Skessuhorn - 24.08.2011, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
-Sólskálar-
-Stofnað 1984-
Smiðsbúð 10, 210 Garðabæ
Sími: 554 4300
www.solskalar.is
Öll almenn
málningarvinna
Garðar Jónsson
málarameistari
S: 896-2356
Smíða allar gerðir af lágmyndum
Dýrfinna gullsmiður
Stillholti 14 | Akranesi | Sími 464-3460
www.diditorfa.com
PARKETLIST
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
SIGURBJÖRN GRÉTARSSON • BORGARNESI
PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN • PARKETLIST SF.
Skólabraut 27 • Akranesi • Sími 431 1313 Fax 431 4313
Tilbúnir rammar
Innrömmun
Passamyndatökur
Myndlistavörur
Opið virka daga 10-12 og 13-18
Skólabraut 27 – Akranesi – Sími 431-1313
ÞETTA PLÁSS
ER LAUST
FYRIR ÞIG
433 5500
Flutningastöðin
Borgarnesi ehf.
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur
og Borgarness
Þrjár ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 8.00 – 12.00 og 13.00 – 16.00
Sími 437-2030
v.v@simnet.is
Átt þú rétt Á slysabótum?
Er réttarstaða þín óljós?
Við hjá Lögfræðiþjónustu Akraness
veitum þér þá aðstoð sem til þarf svo
að þú getir leitað réttar þíns.
Við veitum einnig almenna lögfræðiráðgjöf
til einstaklinga og fyrirtækja sem og
að annast alla almenna skjalavinnslu
s.s. vegna kaupmála, erfðaskráa,
skiptasamninga o.s.frv.
Tímapantanir í síma 5270300 og 663 7040
www.logak.is • logak@logak.is
Allar almennar
BÍLAVIÐGERÐIR
Smiðjuvöllum 6 • 300 Akranesi • 431 3022
Fax 431 3015 • oligonna@velsmidjaola.is
SENDIBÍLA
ÞJÓNUSTA
Þorsteinn Aril íusson
861 0330
Ökukennsla
Kristjáns Björnssonar
M - 916
ÖKUKENNSLA • AKSTURSMAT
ENDURTÖKUPRÓF • LÉTT BIFHJÓL
Hamravík 16 • Borgarnesi • 863 6337
krbjorns@simnet.is
Pennagrein
Við Helgi Ormsson
höfum verið að
skrifast á um spillingu
í Sjálfstæðisflokknum.
Ég nefndi nokkur spillingarmál og
Helgi gagnrýndi þessi svör í síðasta
blaði. Helgi segir að hann sé þreyttur
á að þrasa og mér finnst það ekki
skemmtilegt heldur. Lesendur blaðsins
eru örugglega sammála. Hinsvegar verð
ég að svara þessu, vegna þess að þarna
kemur svo mikið fram af órökstuddum
fullyrðingum að þær kalla á leiðréttingu.
Helgi er hinsvegar alls ekki einn um að
fullyrða. Það er því miður allt of algengt
í stjórnmálaumræðu hér á landi að menn
leyfa sér að slá einhverju fram sem
er beinlínis rangt, og ef nógu margir
sameinast um það, fer fólk að trúa því.
Fyrsti hluti greinarinnar er um að
Helgi hafi barist við kommúnista og
róttæklinga og haft betur að lokum.
Þessu vil ég svara svona: Það voru
til kommúnistaflokkar í gamla daga.
Það eru skýringar á því. Í kreppunni
miklu 1929 varð ekkert hrun í
kommúnistaríkjunum. Leitandi fólk í
hinum vestræna heimi hélt að þarna væri
svarið i). Svo leið tíminn. Miðstýringin,
spillingin, persónunjósnirnar og ofbeldið
olli því að fólk almennt sneri baki við
kommúnismanum. Það eru u.þ.b. 40
ár síðan vinstri menn á Íslandi gerðu
það. Núna er til einstaka kommúnisti,
alveg eins og það eru einstaka fasistar
og ofbeldismenn hægra megin á litrófi
stjórnmálanna. Samt leifa hægri menn
sér að kalla vinstri menn kommúnista enn
þann dag í dag. Verstu róttæklingarnir á
Íslandi eru núna öfga hægri menn, svona
eins og Hannes Hólmsteinn og fleiri sem
trúa því enn að óbeislaður kapítalismi sé
svarið.
Seinni hluti greinarinnar snýr að
dæmunum sem ég nefndi um spillingu
í Sjálfstæðisflokknum. Ég ætla að svara
þessu lið fyrir lið, og vísa í heimildir þar
sem það á við Ég hvet fólk til að leita
sjálft heimilda t.d. á Netinu:
Símahleranirnar: Helgi talar um
sveitasímann eins og hann hafi eitthvað
með með málið að gera, og fullyrðir svo
að það sé rangt að símar stjórnmálamanna
hafi verið hleraðir. Eru þá kommúnistar
á RÚV að ljúga ii) eða kommúnistar á
Mogganum? iii) Þetta er einfaldlega
staðfest af sagnfræðingum í dag.
Hann segir um kvótakerfið að það
þurfi ekki að gera neinar breytingar,
rökstyður það ekki nánar. Það þarf ekki
að breyta kerfinu að hans sögn, vegna
þess að það hafa ekki verið gerðar neinar
breytingar! Svo talar hann um flokk sem
var á móti kvótakerfi (á við Frjálslynda
flokkinn) og að enginn vilji kjósa hann.
Þetta kemur málinu ekkert við og ég
held að Helgi viti það. Það er enginn
að gagnrýna auðlindastýringu, en menn
gagnrýna óréttlæti og spillingu.
Helga finnst eðlilegt að 4 af 10
hæstaréttardómurum hafi beina tengingu
við Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að
40% Íslendinga kjósa Flokkinn. Það eru
ekki 40% þjóðarinnar skráð í Flokkinn
og tengd innsta kjarna hans. Helgi áttar
sig áreiðanlega á muninum á þessu, en
ákveður að snúa svona útúr. Það má vel
vera að allir Hæstaréttardómarar kjósi
Flokkinn. En um það er ekkert hægt
að fullyrða. Þar fyrir utan ætti það að
vera regla að enginn Hæstaréttardómari
hafi einhver tengsl við stjórnmálaflokka.
Það er t.d. vandlega reynt að tryggja það
í Bandaríkjunum, vegna þrískiptingar
valdsins.
Hann er með skýringu á hruninu:
„Þar gengu misindismenn um
garða...þeir nutu til þess fulltingis
stjórnmálamanna af vinstri vængnum.
Þetta er fullsannað“. Þetta er bara
fullyrðing og Helgi reynir ekki að
rökstyðja hana. Ég veit að hann á við
Jón Ásgeir: Fréttablaðið var í eigu Jóns
Ásgeirs, og það leyfði mönnum eins og
Þorvaldi Gylfasyni að birta greinar. Þær
greinar voru óþægilegar fyrir stjórnvöld.
Áður hafði Morgunblaðið verið með
einokun á dagblaðamarkaðnum.
Fréttablaðið var að verða stærra en
Mogginn. Þetta þoldi Davíð ekki og
beitti réttarkerfinu til að elta uppi Jón
Ásgeir út af einhverri skútu sem hann
átti í Ameríku. Það kom nánast ekkert
út úr því, en kosnaðurinn var u.þ.b. 3
milljarðar! Margir á vinstri vængnum
gerðu sér grein fyrir hvað lá að baki, og
tóku til varna fyrir Jón Ásgeir í þessu máli.
Þeir hefðu hinsvegar ekki gert það ef
rannsóknin hefði beinst að bankaráninu
stóra sem var að eiga sér stað. En þeir
gátu ekki vitað hvað var að gerast, frekar
en almenningur í landinu. Hugsa sér ef
allur þessi lögfræðikosnaður hefði farið
í að rannsaka bankana sem á þessum
tíma voru að keyra þjóðfélagið í þrot. Af
hverju var þetta ekki rannsakað? Það var
vegna þess að þar voru Sjálfstæðismenn
allan hringinn kringum borðið. Dæmi:
Björgólfsfeðgar, Jóhannes (faðir Jóns
Ásgeirs) Sigurjón Árnason, Kjartan
Gunnarsson og svo Jónas Fr og Davíð
í eftirlitinu.
Helga finnst gott mál að veita
sakamönnum uppreisn æru, og ekkert
óeðlilegt að Davíð hafi hækkað eftirlaun
ráðherra langt umfram aðrar stéttir í
þjóðfélaginu áður en hann fór sjálfur
á eftirlaun. Ekkert athugavert við að
hann hækkaði laun seðlabankastjóra
rétt áður en hann veitti sjálfum sér
það embætti. Fjölda sjálfstæðismanna
finnst að Jón Bjarnason ætti að segja
af sér vegna þess að hann réði son sinn
til starfa tímabundið í nefnd á vegum
Sjávarútvegsráðuneytisins. Þessir
sömu menn líta á Davíð sem mesta
leiðtoga Íslandssögunnar! Þetta er
undirlægjuháttur. Og undirlægjuháttur
er vondur. Menn eiga ekki að samþykkja
að aðeins Flokksmenn komist í góðar
stöður. Það verður til þess að það ríkir
ekki heilbrigð samkeppni milli fólks
í þjóðfélaginu. Þetta er ekki hollt til
lengdar, hvorki fyrir Ráðstjórnarríkin né
Ísland.
i) Þetta ætti ekki að koma á óvart núna
þegar margir Sjálfstæðismenn tala eins
og þeir vilji leggja niður AGF, því þeir fari
svo illa með okkur, og hundsa alþjóðlegar
fjármálastofnanir. M.ö.o: Gefa skít í
alþjóðakapítalismann!
ii) http://dagskra.ruv.is/
ras1/4258705/2006/08/31/0/
iii) http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.
html?grein_id=1085033
iv) Google: „tryggja talsamband við
flokkinn“
Kveðja, Reynir Eyvindsson
Spilling í Sjálfstæðisflokknum framhald