Skessuhorn


Skessuhorn - 16.05.2012, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 16.05.2012, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ Nafn: Gyða Steins dótt ir Starfs heiti/fyr ir tæki? Bæj ar­ stjóri í Stykk is hólms bæ. Fjöl skyldu hag ir/bú seta? Móð­ ir þriggja drengja. Maki Bald ur Þor leifs son. Á huga mál? Úti vist, hreyf ing, fjöl skyld an og lest ur bóka. Vinnu dag ur inn: Föstu dag ur inn 11. maí 2012. Mætt til vinnu og fyrstu verk? Mætti í vinnu kl. 8:10. Fór yfir ó af greidda tölvu pósta og und ir­ bjó mig fyr ir fund sem ég átti að mæta á hjá inn an rík is ráð herra í Reykja vík klukk an 13. Klukk an 10? Var með skemmti­ legu fólki sem kom í heim sókn til okk ar frá skrif stofu Dala byggð­ ar, en þau voru í skemmti ferð um Snæ fells nes. Það var virki lega gam an að fá þau í heim sókn og ræða um sam eig in leg verk efni. Há deg ið? Í há deg inu var ég á akstri til Reykja vík ur. Klukk an 14? Þá var ég að fá mér há deg is mat í Reykja vík eft ir fund. Hvenær hætt og það síð asta sem þú gerð ir í vinn unni? Ég var kom in heim úr Reykja vík um kl. 18:00. Fast ir lið ir alla daga? Hitta starfs fólk ið og vinna að mál efn­ um sveit ar fé lags ins. Hvað stend ur upp úr eft ir vinnu dag inn? Von um að fund­ ur inn með inn an rík is ráð herra leiði til já kvæðra hluta. Var dag ur inn hefð bund inn? Nei ­ þó er ekki kannski hægt að segja að neinn dag ur sé hefð­ bund inn því þeir eru all ir ó lík ir. Hvenær byrj að ir þú í þessu starfi? Í júní 2010. Er þetta fram tíð ar starf ið þitt? Ég er ráð in til júní 2014. Hlakk ar þú til að mæta í vinn­ una? Já. Eitt hvað að lok um? Líf ið er ynd is legt. Dag ur í lífi... Bæj ar stjóra Loka hóf yngri flokka hjá körfuknatt leiks deild Skalla gríms var hald ið í blíð skap ar veðri í Skalla­ gríms garði síð ast lið inn fimmtu dag. All ir iðk end ur frá 6­19 ára á samt fjölda for eldra mættu og gæddu sér á grill uð um pyls um og á vaxta safa. Grill meist ar arn ir Finn ur Jóns­ son og Ingi Tryggva son voru með grilltang irn ar á lofti og grill uðu yfir 200 pyls ur ofan í mann skap inn. All ir sem æfðu körfu bolta á aldr­ in um 1.­6. bekk, fengu verð launa­ pen ing fyr ir góð an ár ang ur í vet ur. Eldri iðk end ur voru verð laun að­ ir sér stak lega fyr ir góða á stund un, mest ar fram far ir og svo var besti leik mað ur hvers flokks val inn. Þótt loka hóf ið sé að baki verð ur á fram spil að ur körfu bolti í vor. Með al ann ars hafa ver ið boð að ar æf ing ar um hvíta sunnu helg ina. þá/ Ljósm. sg. Axel Máni Gísla son er fædd ur árið 1993 og lýk ur stúd ents prófi frá Mennta skóla Borg ar fjarð ar af nátt­ úru fræði braut núna vor ið 2012. Axel býr á Hvann eyri og hef ur síð­ ast lið in þrjú ár ekið á milli Borg­ ar ness og heim il is síns til að sækja skóla. Axel er virk ur í fé lags störf­ um og var með al ann ars með stjórn­ andi Nem enda fé lags Mennta skóla Borg ar fjarð ar á fyrsta ár inu sínu, er for mað ur út skrift ar hóps ins í ár, hef ur set ið í stjórn um Ung menna­ húss ins Mím is, Get speki fé lags MB og þá hef ur hann ver ið frétta mað­ ur körfu bolta blaðs ins Frá kasts ins. Axel læt ur vel af skóla göngu sinni í MB. „Skóla gang an hef ur ver ið mjög góð, frá upp hafi til enda. Það var tek ið vel á móti manni þeg ar mað ur kom í skól ann og þá sér stak­ lega af kenn ur um og öðru starfs­ fólki. Mennta skól inn var öðru­ vísi en ég gerði mér í hug ar lund í 10. bekk. Hann var vina legri en ég bjóst við, mað ur var mjög fljót ur að ná tengsl um við sam nem end ur og kenn ara og kom þessi nánd sem ein kenn ir skól ann mér á ó vart." Símat ið sniðugra Að spurð ur um hvort hann telji að MB hafi veitt hon um næg­ an und ir bún ing, bæði út í líf ið og frek ari skóla göngu seg ir Axel svo vera. „Náms lega séð tel ég að MB hafi skil að öllu því sem hann átti að skila. Hann er ekki síðri en aðr­ ir skól ar og nátt úru fræði braut­ in er mjög sterk. Að vísu tel ég að það gæti orð ið erfitt að að laga sig að loka próf um í frekara námi í há­ skóla. En ég hef mikla trú á því að það muni koma." Náms mati er hag að öðru vísi en í flest um fram halds skól um, sem marg ir hverj ir not ast við loka próf. MB not ast við sí mat þar sem vinna nem enda er met in jafnt og þétt alla önn ina með verk efn um og kafla­ próf um. Axel seg ir að sí mat sé þó ekki auð veld ara fyr ir nem end ur en hin hefð bundna loka prófs leið. „Sí­ mat er miklu sniðug ara að því leyt­ inu til að þú ert alltaf á tán um, ert alltaf að vinna verk efni úr köfl­ um sem síð an er próf að úr jafnt og þétt. Þeg ar þú tek ur loka próf get­ ur daga mun ur á sjálf um þér kom ið að sök. Með al náms mað ur í fram­ halds skól um á það til að gera ekk ert alla önn ina fyrr en kem ur að loka­ prófi. Þá er tek in rosa leg törn viku fyr ir próf og lít ið sit ur eft ir þeg ar uppi er stað ið. Með símat inu fest ist náms efn ið bet ur í minni, sem hlýt­ ur að vera mark mið ið með því að ganga í skóla." Valdi nátt úru fræði­ braut ina Eins og fyrr seg ir stund ar Axel nám á nátt úru fræði braut. Á hugi hans ligg ur í þá átt frek ar en til fé­ lags fræði. Hann hef ur þó tek ið val­ fög sem eru skylda á fé lags fræða­ braut, til að mynda auka á fanga í sögu og ensku. „Ef þú ert á nátt úru­ fræði braut er gott að taka nokkra á fanga sem eru á sviði sam fé lags­ greina. Þá hef urðu betri grunn og færð nasa þef inn af fé lags vís ind un­ um. Kost ur inn við nátt úru fræði­ braut ina eru hins veg ar sá, að ef þú ætl ar að leggja stund á raun grein­ ar í há skóla er al mennt gerð krafa um ein hvern grunn, t.d. í stærð­ fræði eða eðl is fræði. Inn töku skil­ yrði sem þessi tíðkast ekki í fé lags­ vís inda deild um há skól anna." Ekki bara kennitala í skrán ing ar kerf inu Axel hygg ur á að stunda frekara nám við Há skól ann í Reykja vík en fórn ar hönd um þeg ar hann er innt ur eft ir því hvað hann langi að leggja stund á. „Það eru svo marg­ ir spenn andi kost ir í boði, en ég set stefn una á tölv un ar fræði eða véla­ verk fræði eða ann að tengt raun vís­ ind um. Í tölv un ar fræð inni er með­ al ann ars boð ið upp á spenn andi skipti nám í Banda ríkj un um sem er á sama tíma starfs nám. Þá var Há­ skóla dag ur inn í HR ein stak lega skemmti leg ur og meira að segja virt ist við skipta fræð in spenn andi, sem ég hing að til hef ekki haft mik­ inn á huga á. En ein helsta á stæð­ an fyr ir því að HR heill ar mig frek­ ar en HÍ er smæð skól ans. Þá er hægt að vera í betra sam bandi við kenn ara og aðra í kring um mann, ekki ó líkt MB. Mað ur er ekki bara kennitala í skrán ing ar kerf inu. Há­ skóla Ís lands tel ég þó alls ekki síðri skóla." Í júní fara út skrift ar nem ar svo í ferð sína til Benidorm en út skrift­ ar hóp ur inn í ár tel ur á fimmta tug nem enda. Það eiga vænt an lega marg ir eft ir að anda létt ar eft ir að stúd ents húf an hef ur ver ið sett upp og hægt að byrja að sleikja sól ina á strönd inni. „ Þetta verð ur gam an," seg ir Axel með bros á vör og get ur ekki beð ið eft ir að hverfa út í sum­ ar ið með stúd ents próf í fartesk inu. Bjarki Þór Grön feldt Gunn ars son Búið er að út hluta úr sprota sjóði mennta­ og menn ing ar mála ráðu­ neyt is ins fyr ir næsta skóla ár. Hlut­ verk sjóðs ins er að styðja við þró­ un og nýj ung ar í skóla starfi og er hann sam eig in leg ur fyr ir leik skóla, grunn skóla og fram halds skóla. Þetta árið verða á herslu svið Sprota­ sjóðs ins þró un skóla námskrár með hlið sjón af nýrri mennta stefnu og virkt lýð ræði, mann rétt indi og sam skipti í skól um. 190 um sókn ir bár ust Sprota sjóði og styrk ir voru veitt ir til 46 verk efna að upp hæð rúm lega 43 millj ón ir króna. Fjór ir skól ar á Vest ur landi hlutu styrk úr sjóðn um og hver þeirra á mis mun andi skóla stigi. Leik skól­ inn Uglu klett ur í Borg ar nesi fékk 900.000 kr. til verk efn is ins „Skóla­ námskrá Uglu kletts. Leik ur, virð­ ing, gleði." Heið ar skóli, sam ein að­ ur leik­ og grunn skóli í Hval fjarð­ ar sveit fékk 800.000 kr. til verk­ efn is ins: „Sam ein ing sjón ar miða ­ skóla námskrá sam ein aðs leik­ og grunn skóla." Brekku bæj ar skóli á Akra nesi fékk 700.000 kr. til verk­ efn is ins: „Sam vinna við inn leið­ ingu á grunn þátt um mennt un­ ar sem leið ar ljós við end ur skoð un á skóla námskrá." Loks fékk Fjöl­ brauta skóli Snæ fell inga eina millj­ ón króna í styrk til verk efn is ins: „Hæfni m ið að nám í FSN." sko Finn ur þjálf ari, Áki, Krist ó fer og Máni. Loka hóf yngri flokka Skalla gríms Óð inn Guð munds son þjálf ari, Bjarni, Þor geir og Al mar. Finn ur Jóns son þjálf ari, Birg ir og Dav íð. Fjór ir skól ar af Vest ur landi styrkt ir af Sprota sjóði Skóla gang an hef ur ver ið góð frá upp hafi til enda Við tal við út skrift ar nema í MB Axel Máni Gísla son, út skrift ar nemi í MB. Ljósm. Dag björt Birg is dótt ir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.