Skessuhorn


Skessuhorn - 27.10.2010, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 27.10.2010, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER Met að sókn er að nám skeiði um Grett is sögu Ás mund ar son ar, sem Snorra stofa, Land náms set ur Ís­ lands og Sí mennt un ar mið stöð in á Vest ur landi halda. Sam tals hafa 24 skráð sig á nám skeið ið, en nám­ skeiða hald þess ara stofn ana hef ur nú var að und an far in sex ár. Í vet­ ur verð ur fjall að um stöðu Grettlu í sveit Ís lend inga sagna, bygg ingu henn ar, per són ur og sögu svið. Þá verð ur vik ið að aldri sög unn ar, drep ið á föng höf und ar og vinnu brögð sem um margt virð ast frum­ leg og sér stæð, túlk­ un ar leið ir að sög unni og auð vit að að al per­ són una, Gretti sterka. Þá verð ur fjall að um Grettlu sem fyrstu nú tíma skáld sög una, ör nefni, til urð og stíl brögð sög unn ar, hvern ig Grettla verð­ ur að kvik mynda hand riti og kveð­ skap í Grett is sögu. Leið bein end­ ur vetr ar ins eru þau Berg ljót Krist­ jáns dótt ir, Ein ar Kára son, Guð rún Ing ólfs dótt ir, Jón Torfa son, Við ar Hreins son og Örn ólf ur Thors son. Nám skeiða hald af þessu tagi hófst árið 2005 með nám skeiði um Eg­ ils sögu og síð an hef ur hvert nám­ skeið ið tek ið við af öðru. Þar má nefna Brennu­Njáls sögu, Forn­ ald ar sög ur Norð ur landa, nám skeið í Nor rænni goða fræði, Ís lend inga­ sög ur á Vest ur landi, kon ur á mið­ öld um, land nám Ís lands og Snorra og Sturl unga öld ina. Á nám skeið­ in eru fengn ir fræði menn í fremstu röð til að fjalla um hvert við fangs­ efni frá sínu sjón ar horni. Þau eru fyrsta mánu dags kvöld hvers vetr­ ar mán að ar, til skipt is í Land náms­ setri og Snorra stofu. Venju leg ast hefj ast þau með inn leggi leið bein­ and ans, síð an er kaffi hlé og að því loknu setj ast menn yfir fræð in aft ur og hefja um ræð ur. je Hin ár lega menn ing ar­ og lista­ há tíð Vöku dag ar hefst á Akra nesi fimmtu dag inn 28. októ ber og verð­ ur há tíð in fjöl breytt að vanda. Að dag skrá há tíð ar inn ar koma fjöl­ marg ir; leik skól ar, grunn skól­ ar, Tón list ar skól inn og lista­ og hæfi leika fólk af ýms um toga. Fé­ lag nýrra Ís lend inga mun halda Þjóða há tíð þar sem boð ið verð ur upp á fjöl breytta dag skrá og svona má á fram telja. Vöku dög um lýk ur sunnu dag inn 7. nóv em ber nk. Í til kynn ingu frá Akra nes stofu, sem ann ast skipu lagn ingu Vöku­ daga, seg ir m.a. að um fjöl­ breytta dag skrá verði að ræða, sem bor in er uppi af hæfi leika­ fólki á öll um aldri. „Með al við­ burða má nefna þrjár sýn ing­ ar á Safna svæð inu; sýn ingu Björns Lúð víks son ar í Garða­ kaffi, ljós mynda sýn ingu „Vit­ ans“, fé lags á huga ljós mynd ara í Fróðá og sýn ingu á lista verka­ safni Akra nes kaup stað ar í nýju sýn ing ar rými í Safna skál an um, auk fastra sýn inga. Í Safna skál an um verða einnig kvik mynda sýn ing ar en sýnd ar verða kvik mynd ir sem tekn ar voru á Akra nesi á ár un um 1947 og 1974, kvik mynd in „Að for tíð skal hyggja“ sem gerð var í til efni af 50 ára af­ mæli Byggða safns ins á síð asta ári og loks við töl sem tek in hafa ver­ ið við val in kunna ein stak linga um líf ið á Akra nesi áður fyrr í tengsl­ um við verk efn ið „Ver öld sem var“ sem nú er í und ir bún ingi á Safna­ svæð inu og víð ar á veg um Akra nes­ stofu, Byggða safns ins, Bóka­, Hér­ aðs skjala­ og Ljós mynda safns Akra­ ness og fleiri að ila. Í Kirkju hvoli mun Gyða Jóns­ dótt ir halda sýn ing una „Kon ur“ og á „Loft inu“ í Kirkju hvoli verð­ ur gesta sýn andi. Í Bóka­, Hér aðs­ skjala­ og Ljós mynda safni Akra­ ness við Dal braut 1 verð ur fjöl­ breytt dag skrá alla Vöku dag ana og þá verða fjöl marg ir spenn andi tón­ leik ar í boði. Nefna má tón leika Orra Harð ar son ar þar sem hann flyt ur lög af hin um nýja geisla­ diski sín um „ Albúm“, Anna Hall­ dórs dótt ir held ur tón leika og flyt­ ur einnig lög af sín um nýjasta diski, „Here“ og þá held ur Hanna Þóra Guð brands dótt ir sína ár legu há­ deg is tón leika á Vöku dög um. Tón­ list ar skól inn verð ur einnig með fjöl breytta dag skrá alla Vöku dag­ ana. Þá má nefna djass­ og blús há­ tíð í Gamla Kaup fé lag inu og tón­ leik ana „Ung ir ­ Gaml ir“ þar sem ungt hæfi leika fólk úr grunn skól­ um bæj ar ins og Tón list ar skól an um kem ur fram á samt Helga Björns­ syni og Sig ríði Bein teins dótt ur. Þá verð ur hin ár lega hæfi leika keppni Nem enda fé lags Fjöl brautasskól ans einnig hald in á Vöku dög um, þann 5. nóv em ber.“ Að lok um má geta þess að í gangi er sam keppni um nafn á hin­ um nýja sýn ing ar sal í Safna skál­ an um en úr slit keppn inn ar verða kynnt í lok Vöku daga. Til lög um skal skil að til Akra nes stofu (tomas. gudmundsson@akranes.is) en frest­ ur til að skila inn til lög um renn ur út föstu dag inn 5. nóv em ber nk. Þá verða Menn ing ar verð laun Akra ness árið 2010 af hent á Vöku dög um og verð ur af hend ing þeirra kynnt sér­ stak lega þeg ar nær dreg ur, seg ir í kynn ingu frá Akra nes stofu. Bæk­ lingi með dag skrá Vöku daga verð­ ur dreift í öll hús. mm Skipulagsmál í Dalabyggð Auglýsing um tillögu á deiliskipulagi í landi Skriðulands. Sveitarstjórn Dalabyggðar auglýsir hér með tillögu á deiliskipulagðri verslunar- og þjónustulóð á Skriðulandi, Saurbæ Dalabyggð skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Tillagan tekur til 11.200m² svæðis með byggingareit sem leyfir að reisa allt að tveggja hæða bygginga vegna bensínsölu, verslunar, veitingasölu, gistiaðstöðu og einnig þjónustubyggingu vegna hjóla- og tjaldhýsasvæða með snyrtingum og gistimöguleikum í smáhýsum. Byggingarreitur er um 8.500m², gert er ráð fyrir 50 bílastæðum og 7-8 bílastæðum fyrir rútur og flutningabíla, hluti bílastæða má vera innan byggingarreits. Heildarbyggingarmagn er allt að 5000m². Skipu lags uppdráttur ásamt grein ar gerð er til sýnis á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11 í Búðardal frá 27. okt til 25. nóv. 2010. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skila til skipulags- og byggingafulltrúa Dala byggðar fyrir 10. des. 2010 og skulu þær vera skriflegar. Berist ekki athuga semdir innan tilskilins frests telst tillagan samþykkt. Búðardal 21. okt. 2010 Skipulags- og byggingafulltrúi Bogi Kristinsson Magnusen Styrkjamöguleikar til fyrirtækja, nýsköpunar og fleira Þriðjudaginn 2. nóvember nk. boðar Framfarafélag Borgfirðinga til kynningarfundar um styrkjamöguleika til fyrirtækja og nýsköpunar, Vaxtarsamning Vesturlands og stoðkerfi atvinnulífsins. Þau Margrét Björk Björns- dóttir og Ólafur Sveinsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi koma til með að kynna málefnin. Mun Ólafur fara yfir helstu staðreyndir hvað snertir Vaxtarsamninginn og stoðkerfið en Margrét mun kynna styrkjamöguleika til nýsköpunar og fyrirtækja. Fundurinn fer að venju fram í Logalandi og hefst kl. 20:00. Framfarafélag Borgfirðinga hvetur fólk með nýsköpunarhugmyndir sérstaklega til að mæta og taka þátt í umræðum, sem og til að nýta sér þá þekkingu og möguleika sem þau Margrét og Ólafur munu kynna. Á staðnum verða seldar kaffiveitingar. Stjórnin Málverkasýning að Hlöðum Saga Hvalfjarðar sögð á áhrifamikinn hátt af bæjarlistamanni Akraness, Bjarna Þór Bjarnasyni. Kaffi og rúsínulummur. Tónlist, matur og önnur menning í Hótel Glym Gisting í fallegum herbergjum Leikur og list í Hvalfirði Menningartilboð helgina 29. - 30. oktober n.k. Glæsilegur matseðill - brot af því besta Sjávarréttasúpa Glyms Fennel grafið folald Hægeldaðir lambaskankar Rabbabara pannacotta Öðruvísi morgunverðarhlaðborð Verð per mann með öllu 15.900 kr - er það ekki bara skynsamlegt ? Aukanótt með morgunverði 7.900 kr per mann Vöku dag ar hefj ast á Akra nesi á morg un Hluti þátt tak enda á einu nám skeið anna. Met að sókn að nám- skeiði um Grettlu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.