Skessuhorn - 26.09.2012, Side 17
17MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2012
Bók in Gleði gjaf ar er á þriðja hund
rað blað síð ur og er vænt an leg með
haustinu frá Bóka fé lag inu.
Börn in breyta öllu
Þannig er Sig rún nú að ljúka við tvö
stór verk efni; bók ina Gleði gjafa og
þátta röð ina um Neyð ar lín una. „Svo
eru nátt úr lega enda laust nýj ar á skor
an ir í gangi á Stöð 2 og verk efn in ólík
í Ís landi í dag. Það verð ur samt svo
lít ið spennu fall býst ég við að senda
frá mér þessi tvö verk efni sem tek
ið hafa all ar stund ir að und an förnu.
Ég hef ekki gert neitt nema vinna,
borða og sofa mán uð um sam an ef
frá er tal in ganga yfir Lauga veg inn
í júní. Hef reynd ar lof að sjálfri mér
því að nú gef ist tími til að grípa í
prjóna á kvöld in, lesa eða fara út að
ganga. Svona eitt hvað upp byggi legt
sem ung móð ir og hús móð ir á að
gefa sér tíma til,“ seg ir Sig rún. Hún
er í sam búð með Jóni Þór Hauks syni
mál ara á Akra nesi. Þau keyptu á síð
asta ári ein býl is hús á Grund un um og
son ur inn Orri Þór kom í heim inn í
júní 2010. „Ég er ekki viss um að ég
hefði get að skrif að Gleði gjafa nema
hafa sjálf alið barn. Þau breyta sýn
manns á svo margt,“ bæt ir hún við.
Hér aðs frétta blöð in
fjöl breytt ur skóli
Þrátt fyr ir að vera ein ung is 32 ára
hef ur Sig rún Ósk kom ið víða við á
lífs leið inni. For eldr ar henn ar flutt
ust til Dan merk ur þeg ar hún var á
fyrsta ári þar sem þau bjuggu í Óð
ins vé um og á Láglandi. For eldr arn ir
skildu og sjö ára, eft ir flutn ing til Ís
lands, byrj aði Sig rún Ósk í Grunda
skóla á Akra nesi þar sem Sveinn
Krist ins son átti eft ir að verða um
sjón ar kenn ari henn ar all an grunn
skól ann. Vegna já kvæðra um mæla
Sveins um Sig rúnu var hún 19 ára
göm ul ráð in til starfa sem blaða
mað ur á Skessu horni eft ir að hafa
lok ið stúd ents prófi frá Fjöl brauta
skóla Vest ur lands. „Ég var blaða
mað ur í tvígang á Skessu horni. Var
19 ára þeg ar ég byrj aði fyrst og hef
stund um hleg ið að því eft ir á hvern
ig það var hægt! Á hér aðs frétta blöð
um þurfa blaða menn að vera vel að
sér í nán ast öllu sem þeir skrifa um.
Þarna var ég allt í einu far in jöfn um
hönd um að skrifa um sveit ar stjórn
ar mál, ál ver, slát ur tíð og afla frétt
ir. Það er margt sem mað ur þarf að
setja sig inn í á þess um litlu miðl
um og þótt ég hafi ver ið svo lánsöm
að hafa að gengi að sveit sem barn
fór því fjarri að ég væri sér fræð ing
ur í fall þunga dilka, mjólk ur kvóta
og öllu hinu. Þessi tími var frá bær
skóli fyr ir mig, ég þurfti mik ið að
keyra um Vest ur land, en á þess um
tíma var skrif stofa blaðs ins í Borg
ar nesi og ég tók stór stíg um fram för
um í rat vísi sem hef ur alltaf ver ið ein
af mín um veik ari hlið um. Ég held að
Gísli Ein ars son sem þá var rit stjóri
hafi gert í því að senda mig sem víð
ast, til að geta hleg ið að því þeg ar ég
villt ist. Þá voru þessi mann lífs við töl
sem eru tek in á Skessu horni á gæt ur
grunn ur að þeim við töl um sem unn
in eru fyr ir sjón varp. Ég er því ekk
ert hissa á því að nokkr ir fyrr ver andi
blaða menn á Skessu horni eru í dag
starf andi á stóru fjöl miðl un um.“
Í sjón varp fyr ir til vilj un
Það var svo í gegn um Skessu horn
sem Sig rún fyr ir til vilj un kynnt
ist Rík is út varp inu, en þá var blað
ið með verk taka samn ing við RÚV
og var Gísli Ein ars son mest í þeim
verk efn um. „Ein hverju sinni komst
Gísli ekki í að vinna frétt um Reyk
holts há tíð og ég hljóp í skarð ið. Ég
keyrði suð ur með myndefn ið til að
klippa það og rakst í Efsta leit inu á
mann sem síð ar varð pródúsent í
ung linga þætt in um At. Hann bað mig
skömmu síð ar að mæta í pruf ur fyr ir
þátt inn. Ég fékk starf ið og stjórn aði
þætt in um í þrjú ár með Villa nagl
bít mér við hlið. Eft ir það flutti ég
um tíma til Dan merk ur og ætl aði að
læra tal meina fræði. Fyr ir mis skiln
ing fékk ég ekki inni í skól an um og
vann því um tíma á dönsk um leik
skóla. Þá var ég í hálft ár í Perú og
eitt sum ar starf aði ég að mark aðs
mál um hjá Akra nes kaup stað, áður
en ég fór í nám ið á Bif röst.
Sig rún Ósk ekur fjóra daga vik
unn ar milli Akra ness og Reykja vík ur
vegna vinnu sinn ar. Hún kveðst sjá
svo lít ið eft ir tím an um og elds neytis
kostn að in um sem fer í akst ur inn.
„Ég ætla þó að halda þessu á fram því
á Akra nesi vilj um við búa. Vinn an er
auk þess sú skemmti leg asta sem ég
veit þannig að þetta get ur ekki ver ið
betra,“ seg ir Sig rún Ósk sem nú um
stund ir er tal in besti sjón varps mað ur
lands ins. mm
Jón Þór, Sig rún Ósk og Orri Þór á sigl ingu í Ví etnam.
Sindri Sindra son, Sig rún Ósk og Sig ríð ur Elva í sett inu á Ís landi í dag skömmu eft ir
að þau tóku við stjórn taumun um.
Ný nem arn ir sem feng ur styrk á samt Ara Kristni Jóns syni rekt or HR. Ljósm. bgs.
Þrír stúd ent ar af Vest ur landi
fengu ný nema styrk HR
Há skól inn í Reykja vík veitti ný ver ið
29 ný nem um við skól ann svo kall að
an ný nema styrk. Styrk inn fá nem
end ur með góða ein kunn á stúd
ents prófi og felst hann í því að nem
end ur fá skóla gjöld einn ar ann ar
felld nið ur. Mark mið skól ans með
styrk veit ing unni er að hvetja fram
úr skar andi náms menn til metn að ar
fulls náms og til að auð velda þeim
að helga sig nám inu af krafti. Með
al styrk þega að þessu sinni voru
þrír stúd ent ar frá fram halds skól um
á Vest ur landi. Tveir koma úr Fjöl
brauta skóla Vest ur lands á Akra nesi.
Þetta eru þau Orri Jóns son sem
stund ar grunn nám í raf magns tækni
fræði og Lóa Guð rún Gísla dótt ir
sem haf ið hef ur grunn nám í í þrótta
fræði. Þriðji styrk þeg inn kem ur úr
Mennta skóla Borg ar fjarð ar en það
er Axel Máni Gísla son sem legg ur
stund á grunn nám í tölv un ar fræði.
hlh
Kirkjukór í sam hrist ings ferð til Par ís ar
Dag ana 13. 17. sept em ber sl.
fóru fé lag ar í Kirkjukór Ó lafs vík
ur og mak ar þeirra til Par ís ar. Ekki
var um eig in legt söng ferða lag að
ræða held ur skemmti og slök un
ar ferð ætl uð til að hrista hóp inn
bet ur sam an. Flog ið var frá Kefla
vík snemma á fimmtu dags morgni
og lent í Par ís um há deg is bil. Þar
tók við hópn um Lauf ey Helga dótt
ir far ar stjóri og fylgdi hon um heim
á hót el. Fór rest in af deg in um í að
skoða mann líf ið og átta sig á um
hverf inu. Á föstu dags morgni var
far ið í rútu ferð um borg ina þar sem
Lauf ey sagði frá því helsta sem fyr
ir augu bar og benti á á huga verða
staði. Í lok ferð ar inn ar söng kór
inn á torg inu fyr ir fram an Notre
Dame kirkj una við mik inn fögn
uð við staddra. Á fram hélt hóp ur inn
að skoða mann líf ið og njóta lífs ins.
Um kvöld ið borð aði all ur hóp ur inn
sam an kvöld verð á veit inga staðn
um Hippopotum us stutt frá hót
el inu. Þar var að sjálf sögðu sung ið
líka. Á laug ar deg in um skoð aði hver
það sem hann vildi. Til dæm is var
far ið í Effel turn inn, upp að Hvítu
kirkj unni, Rauða Myll an skoð uð
á samt fleiri stöð um. Hluti hóps ins
end aði kvöld ið á sigl ingu um Signu
þar sem að sjálf sögðu var sung ið við
góð ar und ir tekt ir og á eft ir kórn um
komu fimm ung menni frá Lý b íu og
sungu fyr ir hóp inn til að þakka fyr ir
söng inn. Á sunnu deg in um var hald
ið á fram að skoða Par ís bæði versl
an ir og hið ið andi og fjöl breyti
lega mann líf borg ar inn ar. Dag ur
inn end aði svo á veit inga staðn um
vin sæla Bláu lest inni en hann er á
gam alli lest ar stöð sem reist var um
1900. Þar var með al ann ars sung ið
fyr ir af mæl is börn ferð ar inn ar sem
voru fjög ur og skál að í Pepsí fyr ir
Vík ingi sem þenn an dag komst upp
í Pepsí deild ina. Að sjálf sögðu söng
kór inn og sló í gegn. Höfðu gest ir á
orði að það hlyti að vera mjög gam
an í mess um með þess um kór því
hann syngi svo vel. Á mánu dags
morgni var svo kom ið að heim ferð.
All ir voru mætt ir í and dyri hót els
ins rétt fyr ir 11 til að fara með rút
unni út á flug völl. Það voru glað
ir og á nægð ir ferða lang ar sem lentu
á Kefla vík ur flug velli um hálf fimm
þenn an dag.
-frétt frá hópn um.
Daggardropi að hausti. Ljósm. Kristín Jónsdóttir.