Skessuhorn - 26.09.2012, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2012
Ungmennafélag Grundarfjarðar hélt
uppskeruhátíð sína fimmtudaginn
20. september. Þá voru verðlaun
veitt þeim krökkum sem þóttu
hafa staðið sig vel síðasta vetur
og í sumar. Vel var mætt og allir
skemmtu sér vel. Krakkarnir voru
svo leystir út með pizzaveislu og
Svala. tfk
Uppskeruhátíð Víkings í Ólafsvík
Eldar Masic var kosinn besti leikmaður Víkings, Alfreð Hjaltalín sá efnilegasti og
Guðmundur Steinn Hafsteinsson markhæsti leikmaðurinn með 17 mörk.
Ljósm. af.
Gríðarmikil flugeldasýning var hápunktur lokahófs Víkings á laugardagskvöldið.
Ljósm. af.
Helgi Kristjánsson fékk gullmerki Víkings. Ljósm. af.
Gamlir leikmenn Víkings færðu félaginu gjöf. Ljósm. af.
Fulltrúar Snæfellsbæjar afhenda hér Jónasi Gesti, f.h. Víkings, eina milljón króna
að gjöf frá bæjarbúum. Ljósm. þa.
Golfmót Hollvinasamtaka Bifrastar
Golfmót Hollvinasamtaka Bifrastar var haldið
sunnudaginn 9. september síðastliðinn á golfvellinum
Glanna á bökkum Norðurár. Mót þetta er haldið árlega
fyrir alla sem starfa, stunda nám eða hafa stundað nám
við Háskólann á Bifröst. Þótti umgjörð og aðstæður
hinar bestu að sögn keppenda.
Verðlaun voru gefin fyrir lengsta upphafshögg á 5.
holu og var það Sveinn Gíslason sem hreppti þau, en
hann sló lengra en nokkur annar keppandi þetta árið.
Nándarverðlaun voru á fjórum holum. Það var Tryggvi
Rafn Sigurðsson sem var næstur á 12. holu, Ellen
Blumenstein var næst á 18. holu og svo var það Hjalti
Sigurðsson sem náði að vera næstur á bæði 3. og 9.
holu. Í þriðja sæti á mótinu var Davíð Þ. Olgeirsson,
í öðru sæti á jafn mörgum punktum, en betra skori á
seinni níu, var Ellen Blumenstein. Í fyrsta sæti var svo
Valdimar E. Geirsson fyrrum nemandi. Hollvinasamtök
Háskólans á Bifröst og Golfklúbburinn Bifröst vilja
þakka fyrir skemmtilegt mót og góðan félagsskap.
-fréttatilkynning
Lloyd Harrison leystur undan
samningi hjá Skallagrími
Stjórn körfuknattleiksdeildar Skalla-
gríms í Borgarnesi hefur leyst
Lloyd Harrison undan samningi.
Ástæðan er sú að Lloyd er meiddur
í baki en óvíst er bæði um eðli
meiðsla hans sem og hvenær hann
verður að fullu leikfær á ný. Björn
Bjarki Þorsteinsson formaður kkd.
Skallagríms sagði í samtali við
Skessuhorn að stjórn deildarinnar
hafi ekki séð sér annan kost en að
taka þessa ákvörðun. Vissulega sé
eftirsjá af Lloyd sem lék vel með
liðinu á síðustu leiktíð í 1. deild
karla og hafi reynst liðinu góður
félagi. Óvissan væri hins vegar of
mikil og stutt í Íslandsmótið og
því hafi stjórnin brugðið á þetta
ráð sem Lloyd hafi sýnt fullan
skilning. Lloyd Harrison lék stöðu
leikstjórnanda með Skallagrími
og því leita Borgnesingar nú
logandi ljósi að leikmanni í hans
stað. Björn Bjarki sagði að verið
sé að skoða nokkra leikmenn og
mun vonandi verða gengið frá
samningum við nýjan leikmann
áður en Íslandsmótið hefst. Fyrsti
leikur Skallagríms í Íslandsmótinu
er 7. október nk. gegn liði KFÍ og
fer leikurinn fram á Ísafirði. hlh
Uppskeruhátíð Umf. Grundarfjarðar