Skessuhorn


Skessuhorn - 30.06.2010, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 30.06.2010, Blaðsíða 27
27ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ Nú stend ur yfir verk efni Stykk is­ hólms bæj ar og Nátt úru stofu Vest­ ur lands um að gerð ir gegn á geng­ um plöntu teg und um í landi sveit ar­ fé lags ins. Lúpínu slátt ur hófst í síð­ ustu viku, en að gerð ir gegn lúpínu eru lík leg ast ar til að skila ár angri þeg ar plant an er í full um blóma. Al mennt er ekki gert ráð fyr ir að fjar lægja plönt urn ar eft ir slátt, þar sem talið er að plöntu leif arn ar geti veitt vörn gegn því að t.d. fífl ar og njóli sái sér inn á slegnu svæð in. Að auki mynda plöntu leif arn ar líf rænt lag á yf ir borði, sem dreg ur úr frost­ verk un og auð veld ar fram vindu ann ars gróð urs, eins og seg ir í frétt frá Nátt úru stofu Vest ur lands. Nán­ ar er hægt að fylgj ast með verk efn­ inu á vef stof unn ar: www.nsv.is mm/ Ljósm. nsv.is Mik ill fjöldi fólks var sam an kom inn á Arn ar stapa um síð ustu helgi og var tjald stæð ið pakk fullt af fólki. Snjó fell bauð upp á tón leika með Gunn ari Þórð ar syni þar sem hann spil aði og söng lög sín. Mjög skemmti leg stemn ing mynd að ist fyr ir utan veit inga hús ið á Arn ar­ stapa, en tón leik arn ir voru ut andyra í á gætu veðri eins og sjá má. sig Vel sótt sól stöðu há tíð Lúpínu slátt ur haf inn í Hólm in um Skessuhorn hefur tekið upp nýtt smáauglýsingakerfi og er nú hægt að setja mynd með. Smáauglýsingar gagnast hvort sem þú þarft að selja eða kaupa bíl, barnavörur, heilsuvörur, húsnæði eða hvaðeina annað. Smáauglýsingar Skessuhorns njóta sívaxandi vinsælda og eru þúsundir manna sem nýta sér þær í hverri viku. Auglýsingar eru skráðar í gegnum www.skessuhorn.is Skráning fyrir klukkan 12:00 á þriðjudögum tryggir birtingu í næsta blaði. Markaðstorg Vesturlands Þarftu að selja eða kaupa? Nýjung!Smáauglýsingar nú einnig með mynd Verð á textaauglýsingu 950 kr. - Verð á textaauglýsingu með mynd 2.500 kr. Borgfirðingabók, ársrit Sögufélags Borgarfjarðar 2010, kom út fyrir skömmu. Þetta er ellefti árgangur Borgfirðingabókar og sá sjöundi frá endurreisn útgáfunnar 2004. Í þessu nýja hefti bókarinnar er efni fjölbreytt; fjöldi frásöguþátta, ljóð bæði eldri og yngri höfunda, skyggnst í safn ungs ljósmyndara, greinar um skólastarf og tengd efni í héraðinu og annálar frá stjórnendum félaga í Borgarfirði. Ýmislegt fleira er í ritinu sem telur á þriðja hundrað blaðsíður. Meðal frásöguþátta í þessu nýja riti má nefna minningarbrot um Jón Ásmundsson eftir Arndísi Þorvaldsdóttur, Snillingarnir á Sturlureykjum eftir Þorstein Þorsteinsson og þáttur um borgfirsku sönglagahöfundana Þorvald og Jón Blöndal eftir Trausta Jónsson, Ásgeir Sigurgestsson og Hallgrím Magnússon. Í inngangi ritnefndar segir að sem fyrr sé leitast við að fjalla um ýmsa þætti borgfirskrar sögu og mannlífs. „Atburðir dagsins í dag eru saga á morgun og vilji menn forða þeim frá því að falla í gleymsku þarf að halda vitneskju um þá til haga. Margt um störf og viðfangsefni fólks á liðnum árum og öldum er að meira eða minna leyti týnt og gleymt vegna þess að ekki var hirt um að greina frá atburðarás, skrá lýsingu þeirra, hvernig verkum var hagað og hvaða verkfæri notuð. Í nýlegri skýrslu um orsakir b a n k a h r u n s i n s kemur fram að ótrúleg vanræksla var víða innan stjórn­ og bankakerfisins um það að færa til bókar mikilvæg samskipti og afdrifaríkar ákvarðanir,“ segir m.a. í inngangi ritnefndar en hana skipa: Snorri Þorsteinsson formaður, Ásdís Helga Bjarnadóttir og Sævar Ingi Jónsson. þá Ný Borgfirðingabók komin út

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.