Skessuhorn


Skessuhorn - 24.08.2011, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 24.08.2011, Blaðsíða 29
29MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST sam band þá. Á þeirri mynd er skip­ stjór inn á Ár vakri í fullu jún íformi í steypu vinnu. Ég var þarna um borð, ým ist sem ann ar eða þriðji vél stjóri þar til Land helg is gæsl an tók við Ár vakri af Vita­ og hafna­ mála stofn un. Ég hætti þarna haust­ ið 1969.“ Þjóð björn seg ist muna sér stak­ lega eft ir því þeg ar hann kom fyrst um borð í Ár vak ur, ný út skrif að ur vél stjóri, vor ið 1968. „Þá var skip ið á Eski firði og ég flaug til Eg ils staða og fór það an á Eski fjörð. Þá var haf ís inn und ir bryggju og Reyð ar­ fjörð ur inn full ur af ís. Við kíkt um út á Hólma nes til að sjá hvort ein­ hvers stað ar væri læna í ísn um. Við fór um svo norð ur fyr ir land og við vor um að leið beina skip um í gegn­ um ís inn. Við sigld um al veg með landi því þar var helst hægt að finna gluf ur í ís inn og skip stjórn ar menn á Ár vakri þekktu strönd ina bet ur en fing urna á sér enda alltaf að sigla upp und ir fjör um. Þarna sá mað ur land ið vel og það var helsti mun ur­ inn á að vera á þessu skipi en fiski­ skip un um þar sem mað ur sá sjaldn­ ast land.“ Eft ir ver una á vita skip inu haust ið 1969 var Þjóð björn at vinnu laus en sá þá aug lýst eft ir vél stjóra á síld­ ar bát inn Ólaf Sig urðs son AK­370. „Ein ar Árna son var skip stjóri og ég var þarna um borð í þrjá mán­ uði við síld veið ar í Norð ur sjón um. Við lönd uð um fyrst í Þýska landi en síð an í Hirts hals og Skagen í Dan­ mörku. Hlöðver Óla son var ann ar vél stjóri með mér sem bet ur fer því hann þekkti vél bún að inn um borð, sem kom sér vel þeg ar bil an ir urðu. Eft ir þetta fór ég sem vél stjóri í níu mán uði á Vík ing sem þá var enn þá síðu tog ari und ir stjórn Hans Sig­ ur jóns son ar. Það var skemmti leg ur tími og mað ur lærði mik ið en Sig­ ur jón Þórð ar son var yf ir vél stjóri.“ Á heims sýn ingu í Jap an Þeg ar síðu tog ara ver unni lauk lagði Þjó björn land und ir fót og fór á heims sýn ing una í Jap an. „Það var nú ekki al gengt að Ís lend ing ar ferð­ uð ust þang að á þess um árum en ég fór þarna með 27 manna hópi á veg um ferða skrif stof unn ar Sunnu. Það merki lega var að við vor um þrjú héð an af Skag an um í þess ari ferð en auk mín voru þær Hrefna Sig urð ar dótt ir og Ing veld ur Sverr­ is dótt ir en hún var jafn framt að fara í sína fyrstu ut an lands ferð. Við fór­ um um Sviss og Grikk lands og síð­ an til Ind lands þar sem við stopp­ uð um í fjóra daga. Frá Ind landi fór­ um við Thailands og það an til Jap­ an. Fyrst beint til Osaka og fór­ um svo það an með nýrri hrað­ lest til Tókíó. Frá Tókíó flug um við svo til Hong Kong og svo það­ an til Lí banon með smá við komu í Teher an. Þeg ar við kom um til Lí­ banon lent um við í fimm tíma leit fyr ir flug ið eft ir ný leg hryðju verk sem gerð voru og kennd við Svarta sept em ber hóp inn þann sama og gerði á rás ina á Olymp íu leik ana í Munchen. Við vor um sex tím um á eft ir á ætl un til Kaup manna hafn­ ar en við höfð um upp haf lega átt að hafa fjög urra tíma stopp þar. Við vor um í vél frá SAS og þeg ar við lent um í Kaup manna höfn var ís­ lenska vél in sem við átt um að fara með heim kom in út á braut ar enda en SAS vél in renndi upp að hlið inni á henni þar og við hlup um á milli úti á braut inni. Þessu hef ég aldrei lent í fyrr né síð ar og það merki lega var að far ang ur inn okk ar skil aði sér all ur. Hann var bara ferjað ur á milli véla þarna úti á flug braut.“ Eft ir þetta fór Þjóð björn í stutt­ an tíma að vinna í Hval stöð inni í Hval firði við við gerð ir en hélt svo út til Sví þjóð ar þar sem hann var í eitt ár. „Fyrst var ég í Umeå síð­ an í Ig gesund lengst af sem vél­ stjóri í papp írs verk smiðju.“ Þá fékk hann vinnu hjá Sigl inga stofn un hér heima og fór heim en þar til hann byrj aði í nýju vinn unni fór hann með vini sín um, Skaga mann in um Sveini Jóns syni, í ferð um Evr ópu. Skipa skoð un og síð an kennsla Þjóð björn hóf störf hjá Sigl inga­ mála stofn un í lok árs 1970 og starf­ aði þar næstu sex ár. Hann vann við skipa skoð un, þykkt ar mæl ing ar, röntgen mynda tök ur og raf magns­ eft ir lit. Á þess um árum þvæld ist Þjóð björn um land allt vegna starfa sinna. Auk þess vann hann um tíma við að röntgen mynda sam setn ing­ ar og suð ur á flug vél um Flug leiða eft ir að tækja bún að ur Flug leiða til þess eyði lagð ist í bruna. Hann sá líka um röntgen mynda töku á flug­ vél um Flug fé lags Norð ur lands. All­ ar skipa smíða stöðv arn ar voru líka heim sótt ar. Á þess um árum sagð ist hann hafa kynnst því að verða veð­ ur teppt ur um lang an tíma. Árið 1976 ligg ur leið in aft­ ur heim á Akra nes. Þau Þjóð björn og Kristrún höfðu byrj að sam an árið 1974. Fyr ir átti Kristrún þrjár dæt ur, þær Ingu, Ey dísi og Ás dísi Lín dal. Sam an eiga þau svo son­ inn Hann es og fjöl skyldu hóp ur­ inn er orð inn stór. Þjóð björn seg­ ir þau Kristrúnu hafa ætl að að setj ast að á höf uð borg ar svæð inu. „Haust ið 1975 tók um við ein býl­ is hús í Garða bæ á leigu. Ég hafði trygga vinnu í Reykja vík þannig að það stóð ekk ert ann að til en að búa þar. Við leigð um þetta hús í eitt ár en Kristrún átti hús hér á Skag an­ um sem við gát um ekki selt þannig að þeg ar það vant aði kenn ara í Iðn­ skól ann á Akra nesi í eitt ár þar sem Þor vald ur Þor valds son fór í árs­ leyfi. Þá sótti ég um og fékk starf­ ið og byrj aði að kenna eðl is fræði og stærð fræði. Síð an bætt ist við kennsla í efn is fræði, ið reikn ingi og fleiru sem þessu tengd ist.“ Ári seinna var svo Fjöl brauta­ skól inn á Akra nesi stofn að ur og þar var á kveð ið að hafa vél skóla deild. Þjóð björn tók að sér að veita henni for stöðu. Hann hafði aldrei starf­ að við kennslu áður en sagð ist hafa tek ið þetta föst um tök um í upp hafi. „Ég sagði bara við nem end urna að ég ætti að kunna náms efn ið en við skyld um vinna það sam an. Ég sagð­ ist leið beina þeim með það sem ég gæti og síð an pass aði ég mig bara alltaf á því að vera blað síð unni á und an þeim í náms bók un um. Þetta gekk allt sam an upp.“ Þjóð björn fór síð an í rétt inda nám kenn ara vet ur­ inn 1982­1983. Eng inn kunni á á fanga kerfi Þeg ar Fjöl brauta skól inn hóf störf renndu kenn ar arn ir flest ir blint í sjó inn því eng in reynsla var af á fanga kerfi. Þjóð björn seg ir að skóla stjór ar Iðn skól ans og Gagn­ fræða skól ans hafi ver ið bún ir að búa til náms skrá en þeg ar Ó laf ur Ás geirs son hafi ver ið ráð inn skóla­ meist ari hafi hann lagt þá náms­ skrá til hlið ar og tek ið upp náms­ skrá úr Mennta skól an um í Hamra­ hlíð, sem var á fanga skóli. „Þeg ar kom að fyrsta vali hjá nem end um þá voru tveir kenn ar ar við skól ann sem vissu hvað á fanga kerfi í skóla var. Þetta voru þeir Ó laf ur Ás geirs­ son skóla meist ari, sem hafði kennt við Hamra hlíð ar skól ann og Eng il­ bert Guð munds son sem hafði ver ið í námi þar. Jón Hjart ar son var svo ráð inn að stoð ar skóla meist ari og hann þekkti þetta kerfi líka.“ Fyrstu árin voru tveir efstu bekk ir grunn­ skól ans líka inn an veggja Fjöl­ brauta skól ans. „Þeg ar við skild um loks ins hvern ig þetta kerfi var lögð­ umst við yfir náms skrána fyrsta vet­ ur inn. Þetta unn um við í sam starfi við Fjöl brauta skóla Suð ur nesja, sem stofn að ur var ári áður og Fjöl­ brauta skóla Suð ur lands, sem stofn­ að ur var að eins seinna en skól inn hér.“ Verk leg kennsla dreifð ist um bæ inn. „Véla kennsl an var á Ak ur­ gerð inu, þar sem Tré smiðja Sig­ ur jóns og Þor bergs hafði ver ið, en eft ir fyrsta vet ur inn var flutt í fyrr­ um hús næði bíla verk stæð is ins Vís­ is, sem síð ar hýsti vín búð og núna sjúkra bíla. Síð an vor um við með véla sal í hús næði Vega gerð ar inn ar að Þjóð braut 1. Ég fékk vél úr Vél­ skóla Ís lands sem var gerð keyrslu­ hæf og svo fékk ég gömlu ljósa­ vél ina úr sem ents ferj unni og síð­ an vor um við með ýmsa vél ar­ hluta þarna. Á þess um tíma stóð til að byggja verk náms hús fyr ir skól­ ann á lóð inni þar sem Bíl ver og N­1 eru til húsa núna. Í fyrstu þótti ekki pláss á skóla lóð inni fyr ir þetta en svo var véla sal ur inn byggð ur þar en tré iðna deild in var lengi vel við Vest ur göt una þar sem smíða­ kennsla Iðn skól ans hafði ver ið. Við vor um líka að kenna bók legt í Iðn­ skóla hús inu, svona var þetta dreift um all an bæ.“ Í vél stjóra störf um á sumr um Þjóð björn seg ir gam an að hafa tek ið þátt í þess ari upp bygg ingu og breyt ing in á skól an um sé mik­ il á þess um 36 árum sem hann hafi ver ið við kennslu. Þjóð björn fór í end ur mennt un eitt ár til Svíð þjóð­ ar þenn an tíma sem hann kenndi. Hann seg ir nauð syn legt fyr ir kenn­ ara í verk náms skóla að vera í tengsl­ um við at vinnu líf ið og því hafi hann far ið í af leys ing ar á sumr in. Hann leysti t.d. af sem vél stjóri við Búr­ fells virkj un í sex sum ur og fór líka á tog ar ana á Skag an um. „Ég sagði nú oft hér áður fyrr að ég yrði að fara á sjó inn á sumr in til að hafa efni á að vera kenn ari. En tengsl in við at­ vinnu líf ið eru mik il væg kenn ur um og mað ur held ur sér líka við í fag­ inu með þessu. Mér finnst ég hafa not ið þess í starfi mínu sem kenn ari að hafa gert þetta.“ For mað ur sókn ar nefnd ar Fé lags störf hafa alltaf ver ið Þjóð­ birni hug leik in. Skáta starf ið hef ur átt hug hans eins og kom ið hef ur fram. Síð ustu árin hef ur hann ver ið for mað ur sókn ar nefnd ar Akra nes­ kirkju en hann hef ur ver ið í sókn ar­ nefnd inni frá 1992. „Sókn ar nefnd­ ar menn vinna öll sín störf í sjálf­ boða vinnu. Þetta er mik il vinna sem fer í þetta en ég nýt henn ar. Við erum með kirkj una und ir okk­ ar hatti, safn að ar heim il ið, kirkju­ garð inn og út far ar þjón ustu, þannig að þetta er tals verð um setn ing en skemmti legt og gef andi starf,“ seg­ ir Þjóð björn Hann es son, vél stjóri og fyrr um fram halds skóla kenn ari að end ingu. hb Ný leg mynd af stór fjöl skyld unni. Fremst: Dag ur Lín dal Þrast ar son, Árni Teit ur Lín dal Þrast ar son, Dan í el Þór Lín dal Sig urðs son, Næsta röð: Sig urð ur Sæv ar son (mað ur Ás dís ar), Ísak Már Lín dal Sig urðs son , Þ.H. með Ask Björn Lín dal Þrast­ ar son í fang inu, Kristrún Lín dal Gísla dótt ir, Snæ dís Björk Lín dal Sig urð ar dótt ir, Frí mann Lín dal Helga son, Helgi Már Reyn is son (mað ur Ingu). Aft ast: Þröst ur Þór Ó lafs son (mað ur Ey dís ar), Ey dís Lín dal og Ás dís Lín dal Finn boga dæt ur. Inga Lín­ dal Finn boga dóttt ir, Hann es Lín dal Þjóð björns son. Skáta flokk ur inn Ern ir á sjötta ára tug síð ustu ald ar. Aft ari röð frá vinstri: Árni Mar­ in ós son, Grét ar Guðna son, Bjarni Vé steins son og Þjóð björn Hann es son. Fremri röð frá vinstri: Jón Trausti Her vars son og Á gúst Odds son. Mynd ina tók Ó laf ur Árna son ljós mynd ari en Þjóð björn hand lit aði hana sjálf ur. Frá Eng lands heim sókn skáta af Akra nesi 1963. Borg ar stjór inn Leicest er heils­ ar Þjóð birni und ir leið sögn Svav ars Sig urðs son ar far ar stjóra. Næst ur Svav ari er Kjart an Trausti Sig urðs son, þá Dan í el Lár us son, Björn Þór leifs son, Þjóð björn, Sig­ urð ur Pét ur Guðna son og Helgi Jóns son. Þessa mynd hand lit aði Þjóð björn. Þjóð björn og fjöl skylda í Sví þjóð ára mót in 1988 ­1989. Þjóð björn sýn ir tækja bún að í FVA á Akra nesi. Í heim sókn hjá Hann esi Lín dal Þjóð björns syni með an hann starf aði um tíma í Ind landi. F.v: Inga Lín­ dal, Hann es Lín dal, Ey dís Lín dal, Þröst ur Þór, Kristrún og Þjóð björn.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.