera til staðar. Alla leið austur í Öræfin hafði borist góður orðstýr gamla grunnskólans á Hvanneyri. Síðan heyrðum við að verið væri að stofna Menntaskóla í Borgarnesi. Möguleikar á atvinnu fyrir okkur hjónin voru til staðar. Menningarlíf var í miklum blóma og svo möguleikar að stunda okkar áhugamál sem eru hestar og útivist. Þessir þættir urðu þess valdandi að við byggðum okkur hús á Hvanneyri. Til þess að gera gott samfélag betra, þá þarf að taka þátt í samfélaginu. Frá því ég flutti í Borgarbyggð hef ég tekið þátt í stjórn Foreldrafélags Grunnskóla Borgarfjarðar, reiðveganefnd hesta manna félagsins Faxa og er stjórnarformaður reiðhallarinnar Faxa­ borgar. Einnig sinni ég félagsstörfum í tengslum við vinnu mína hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Gott samfélag byggir m.a. á mannauði. Í Borgarbyggð búa rúmlega 3.700, íbúasamsetningin er fjölbreyttari en víða þekkist, þeir dreifast jafnt á milli þéttbýlis og dreifbýlis. Atvinnustarfsemin er fljölbreytt s.s. landbúnaður, ferðaþjónusta, háskólaþorp, iðnaður, skólar og verslun. Tækifærin eru fjölmörg og það er nauðsynlegt að við komum auga á þau. Fjöldi veiðivatna eru í Borgarbyggð sem eru lítið nýtt og búið er að kortleggja 830 km af göngu/reið/hjólaleiðum. Hugsa sér að geta riðið um héraðið með veiðistöngina í bakpokanum undir leiðsögn staðkunnugra og gist síðan á fögrum stað. Frumkvöðlar í ferðaþjónustu eiga að nýta sér þessa möguleika. Nú er tími nýrrar hugsunar, þar sem ýtt verði undir skapandi hugsun, stofnun nýrra sprotafyrirtækja í þéttbýli og dreifbýli. Landnámssetrið og Brúðuheimar í Borgarnesi eru ágæt dæmi um atvinnusköpun sem byggir á hugviti. Það er mikilvægt að þeir sem stjórna sveitarfélaginu hverju sinni ýti undir grasrótarstarf. Það var fagnaðarefni í vetur þegar heimamenn í uppsveitum Borgarfjarðar stofnuðu ,,framfarafélag“. Sambærileg félög ætti að stofna í Borgarnesi, á Bifröst, á Mýrum og á Hvanneyri. Skapandi hugsun leiðir af sér nýsköpun í atvinnurekstri. Brákarey er tilvalið svæði undir sprotafyrirtæki í Borgarnesi. Umræður um niðurskurð í rekstri leik­ og grunnskóla hefur verið mikil allt sl. ár. Þegar íbúasamtök á Hvanneyri koma með hugmyndir um úrlausnir í skólamálum þá á að taka þeim fagnandi, því það sýnir að þau hafa áhuga á samfélaginu. Með þeim mannauði sem Borgarbyggð býr yfir þá er ég bjartsýnn á að okkur takist að vinnu úr fjárhagsvandræðum sveitarfélagsins. Þegar óeining var í fjölskyldu minni, notaði faðir minn stundum orðatiltækið ,,sameinuð stöndum við sundruð föllum við.“ Ragnar Frank Kristjánsson. Höf. er oddviti Vinstri grænna í Borgarbyggð. Einelti þrífst í aðgerðaleysi fjöldans, í samfélagi þar sem afskiptaleysi og sinnuleysi er mikið og þar sem ekki er tekið á málum. Það er ekki ákjósanlegt að einungis fagmenn eða fræðingar fjalli um málið eða taki á því heldur þarf fjöldinn að taka það að sér. Allir þurfa að láta málið til sín taka, skólar, heimili, félagasamtök og stofnanir bæjarfélagsins. Það þarf að bæta samskipti í nærsamfélaginu og bæta þannig líðan fólks sem býr saman, starfar saman eða er saman í skóla eða frítímastarfi. Sífellt þarf að halda uppi fræðslu meðal almennings og vinna að hugarfarsbreytingu. Þannig bætum við mannlífið og aukum lífsgæðin. Við þurfum að skapa samstöðu meðal fólks um að takast á við vandann og gera stórátak í að samræma vinnubrögð og viðbrögð við þessum vágesti. Við þurfum að æfa okkur saman í að taka á því líkamlega og andlega ofbeldi sem stundum hefur hræðilegar afleiðingar sem geta endað með sjálfsvígum. Við vitum að einelti er dauðans alvara og okkur kemur það við. Heimili og skóli gáfu nýlega út upplýsingabækling um einelti sem hægt er að sjá á heimasíðu samtakanna. www. heimiliogskoli.is Einelti er ekki bara í skólum. Það er allsstaðar þar sem menn eru saman t.d. hefur verið greint frá hræðilegu einelti á vinnustöðum. Það þrífst jafnt meðal fullorðinna og barna. Við þurfum að láta okkur varða það samfélag sem við búum í. Við þurfum að breyta merkingu orðsins afskiptasemi og gera hana jákvæða. Afskiptasemi er ekki neikvæð og það borgar sig að skipta sér af, því varðandi einelti þá hefur hinn þögli aðgerðalausi hópur stórt hlutverk og leggur til skilyrði fyrir verknaðinum. En hvað er einelti og hvernig lýsir það sér? Einelti er útskúfun. Að fá ekki að vera með. Að fá um það merki að tilheyra ekki hópnum. Það er í raun endurtekin valdbeiting eða valdníðsla. Það eru skilaboð til einhvers um að hann sé einskis verður. Þessum skilaboðum er jafnvel komið fram einungis með því að lyfta augabrún eða með svipbrigðum. Þegar við tölum um einelti erum við ekki að tala um einn einstakan atburð heldur endurtekinn verknað. Einelti hefur verið skilgreint sem upplifun einstaklings á að vera settur út úr samfélagi. Tilfinningunni sem þolandinn finnur fyrir má líkja við köfnunartilfinningu og segja má að einelti sé félagsleg kaffæring. Það er okkur jafnnauðsynlegt og að draga andann að fá að tilheyra og vera hluti af hópnum. Það kallar því fram sársaukafullar tilfinningar að vera útskúfaður. Þegar við sjáum einelti sjáum við líka mikið ójafnvægi valds og smám saman fer þolandinn að kenna sér um og hann finnur fyrir minnkandi sjálfstrausti og sjálfsmynd hans breytist. Seinna hrjáir depurð og þunglyndi oft þolandann. Hið ógnvænlega aðgerðaleysi fjöldans túlkar þolandinn gegn sér á meðan gerandinn túlkar það með sér. Gerandinn er oft einstaklingur sem burðast með erfiðar tilfinningar eða slæma líðan sem oftar en ekki eru hvatinn að eineltinu. En með síendurteknum verknaði er eins og gerandinn rugli fólk í ríminu um hvað er rétt og hvað er rangt og viðmiðin breytast. Svokallaðir taglhnýtingar (þeir sem með sinnuleysi eða ósjálfstæði láta hlutina viðgangast án þess að skipta sér af) eru hirð gerandans og auðlind sem gerandinn nýtir sér. Við þurfum að láta okkur koma það við hvernig fólki líður í kringum okkur og muna að „það þarf heilt þorp til að ala upp barn“ og „það gera börnin sem fyrir þeim er haft“. Þar sem eru afskiptalausir borgarar, þar er hættulegt samfélag. Helga Margrét Guðmundsdóttir Verkefnastjóri hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra „Nú ver andi land bún­ að ar stefnu hafn að“ seg ir al þings mað ur og f.v. ráð­ herra í rík is stjórn í grein um hugs an lega ESB að­ ild á vef Skessu horns. Og for mað ur Fé lags sauð fjár bænda seg ir á að­ al fundi sam tak anna: „ Reynt að reka fleyg í sam stöðu bænda gegn ESB.“ Síð ar í ræðu hans á að al fundi Fé lags sauð fjár bænda seg­ ir: „ Neysla á lamba kjöti hefði á þess um tíma far ið úr 41 kílói á hvern lands mann í 23 kíló.“ Þ.e. sala virð ist hafa dreg ist sam­ an um ca. 40% á til greindu tíma bili, sem er starfs tími Sam taka sauð fjár bænda. Bænd um fækk ar og tekj ur þeirra lækka. Við var andi fólks fækk un hef ur ver ið í sveit­ um lands ins. Í bú um á Vest ur landi, utan Akra ness og ná grenn is, á Vest fjörð um og Norð ur landi vestra þ.e. í Norð vest ur kjör­ dæmi hef ur far ið stöðugt fækk andi á sama tíma og með al ald ur íbúa svæð is ins fer hækk andi, þ.e. unga fólk ið hverf ur á braut. Skv. skýrsl um Byggða stofn un ar um þró­ un at vinnu tekna 2000­2005 þá voru tekj­ ur á Vest ur landi u.þ.b. 8% lægri en á höf­ uð borg ar svæð inu og tekj ur á Vest fjörð um eru um 13% lægri en á höf uð borg ar svæð­ inu og tekj ur á Norð ur landi­ vestra u.þ.b. 17% lægri en á höf uð borg ar svæð inu. Er ekki ver ið að semja um breytt fyr ir­ komu lag heims við skipta með land bún að ar­ af urð ir sem mun tak marka mögu leika á að verja inn lend an land bún að með toll um og öðr um höft um? Get ur á stand ið eitt hvað versn að? Er nú­ ver andi land bún að ar stefna eitt hvað til þess að hrópa húrra yfir eða hanga á? Hversu ár ang urs rík hef ur hún reynst vera fyr ir bænd ur? Hversu ár ang urs rík hef ur byggða­ stefna stjórn valda ver ið fyr ir lands byggð ina und an farna ára tugi? Eru breyt ing ar eitt­ hvað sem þarf að hræð ast? Er ekki frek ar á stæða að ótt ast ó breytt á stand, á fram hald­ andi stöðn un eða á fram hald andi hnign un á lands byggð inni? Er ekki í lagi að at huga hvaða mögu leik­ ar fel ast í sam starfi við aðr ar Evr ópu þjóð­ ir, með þátt töku í ESB, hvort sem er á sviði land bún að ar, iðn að ar, sjáv ar út vegs eða al­ mennt á sviði at vinnu­ og efna hags mála? Borg ar nesi, 10. apr íl 2010 Guð steinn Ein ars son. Íbúar Borgarbyggðar, horfum bjartsýn fram á veginn Hvað er að hræð ast? Einelti Bifreiða- og hjólbarðaverkstæði, smurstöð Dekk og smur ehf. Allar almennar bifreiðaviðgerðir s.s. tímareimaskipti, hemla- og pústviðgerðir og margt fleira. Þjónustuskoðanir fyrir flest bifreiðaumboðin. Hjólbarða- og smurþjónusta, úrval af hjólbörðum. Tryggjum faglega vinnu með fagmanni á staðnum. Verið ávallt velkomin Dekk og Smur ehf Nesvegi 5, 340 Stykkishólmur Sími 438-1385 GSM: 895-2324

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.